Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

hbriem
hbriem Notandi frá fornöld 63 ára karlmaður
86 stig

Re: Að minnka of mössuð læri?

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Hvað er að því að hafa mössuð læri?

Re: Lyftingar - Heimsmet

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
BTW, þá keppir Benni í kraftlyftingum, ekki í lyftingum . Síðarnefnda íþróttin (lyftingar) er oft kölluð “Ólympískar lyftingar”. Þar er keppt í tveimur greinum: Jafnhöttun og Snörun. Ólympískar lyftingar eru tæknilega flóknari og krefjast mikillar snerpu. Langt er síðan Íslendingar hafa átt lyftingamenn á heimsmælikvarða, en þó hefur Gísli Kristjánsson (videó að ofan) gert það gott á Norðurlandamótum. Kraftlyftingar eru önnur íþrótt, sem Íslendingar hafa oft náð góðum árangri í, t.d. Skúli...

Re: Pumpa?

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Rétt. Þeir stækka tímabundið vegna aukins blóðflæðis, en þessi stækkun hjaðnar stuttu eftir æfingu. Sú trú er útbreidd meðal vaxtarræktarfólks að síendurtekin “pumpun” af þessu tagi leiði að lokum til varanlegrar stækkunar vegna “umfrymisaukningar” (sarcoplasmic hypertrophy) en litlar sem engar rannsóknir benda til þess að þetta gerist.

Re: Magavöðvarnir mínir!!

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Nei. Því miður er líklega ekkert sem þú getur gert í þessu. Ef þú skoðar myndir af mörgum vaxtarræktarmönnum þá sérðu einn og einn með skakka magavöðva. Einhverjir voru frægir fyrir þetta. Magavöðvinn er þannig uppbyggður að þetta er í raun einn vöðvi en þessi skipting í 8 kemur til af 3 bandvefshöftum, svipað og vafin rúllupylsa (http://en.wikipedia.org/wiki/Abdominal_muscles). Þú verður bara að lifa með þessu held ég. Enda lífið of stutt til að svekkja sig á smá ósamhverfu.

Re: Magavöðvarnir mínir!!

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Hvernig magavöðvarnir líta út hefur sáralítið með magavöðva að gera og hefur aðallega með fituhlutfall að gera. Fita er yfirleitt svipuð báðum megin en sjálfsagt getur það verið eitthvað breytilegt eins og annað.

Re: Hæð

í Tilveran fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Jú, það er nokkuð nákvæmt …. fyrir stelpur. Fyrir stráka er það við 2 1/2 árs aldur. Skeikar sjaldnast meira en örfáum sm.

Re: Lyftingar - Heimsmet

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Nei, hvar sem er, en á löglegu IPF móti. T.d. efast ég um að lyftan hans Benna verði skráð sem Íslandsmet því að hún var ekki gerð á IPF móti, heldur WPO sem hefur miklu frjálslegri reglur.

Re: Lyftingar - Heimsmet

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Já já hún er í góðu gildi. Það eru mörg met í drengjaflokki vel bætanleg. Því miður fáir keppendur undir 18 sem reyna.

Re: Lyftingar - Heimsmet

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Vídeó af kvikindinu sem var smyglað út þó það væri bannað að kvikmynda: http://www.gometal.com/videot/WPO2005HELSINKI/biggest_deadlift_in_the_world.avi

Re: Pumpa?

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Nei.

Re: Lyftingar - Heimsmet

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Hmmm. “Heimsmet” átti það auðvitað að vera. “Heimssmit” er áhugavert fyrirbæri samt. Er trú heimssmit?

Re: Lyftingar - Heimsmet

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Já þetta er stórkostlegt afrek hjá Benna og kominn tími til að Íslendingar eignist heimsmit. Mikið var!

Re: Hvað taka menn í .... ?

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Skítt með Íslandsmetið. IPF heimsmetið í 75-U18 er ekki nema 270.5kg. Þú ferð létt með það er það ekki?

Re: hvernig?

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Það fer nú eftir því hvað er að þér í bakinu. Það er ansi varhugavert að fara eftir læknisfræðilegum ráðleggingum sem þú færð frá einhverjum á netinu. Minniháttar tognanir og vöðvabólgu má meðhöndla með bólgueyðandi lyfjum (Voltaren eða Ibufen) og hvíld. Gott að fara í nuddpott. Brjósklos er náttúrulega miklu alvarlegra mál og þú losnar ekkert við það í hvelli. Svo eru nú fleiri bakvandamál sem ættu að meðhöndlast af lækni og etv. sjúkraþjálfara. Ég vona að þetta lagist bráðum hjá þér.

Re: Hvað taka menn í .... ?

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
270 kíló í réttstöðu!?!?!? Undir 75 kílóum? Þetta er hrikaleg lyfta hjá þér. Þeir einu sem toga eitthvað svipað eru Sævar Ingi Borgarson og Halldór Eyþórsson í 82.5 kílóa flokki og trúðu mér, þeir eru hrikalegir. Já og svo Kári köttur náttúrulega ef hann er ómeiddur og pumpan í lagi. Ég æfi með mörgum 130+ boltum sem eru búnir að æfa páver í 10 ár eða meira og dedda ekki 270. Hafandi séð þá prófa svipaðar þyngdir þá finnst mér þetta alveg hreint með ólíkindum. Hvar æfirðu og hvað heitirðu?...

Re: Læri

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Góðir punktar. Og það eru miklu fleiri stelpur með of mjó læri en of feit. Þær fáu sem hafa of feit læri eru of feitar alls staðar.

Re: Læri

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
ef þú ert með mikla fitu myndi ég ráðleggja þér að taka hnébeygjur þær taka vel í. Ég mundi ráðleggja öllum að taka hnébeygjur, hvort sem þeir vilja grennast eða massast. Hins vegar brenna þær ekkert sérstaklega fitu af lærunum frekar en annars staðar.

Re: Læri

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Já, eins og furulundur sagði. Það er ekki hægt að brenna fitu sértækt af ákveðnum líkamshlutum. Fitan fer í sömu röð og hún kom. Ef þú fitnar fyrst á lærum þá fer fitan síðast þaðan.

Re: Hvað taka menn í .... ?

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Það er ekki byrjað að skrá á það enn, en það er hægt á www.kraft.is. Keppendur þurfa að hafa náð 14 ára aldri.

Re: Hvað taka menn í .... ?

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
…ef ég vill setja met verður það að vera á móti? Já, til að vera viðurkennt þarf það að vera á móti. Það er Íslandsmeistaramót í réttstöðulyftu 26. nóv. Sér maður þig ekki þar?

Re: Hvað taka menn í .... ?

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Það er enginn vandi að losa sig við hálft kíló. Drekka lítið í hálfan dag. Þetta væru hvort eð er tölur sem nægðu til Íslandsmeistaratitils hvenær sem er í 75 kílóa flokki. Auðveldlega. Skúli Óskarsson keppir ekki lengur og það er ekki nokkur maður á landinu svona léttur sem tekur nálægt þessum þyngdum. Maður sér þig kannski á bikarmótinu 5. nóv. Þú rúllar því upp léttilega. Nema þú sért eitthvað að ýkja.

Re: Hvað taka menn í .... ?

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Vá. Þetta eru hrikalegar lyftur hjá þér, sérstaklega hnébeygjan. Bæði hnébeygjan og réttstöðulyftan eru hársbreidd frá Íslandsmeti í 67.5 kílóa flokkki. Hefurðu ekki hugsað þér að keppa eitthvað?

Re: Mataræði

í Heilsa fyrir 20 árum, 4 mánuðum
Þegar stórt er spurt er oft fátt um svör. Viltu að við skrifum bók handa þér? Þú ert klár strákur og veist vel svarið við þessari spurningu þinni. Ég ætla ekki að fara að skrifa handa þér matseðla. Það er nóg af þeim úti um allt. Til þess að stækka og styrkjast þarftu aukahitaeiningar og aukaprótein. Hvort tveggja er auðvelt að fá. 2L aukalega af léttmjólk daglega gefa 70g af próteini og 900 hitaeiningar sem er ca það sem þú þarft umfram brennslu til að bæta á þig vöðvum ef þú ert að lyfta....

Re: BT Net er hrunið og ég hef verið netlaus í tvær vikur;o(

í Tilveran fyrir 20 árum, 5 mánuðum
1995? Kjaftæði. Ég notaði netið reglulaga um 1988-89. Vefurinn (http, www) hins vegar náði fyrst útbreiðslu um 1993.

Re: 7 ára strákur að taka 95kg í bekk??

í Heilsa fyrir 20 árum, 5 mánuðum
PS Hann virðist hafa lyft 95 kílóum í bekkpressu eitthvað seinna. 8 ára gamall gat hann lyft tvöfaldri líkamsþyngd sem þá var 70 lbs (32kg) eða 64kg. Eitthvað hafa sögurnar skolast til og blandast saman eins og venjan er með munnmælasögur.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok