Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

hbriem
hbriem Notandi frá fornöld 63 ára karlmaður
86 stig

Re: léttast

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Það er ekkert “þyngjandi” í sjálfu sér að lyfta. Lyftingar þyngja þig einungis ef þú borðar meira en þú brennir. Lyftingar eru mjög heppilegar fyrir þá sem eru að reyna að grennast af mörgum ástæðum. 1) Þær brenna fleiri hitaeiningum og lengur en önnur líkamsþjálfun. Aukin brennsla heldur áfram allt að 36 klst eftir lyftingaæfingu, en aðeins örfáar klst eftir þolþjálfun. 2) Þær koma í veg fyrir að vöðvamassi tapist þannig að þegar maður léttist er það mest vegna fitutaps eins og æskilegt er....

Re: Læri. Hjálp!

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Slit á vöðvatrefjum.

Re: Læri. Hjálp!

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Teygjur hafa engin áhrif á harðsperrur, það hafa margar rannsóknir staðfest, enda er óskiljanlegt hvernig það mætti vera miðað við nútímaþekkingu á því hvað veldur harðsperrum.

Re: Læri. Hjálp!

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Vanmeta, nei. En staðreyndin (og punkturinn sem ég var að reyna að koma að) er að teygjur hafa löngum verið ofmetnar, ekki vanmetnar. Flestir íþróttamenn hafa verið látnir teygja meira en þeir höfðu gott af. .

Re: Læri. Hjálp!

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Margt frjálsíþróttafólk þarf á liðleika að halda, geturðu séð fyrir þér hlaupara sem er að hlaupa hindrunarhlaup sem er stirður eins og stöng? Þú virðist ekki hafa lesið það sem ég skrifaði hérna að ofan: Stefnan í dag meðal íþróttafræðinga er að teygja nægilega til að mæta kröfum íþróttarinnar, geta framkvæmt hreyfingar sem hún krefst hindrunarlaust, en ekki meira en það. Aukaliðleiki skilar engu og getur ýtt undir meiðsli. Ég er 44 ára og kemst ennþá næstum í splitt og spíkat. Ekki gera...

Re: Læri. Hjálp!

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ef satt er þá er þetta fólk illa að sóa dýrmætum æfingatíma.

Re: Læri. Hjálp!

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Trúi þessu ekki. Hefurðu upphaflegu rannsóknina. Um fátt hefur verið meira rætt undanfarið meðal íþróttafræðinga og þjálfunarlífeðlisfræðinga. Ég hef fylgst allvel með þessari umræðu og hefði ábyggilega tekið eftir því ef nýleg rannsókn hefði gjörbylt öllu sem menn hafa uppgötvað á síðasta áratug og fært okkur aftur á 19. öldina. Shehab R, Mirabelli M, Gorenflo D, Fetters MD. Hart,L Thacker SB, Gilchrist J, Stroup DF, Kimsey CD Jr. Andersen, JC Herbert RD, Gabriel M. Shrier,I Bætt við 6....

Re: Læri. Hjálp!

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Nýlegar rannsóknir benda til þess að teygjur dragi ekki úr hættu á meiðslum heldur auki hana lítillega. Stefnan í dag meðal íþróttafræðinga er að teygja nægilega til að mæta kröfum íþróttarinnar, geta framkvæmt hreyfingar sem hún krefst hindrunarlaust, en ekki meira en það. Aukaliðleiki skilar engu og getur ýtt undir meiðsli. Í þessu samhengi er umhugsunarvert að í öllum boltaíþróttum er meiðslatíðni kvenna hærri en karla en þær eru almennt mun liðugri (og duglegri við að teygja). Öllum...

Re: Læri. Hjálp!

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Þvæla. Þetta er 19. aldar vitleysa.

Re: Læri. Hjálp!

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Þú getur ekki brennt fitu af ákveðnum stöðum, hvorki lærum né annars staðar. Fitan sem kemur fyrst fer síðast. Misjafnt eftir fólki hvar það er. Misjafnt eftir kynjum líka.

Re: magavöðvar

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Það er misjafnt eftir fólki. Ég hef aldrei haft neina fitu á brjóstvöðvunum svo heitið geti. Yfirleitt á karlmönnum kemur fyrst (og fer síðast) fita á neðri hluta magans og á hliðunum fyrir ofan mjaðmirnar. Sumir eru næstum eingöngu með iðrafitu og fá kúlumaga þó þeir séu skornir og æðaberir annars staðar. Á konum safnast fita oft fyrst á rass og læri en karlmenn þurfa að vera orðnir talsvert feitir til að fitna þar.

Re: Hvernig blandiði?

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Já, ok ég vissi það ekki.

Re: Hvernig blandiði?

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Varla svo stór. Hæfilegur dagskammtur af kreatíni er ca 5g eða ein teskeið. 1dL væri 20 sinnum of mikið. Ekki hættulegt, en peningasóun.

Re: Vöðvauppbygging

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Af hverju?

Re: Þríhöfðaæfing með handlóðum.

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Nei, ég fæ mér alltaf eitthvað fæðubótarefni eftir æfingar. Hvað hefur það með það að gera hvort þú borðir nóg? Hvað ertu mörgum hitaeiningum yfir dagsþörfinni? Þú þarft amk 1000 auka til að tryggja hámarksvöðvavöxt sem er 1-2kg á mánuði.

Re: magavöðvar

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ekki misskilja mig, fiskur er frábær fæða og pasta alveg sæmileg. Það er bara engin ástæða til að takmarka sig mikið þegar ætlunin er að bæta á sig massa. …eitthvað tröll sem getur varla hlaupið Ég vil benda þér á að allir bestu spretthlauparar og handboltamenn heims eru um og yfir 90kg, sumir yfir 100. Meira að segja þessir “litlu og nettu” (og eldsnöggu) hornamenn okkar eins og Guðjón Valur, Bjarki og Valdimar voru um 85kg í sínu besta keppnisformi. Fyrir langhlaup er hagstætt að vera...

Re: Geðhjálp?

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Prófaðu hjálparsíma Rauða krossins, 1717. http://raudikrossinn.is/starfid%5Fheima/hjalparsiminn%5F1717/

Re: magavöðvar

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Ég held svosem að þú sért alveg að gera rétt hvað æfingarnar varðar. Haltu lyftingunum og handboltanum aðskildum. Ekki lyfta á handboltaæfingum og ekki fara í brennsluæfingar í ræktinni. Hvað þyngdina og vöðvastærðina varðar þá ert þú að gera þessi klassísku mistök sem 90% stráka gera sem sjá engan mun. Þú ert að reyna að stækka og minnka samtímis! Það er ekki hægt! Þú segist vera að éta mest fisk og pasta. Þetta er megrunarfæði. Annað hvort ertu að reyna að byggja þig upp og bæta á þig...

Re: Brennsla?

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Eins og ratatat segir þá minnkar vöðvabrennslan ef þú étur mikið prótein en er þó alltaf einhver. Þess vegna enda langhlauparar alltaf að lokum sem 60 kílóa horgrindur sem standa varla undir sjálfum sér.

Re: magavöðvar

í Heilsa fyrir 19 árum, 5 mánuðum
Þetta er kallað að vera “skinny-fat” eða “mjór og feitur” og er ekki óalgengt meðal karlmanna í lélegu formi. Það er eðlilegt að fólk sé með einhverja forðafitu og hjá karlmönnum safnast hún helst framan á magann. Þannig er lífið. Lítil fitubumba er meira áberandi hjá mjóum mönnum með lítinn vöðvamassa. Að stunda megrun eða þolþjálfun eingöngu er líklegt til að gera ástandið verra því að þá rýrnar vöðvamassinn enn frekar, en bumban hverfur síðust af líkamsfitunni. Svarið er að bæta á sig...

Re: Lyftingar og prógramm

í Heilsa fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Ég dáist mjög að þrautseigju og fórnfýsi þolíþróttamanna eins og maraþonhlaupara, ekki síst hvernig þeir fórna líkamshreysti sinni fyrir árangur í íþrótt sinni. Ég fer ekki út í persónuníð hér. Sleppum því.

Re: Lyftingar og prógramm

í Heilsa fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Hlaupa-Hjóla-Synda númer 1 2 og 3 Aðeins ef keppni í þolíþróttum er aðalmarkmiðið. Betri leiðir eru til að ná öllum öðrum líkamsræktarmarkmiðum. Ef rauðu blóðkornin og lungun er ekki í hlutfalli við vöðvanna þá geturu sleppt því að lyfta Þvæla. Auðvelt er að ná nægilegu grunnþoli með lyftingum eða einhverjum íþróttum. Aukaþolþjálfun er flestum til lítil gagns. Maraþonhlauparar eru ekki miklir bógar í öðrum íþróttum. því hnakkalyftingar geta verið hættulegar Slys geta orðið í öllum íþróttum...

Re: Program

í Heilsa fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Ég tek undir þetta. Skipulag er grundvöllur framfara í líkamsrækt. Ég hef skrifað niður hvert einasta sett sem ég hef tekið síðan ég byrjaði, líkamsþyngd, líðan og fleira og fer reglulega yfir það til að sjá hvað ég var að gera þegar ég tók framförum og hvað ég var að gera (eða ekki gera) þegar ég staðnaði. Ekki skipta mjög oft um prógramm.

Re: Þríhöfðaæfing með handlóðum.

í Heilsa fyrir 19 árum, 6 mánuðum
Fyrir efra bak (lats, rhomboids, traps) er þessi ágæt: Handlóðaróður Fyrir neðra bak er erfiðara, en mætti prófa: Réttstöðulyfta með handlóðum Ég mundi mæla með að beygja hnén meira en gert er á þessari mynd.

Re: Þríhöfðaæfing með handlóðum.

í Heilsa fyrir 19 árum, 6 mánuðum
antaði góða þríhöfðaæfingu því hendurnar eru frekar mjóar miðað við búkinn Éttu meira.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok