Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

hbriem
hbriem Notandi frá fornöld 63 ára karlmaður
86 stig

Re: Skrítin öndun.

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Stress? Hafðu samband við lækni. Þetta gæti verið astmi, en gæti líka stafað af áhyggjum af einhverju.

Re: Hvað er besta fæðubótarefnið?

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Matur. Fjölvítamín. Lýsi.

Re: Sýnilegri vöðvar

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Í fyrsta lagi, það eru engar töfralausnir þegar megrun er annars vegar. Þú þarft að éta minna en þú brennir, punktur. Nokkur atriði: 1 - Hitaeiningar í drykkjum virðast blekkja líkamann frekar en aðrar. Hættu að drekka hitaeiningaríka drykki eins og gos og orkudrykki. Drekktu ávaxtasafa í hófi og undanrennu frekar en nýmjólk. 2 - Próteinríkt fæði virðist minnka matarlyst. Þannig virkar Atkins kúrinn, ekki með því að breyta fituefnaskiptum á einhvern hátt eins og talið var. 3 - Borðaðu...

Re: Sýnilegri vöðvar

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Eins og Ivan segir þarftu að grennast til að vöðvarnir sjáist betur. Haltu áfram að lyfta svo þú tapir fitu en ekki bara vöðvum.

Re: Sýnilegri vöðvar

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Nei, það gerir ekkert gagn og er alger bábilja og hjátrú. Það er yfirleitt best að lyfta eins eða svipað hvort sem er verið að þyngja sig eða létta, en éta minna til að léttast.

Re: Kreatín og áfengi?

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Hér eru nokkrar greinar um áfengi: http://bodybuilding.com/fun/bbinfo.php?page=Alcohol Hér er ein frá SÁÁ: http://saa.is/default.asp?sid_id=9601&tre_rod=001|003|001|&tId=1 Hér eru nokkrar um kreatín: http://bodybuilding.com/fun/bbinfo.php?page=Creatine Ég sé að amk einhverjir telja hugsanlegt (en ekki sannað) að áfengi dragi úr gagnsemi kreatíns. Það er þá eitthvað smávægilegt og stafar af vatnslosandi áhrifum alkóhóls.

Re: Ein spurnig! :)

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Það er hægt að drekka of mikið af vatni, já, en 2-3 lítrar eru í fínu lagi og ekkert hættulegt við það.

Re: Laust skinn :/

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Hafðu ekki áhyggjur. Það lagast af sjálfu sér. Tekur bara aðeins lengri tíma.

Re: Bæta á sig massa.

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Skoðaðu prógrammið sem ég skrifaði í þessum þræði: Prótein Höfuðatriðin til að bæta á sig massa eru: 1) Éta meira en þú brennir 2) Lyfta svo að maður bæti á sig meiri vöðvum en fitu. 3) Fá nægilegt prótein. Þú þarft ca 2g prótein per kíló. Þannig að ef þú ert 70kg þarftu 140g af próteini á dag. Nokkur ráð: Vendu þig á að fá þér alvöru morgunmat. Ekki bara morgunkorn, heldur skyr, brauð með áleggi, nokkur mjólkurglös. Lærðu að meta hnetur. Þær eru frábær uppspretta próteins og hollrar fitu....

Re: Armbeyjur á hnúunum?

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Æ kjaftæði. Ég gerði ábyggilega hundruð þúsunda armbeygja á hnúunum áður en ég varð 18 ára, eins og allir félagar mínir á þeim tíma. Hvorki ég né aðrir urðu fyrir neinum vandamálum þess vegna.

Re: Kreatín og áfengi?

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Kreatín og áfengi hafa engin sértæk hvort á annað, en auðvitað dregur áfengi úr íþróttaárangri almennt, lækkar testósterón og inniheldur mikið af hitaeiningum.

Re: Creatín !

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Þetta er allt eins.

Re: EAS eða Muscle Tech

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Þau eru nákvæmlega eins.

Re: vöðvar?þróun?

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Það er misjafnt hvenær fólk hættir að vaxa. Stelpur oft 14-15 ára, strákar oft ekki fyrr en um tvítugt. Það er ekkert hættulegt fyrir 16 ára krakka að gera lyftingaæfingar, en lærðu að gera þær rétt og ofgerðu þér ekki, sérstaklega í byrjun.

Re: Brenna fitu og massast?

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Þú étur meira en þú brennir til að massast. Á meðan þarftu að lyfta til þess að bæta á þig meiri vöðvum en fitu. Það er smekksatriði hvað menn gera það lengi, en getur verið allt frá 2 vikum upp í 3 mánuði. Þegar þér finnst þú farinn að fitna óhóflega þarftu að skera af þér fituna. Það gerirðu með því að éta minna en þú brennir. Á meðan þarftu að lyfta til þess að missa frekar fitu en vöðva. Mörgum finnst líka gott að gera þolæfingar til að léttast hraðar. Öðrum finnst það virka illa því...

Re: gott æfingadæmi?

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Farðu bara í ræktina, og borðaðu bara vel áður en og eftir að þú ferð. Ehh, ekki borða “vel” áður en þú ferð í ræktina. Þú yrðir í besta falli þungur og slappur og í versta falli ælandi. Það er nóg að borða smá til að hækka blóðsykurinn smávegis og fá dálítið prótein í kroppinn. 1 mjólkurglas td er fínt. Ég er farinn að nota þessa skyrdrykki (ath með sykri) fyrir æfingu.

Re: gott æfingadæmi?

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ekki lyfta á hverjum degi. 2-4 sinnum í viku er nóg. 4 er algjört max. Borðaðu alltaf eitthvað smá áður en þú lyftir. Það er í lagi að gera brennsluæfingar á fastandi maga ef manni er mjög umhugað um að grennast. Ef þú vilt “massast” ættirðu ekki að reyna að grennast samtímis.

Re: gott æfingadæmi?

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Venjulegt ósætt Cheerios er mjög hollt, en sætu gerðirnar, Flugu- og hvað þau heita eru bara dulbúið sælgæti, yfir 40% sykur.

Re: Brenna fitu og massast?

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Byrjaðu bara að lyfta svona 2-3svar í viku. Ég hef áður birt drög að prógrammi hér en þú getur auðvitað notað önnur prógrömm ef þér sýnist. Æfðu allan líkamann, ekki bara efri kroppinn. Hafðu ekki áhyggjur af því til að byrja með hvað þú étur mikið, en reyndu að minnka sælgætis og gosdrykkju og fáðu þér td skyrdrykk eða mjólkurglas í staðinn. Ekki breyta mataræðinu dag eftir dag, en fáðu þér eitthvað smá með próteini og sykri fyrir og eftir æfingu. Það þarf engin ósköp. 1 mjólkurglas td er...

Re: Brenna fitu og massast?

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Fyrirgefðu tik, ég misskildi spurninguna og sé að þú hefur misskilið mig eitthvað líka. Það er mjög gott að lyfta meðan maður grennist. Það kemur í veg fyrir að maður missi mikinn vöðvamassa með fitunni. Auk þess auka lyftingar mjög efnaskiptahraða (brennslu) í 2-3 daga á eftir, sennilega vegna vöðvaviðgerða. Besta aðferðin til að grennast er að éta minna, ekki að éta mikið og reyna að brenna fitunni með þolþjálfun. Þú þarft bara 1 kleinuhring til að vega upp á móti hálftíma hlaupum og þau...

Re: Brenna fitu og massast?

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ég hugsa að það sé mögulegt, en afar erfitt. Þú þyrftir að éta hrikalega. En að sjálfsögðu fer það líka þó nokkuð eftir því hvað þú hleypur hratt og lengi, ekki satt? Maraþonhlauparar eru ekki beint vöðvabúnt en nútíma spretthlauparar líkjast vaxtarræktarmönnum. Ég mundi ekki mæla með 6 æfingum á viku nema fyrir mjög vant fólk sem þekkir líkama sinn afar vel. Flestir byrjendur sem vilja grennast og “fá smá vöðva” gera þau mistök að æfa alltof mikið í upphafi, fá leiða eða meiðast og hætta...

Re: Brenna fitu og massast?

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Hvernig sem þú vilt. Þú getur td lyft 3svar í viku og hlaupið 3svar í viku. Það er ekki heppilegt að taka mjög oft langar hvíldir frá æfingum, en samt er ágætt að taka frí viku og viku, nokkrum sinnum á ári eða eitthvað. Harðsperrurnar sem þú færð eftir langa hvíld tefja framfarir. Ég æfi alveg eins hvort sem ég er að grennast eða bæta á mig. Bara ét mismikið.

Re: Brenna fitu og massast?

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ég æfi þrisvar í viku, 45-60 mín. Ég er búinn að bæta bekkpressuna miklu meira en 17.5 kg síðasta ár. Að ég tali nú ekki um aðrar lyftur sem ég legg meiri áherslu á og gefa meira. Hvað ertu búinn að “massast” mikið? Þú getur styrkst mjög mikið án þess að bæta á þig vöðvamassa. Þú ert ekki að massast og grennast samtímis. Til hamingju með að léttast um 13kg á 10 mánuðum. Það er góður árangur.

Re: Brenna fitu og massast?

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Byrjendur sem eru frekar feitir geta oft gert hvort tveggja í einu fyrstu mánuðina ( í mesta lagi í hálft ár samt). Einnig ef menn hafa áður verið í góðu formi en eru í lélegu formi núna, en bara í stuttan tíma. Flestir aðrir verða að gera annað hvort og skiptast þá á ef þeir vilja bæði. Til að bæta á sig vöðvamassa þarf að éta meira en þú brennir. Til að missa fitu þarf að éta minna en þú brennir. Þegar þú massast upp bætir þú óhjákvæmilega á þig einhverri fitu í leiðinni. Það er engin leið...

Re: Killer magaæfingar?

í Heilsa fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Undarlegt nokk er sú æfing sem ég geri sem er erfiðust fyrir magann ekki beinlínis magaæfing. Ég geri upphífingar með 20kg lóð í keðju um mittið (http://exrx.net/WeightExercises/LatissimusDorsi/WtChinup.html ) og bogin hné. Lóðin hvíla á framanverðum lærunum. Þessi er góð með lóð milli fótanna:http://exrx.net/WeightExercises/RectusAbdominis/WtVerticalLegHipRaise.html Svo náttúrulega þessi klassíska: http://exrx.net/WeightExercises/RectusAbdominis/WtCrunch.html Svo eru hér...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok