Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

hbriem
hbriem Notandi frá fornöld 63 ára karlmaður
86 stig

Re: argasta... vöðvabólga...

í Heilsa fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Þetta er erfitt vandamál. Á tölvuöld eru 90% vesturlandabúa með króniska vöðvabólgu. Ég losnaði reyndar við hana eftir 20 ár þegar ég fór að lyfta. Hef ekki fundið fyrir henni í 2 ár eftir að hafa verið með stöðugan verk í höfði, hálsi og herðum síðan ég uppgötvaði PC tölvuna árið 1984. Réttstöðulyfta og upphífingar virðast vera lykillinn að heilbrigði trapezius vöðvanna. Annars væri reynandi að sitja minna við tölvuna.

Re: benzodiazepine og áfengi

í Heilsa fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Bæði alkóhól og diazepín valda syfju. Eina sem ég hef fundið um samverkun þeirra er að aukin syfja og doði geti leitt til slysa, t.d. http://www.niaaa.nih.gov/publications/aa27.htm. Ég fæ ekki séð að samverkunin sé beinlínis lífshættuleg, hins vegar er alltaf varað við því að nota áfengi og benzódíazepínlyf samtímis. Ég mundi mæla með að fara eftir því. Imovane inniheldur ekki benzodiazepin heldur Zopiklon sem er allt annað og óskylt lyf, en með gróflega svipaða verkun. Auk þess er hérna...

Re: The Ramones

í Rokk fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Það var yfirleitt Dee Dee Ramone bassaleikari sem hrópaði 1234, amk á fyrstu plötunum. Upphaflega bandið var: Joey Ramone (Jeffery Hyman) söngur, Johnny Ramone (John Cummings) á gítar, Dee Dee Ramone (Douglas Colvin) á bassa og Tommy Ramone (Thomas Erdelyi) á trommum. Eftir 1977 hætti Tommy að spila á trommur og þeir notuðu ýmsa trommuleikara. Fyrir utan Tommy var þekktasti trommuleikari þeirra Marky Ramone (Marc Bell). Dee Dee bassaleikari hætti 1989 og í hans stað kom CJ Ramone...

Re: ég er hræædur

í Heilsa fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Já, þetta lagast sennilega af sjálfu sér. Langlíklegast er að hér sé bara um að ræða mar. Hins vegar, ef þetta lagast ekki af sjálfu sér á 2-3 dögum skaltu fara til læknis.

Re: Glútamín..

í Heilsa fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Það er ekkert sem bendir til þess að kreatín (eða glútamín) skaði nýrun í ráðlögðum skömmtum: http://www.mikefrancois.com/creatinekidney.htm http://www.drugdigest.org/DD/DVH/HerbsInteractions/0,3926,4045%7CCreatine+Citrate,00.html http://www.sportsci.org/jour/0001/inbrief.html Hins vegar ættu þeir sem eru með nýrnaskemmdir fyrir sennilega ekki að taka nein aukaefni sem valda auknu nýrnaálagi (öll næringarefni sem fara út í blóðið gera það að einhverju marki).

Re: æfingar, matur, öðruvísi spurning samt

í Heilsa fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Svar fantasíu er eins gott og hvað annað. Þetta eru ekki nægar upplýsingar til að gefa neitt ákveðið svar, enda sé ég að þú svarar spurningunni ekki heldur.

Re: Hvað heitir lagið?

í Rokk fyrir 20 árum, 7 mánuðum
"Something's Gotta Give með Leann Rimes kannski? Eða Something's Gotta Give með Aerosmith kannski? Eða jafnvel Something's Gotta Give með Frank Sinatra. Svo eru fleiri lög með þessum orðum í textanum en segjum þetta nóg að sinni.

Re: Þynka - Gömul Húsráð

í Djammið fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Já ég veit. Ég var að gera grín að sjálfum mér, ekki þér. Ég hafði 4 hluti í huga í upphafi en bætti svo við matnum eftirá án þess að breyta tölunni.

Re: britpop??

í Rokk fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Var notað sem samheiti yfir ýmsar breskar hljómsveitir sem komu fram upp úr 1990 sem notuðu meiri gítar en var til siðs í 80s tónlistinni sem á undan kom. Glaðlegri og melódískari tónlist en Ameríska Seattle gruggið og sótti talsvert í tónlist bítlaáranna og pönkið. Blur og Oasis voru stærstu nöfnin já, en einnig mætti nefna Pulp, Supergrass, Happy Mondays, Stone Roses, Elastica o.fl.

Re: gott æfingadæmi?

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Orku já, prótein nei. Cocoa Puffs inniheldur um 4% prótein og 47% sykur og væri algerlega næringarsnautt ef ekki kæmu til viðbætt vítamín og steinefni. Til samanburðar er td Snickers súkkulaði 9% prótein og 31% sykur. You do the math.

Re: Þynka - Gömul Húsráð

í Djammið fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Það er til þrenns konar fólk í heimi: - Þeir sem kunna að telja og - þeir sem kunna það ekki.

Re: Hjálp!

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Við vorum bara ólíkt úr garði gerðir frá náttúrunnar hendi. Ég var lítill eftir aldri og þvengmjór, stækkaði ekkert að ráði fyrr en 16 ára, fitnaði ekkert fyrr en eftir þrítugt og fékk ekki vöðva að ráði fyrr en ég byrjaði að lyfta 41 árs. Hjalti var alltaf stærstur og þyngstur eftir aldri og náði fullorðinsstærð mjög snemma. Var alltaf þyngri, beinastærri, vöðvameiri og sterkari en aðrir menn. Svo varð hann náttúrulega ennþá hrikalegri þegar hann æfði kraftlyftingar. Mér finnst þetta alveg...

Re: bólur

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Þú getur sennilega lítið gert til að fá engar bólur, en þú getur eitthvað minnkað þær. Alvarlegar bólur stafa af bakteríusýkingu í húðinni. Það er mjög góð grein um bólur á netdoktor.is: http://www.doktor.is/Article.aspx?greinid=479

Re: Hjálp!

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Ef þú ert bara 12 ára þá ertu enn að stækka, mjög hratt stundum og hægar inn á milli. Alls ekki reyna að fara í einhvers konar megrun. Það er alls ekki hollt fyrir krakka á þínum aldri nema að þau séu mjög feit. Kjörþyngd er ekki beinlínis til fyrir 12 ára krakka. Betra er að miða við stærð og mýkt bumbunnar :) Ég var svona 35 kíló 12 ára. Hjalti Úrsus æskuvinur minn var sennilega 70. Báðir vorum við í góðu formi, hvor á sinn hátt. Hins vegar er aldrei of snemmt að temja sér góðar fæðuvenjur...

Re: Hvað er besta fæðubótarefnið?

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Stærsti gagnagrunnur yfir rannsóknir í líffræði, læknisfræði og skyldum greinum: PubMed, inniheldur ekki eina einustu rannsókn þar sem minnst er á CytoVol né Nitron 5. Hver eru “virk” innihaldsefni þessara vara og hvar má finna rannsóknir á þeim? Í fljótu bragði sýnist mér CytoVol vera ósköp venjuleg amínósýrublanda, stöff sem gefur þér ekkert umfram venjulegt mjólkurglas. Nitron 5 virðist tilheyra flokki svokallaðra “Nitric Oxide Booster”. Þó að NO sé að sjálfsögðu lífsnauðsynlegt boðefni...

Re: Upptökuforrit

í Íslensk Tónlist fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Audacity er frítt, Open Source og virkar svipað og Pro Tools. Hef aðeins leikið mér í því og mæli hiklaust með því.

Re: Skyr er góður prótein gjafi en..

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Vissulega ættu flestir að minnka sykurneyslu, enda virðast heilu kynslóðirnar nærast að mestu á Cocoa Puffs, kóki, snakkflögum og sælgæti. Hins vegar ber á það að líta að rétt fyrir og eftir æfingar er gott og jafnvel nauðsynlegt að sjá líkamanum fyrir dálitlu af einföldum sykrum. Þetta er einkum mikilvægt fyrir þá sem eru að reyna að byggja upp gæðamassann, en síður fyrir þá sem eru að reyna að bræða af sér flæðimassann.

Re: Skyr er góður prótein gjafi en..

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Nei, það er alveg skaðlaust að borða mikið af skyri. En eins og fantasia segir, þá þarf að borða fleira en bara skyr.

Re: Hvert á maður að leita?

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Göngudeild Húð- og kynsjúkdómadeildar Landsspítalans er í Þverholti 18, Reykjavík. Síminn er 5436050. Leiki grunur á sýkingum er hægt að fara þangað án þess að panta tíma, eða leita til heilsugæslulæknis.

Re: Hvað er besta fæðubótarefnið?

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Hvaða fæðubótarefni (að kreatíni undanskildu) hefur verið sýnt fram á með vísindalegum rannsóknum að auki vöðvauppbyggingu? (Enn er ég ekki hvorki að tala um stera né prótein sem má auðvitað fá meira en nóg af úr venjulegum mat) Ef MsTch er ekki stytting á Meso Tech sem er einn stærsti framleiðandi fæðubótarefna í heimi þá biðst ég afsökunar. Notendanafnið + það að flestir póstar þínir hér fjalla um fæðubótarefni urðu til þess að ég gerði ráð fyrir að þú væru sölumaður slíkra efna. Ef svo er...

Re: Hvað er besta fæðubótarefnið?

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Hvað færð þú úr próteindufti sem þú getur ekki fengið úr fiski, kjöti, mjólk, hnetum, eggjum eða osti? Af notendanafni þínu dreg ég þá ályktun að þú sért bara að reyna að selja börnum óþarfa drasl. stuðla að auknum próteinsamruna innan frumaHvar lærðirðu svona bullfrasa? Farðu í líffræði í háskólanum og lærðu lífefnafræðina þína almennilega. Þetta er óskiljanlegt rugl. Vissulega geturðu fengið prótein og hitaeiningar úr dufti ef þú hefur ekki tíma eða vilja til að borða mat, en að halda því...

Re: Hvað er besta fæðubótarefnið?

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Helduru að hann borði óhollann mat og fái sér svo próteindrykk?Af hverju ekki? Það gera flestir sem þykjast vera að æfa. Þeas þessir sem eiga árskort en mæta næstum aldrei og æfa þá bara bicep curl og bekkpressu. Ef þú villt grennast þá er málið að borða hollann fitulítinn mat…Að borða fitulítinn mat er ein aðferðin til að grennast, en ekki sú eina. Nú er td mjög í tísku að grennast með kolvetnasnauðu en feitu fæði. En ef þú ætlar að byggja upp hreina vöðva (sem eru með mjög lítilli fitu) án...

Re: Spurning

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Hnébeygja. Réttstöðulyfta. Það tekur því ekki að nefna aðrar æfingar fyrr en maður hefur náð góðum tökum á þessum tveimur sem eru grunnurinn að fótastyrk.

Re: Bæta á sig massa.

í Heilsa fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Hvaða hnetur sem er. Salthnetur, pistasíóhnetur, cashewhnetur, valhnetur, heslihnetur eða hvað sem þér finnst gott. Þær eru allar svipaðar að næringargildi og fara vel í vasa.

Re: Þynka - Gömul Húsráð

í Djammið fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Nei, saltið er það eina af þessu sem skiptir einhverju raunverulegu máli. Hitt eru allt bábiljur. C vítamín skiptir engu máli við þynnku og mjólkurvörur eru alveg skaðlausar. Alkóhól er mjög vatnslosandi, þ.e. undir áhrifum pissarðu meira en þú drekkur þannig að þú endar kvöldið með minna vatn en líkaminn þarfnast. Gallinn er sá að þú tapar líka verulegu magni af söltum, bæði venjulegu salti og öðrum vatnsleysanlegum jónum með þvaginu. Þannig að ef þú reynir að drekka bara meira vatn til að...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok