Ja, þetta er nú frekar lítið. Ágætlega samsettur matur samt. Þetta gæti nægt smávaxinni konu sem er að reyna að létta sig. Ég held að miðað við alla þessa hreyfingu sem þú færð að þér sé óhætt að fá þér eitthvað á kvöldin þegar þú kemur heim af æfingum. Rétt eftir æfingu má vera dálítill sykur í því. Hann hindrar að líkaminn fari að brenna vöðvum. Skyrdrykkur er td ágætur, þá þessir sykruðu, ekki með gervisætunni (sem eru ágætir á öðrum tímum, bara ekki eftir æfingu).