Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Rækjugratín með sveppum (1 álit)

í Matargerð fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Mjög góður og “fínn” réttur. 400g. rækjur, soðnar og skelflettar 1 lítið ýsuflak (um 250 g.) 4 msk. smjör 250g. sveppir, skornir í sneiðar 2 hvítlauksgeirar, saxaðir nýmalaður pipar salt 2 msk. hveiti 2 tsk. paprikuduft 6 dl. fisksoð eða vatn 75g. rjómaostur 200g. spergilkál (helst aðeins kvistir, ekki stönglar) 1 rauð paprika, fræhreinsuð og skorin í bita 50g. nýrifinn parmesanostur Rækjurnar látnar þiðna og fiskurinn roðflettur, beinhreinsaður og skorinn í bita. 1 msk. af smjörinu brædd á...

Innbakaðir sveppir (0 álit)

í Matargerð fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Gott í saumaklúbbinn. 250g. ferskir sveppir 1 lítill blaðlaukur 200g. rjómaostur sinnep með grænum piparkornum (eða annað e. smekk) örlítið salt og svartur pipar frystar smjördeigsplötur Þýðið smjördeigsplöturnar og fletjið þær út. Steikið sveppina og blaðlaukinn, kryddið með salti og pipar. Rjómaostinum blandað saman við grænmetið og smakkað til með sinnepinu. Jafnið maukinu á deigið, leggið aðra plötu yfir og skerið rákir í þá plötu. Lokið köntunum vel með gaffli. Bakið við 225°c í 8 mín.

Ostakaka (0 álit)

í Matargerð fyrir 21 árum, 8 mánuðum
Snickers og bláber… namminamm… Snickersostakaka 8-10 heilhveitikexkökur (Haustkex) 75g. smjör 2 msk. sykur 2 Snickersstykki 250g. mascarponeostur, mjúkur 200g. sýrður rjómi (36%) 4 msk. flórsykur, eða eftir smekk 1 tsk. vanilluessens 250g. bláber (má sleppa) Ofninn hitaður í 180°c. Kexkökurnar muldar fínt, gjarnan í matvinnsluvél, og smjöri og sykri hrært saman við. Blöndunni hellt í bökuform eða kringlótt, eldfast mót og þrýst niður á botninn og dálítið upp með börmunum. Sett í ofninn og...

Múffur (0 álit)

í Matargerð fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Hér ein margra múffuuppskrifta sem ég á í fórum mínum. Banana-súkkulaði-pekanhnetumúffur 300g. bananar, vel þroskaðir 50g. pekanhnetur 50g. suðusúkkulaði 250g. hveiti 100g. hrásykur eða ljós púðursykur 1 tsk. lyftiduft 1/2 tsk. matarsódi 1/2 tsk. kanell 1/4 tsk. engifer 75g. smjör, lint 1 egg 100g. skyr (1/2 dós) Ofninn hitaður í 180°c. Bananarnir stappaðir í mauk, gjarna í matvinnsluvél. Hneturnar grófsaxaðar og súkkulaðið einnig. Hveiti, sykur, lyftiduft, matarsódi, krydd, smjör, egg, skyr...

Eftirréttur m/ döðlum og möndlum (0 álit)

í Matargerð fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Þessi eftirréttur er mjög góður. Hef reyndar ekki gert hann sjálf en mér er sagt að hann sé mjög einfaldur og fljótlegur. Hér kemur uppskriftin: 100g. rúsínur 100g. döðlur 100g. möndlur 1/2 dl. sérrí 1/2 dl. vatn 2 stór epli 4 msk. sykur 4 bollar Kellogg's kornflögur 4 msk. hveitiklíð 4 msk. púðursykur 100g. brytjað suðusúkkulaði Blandið rúsínum, döðlum, möndlum, eplum, sérríi og vatni saman og setjið í eldfast mót. Hrærið þurrefnunum saman og setjið ofan á. Bakið við 180°C í 20 mín. Berið...

Saltfiskur og pasta (0 álit)

í Matargerð fyrir 21 árum, 9 mánuðum
Ég er mjög hrifin af saltfiski og finnst gaman að bera hann öðruvísi fram heldur en með gömlu góðu kartöflunum. Þessi er voða spennandi. 400g. pasta 400g. útvatnaður saltfiskur 300g. ostur, rifinn 7 stórir tómatar 4 laukar 3 hvítlauksrif 2 grænar paprikur 1 dl. ólífuolía 1/2 tsk. pipar Skerið tómatana smátt og saxið paprikurnar smátt. Hitið olíuna í potti (má ekki verða mjög heit). Saxið laukinn og hvítlaukinn smátt og setjið út í olíuna. Látið malla í 5 mínútur. Bætið tómötunum og...

Kaldur makkarónukökuréttur (0 álit)

í Matargerð fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Um daginn fór ég í grill til tengdaforeldra minna og fékk ég æðislegan eftirrétt. Ég er ekkert allt of hrifin af makkarónukökum en þessi fannst mér góður. Algjört sælgæti. Ég fékk uppskriftina hjá tengdó og langar mig að deila henni með ykkur. 200g. makkarónukökur 1 dl. serrí eða líkkjör að eigin vali 1 dl. perusafi 1 dós perur (400 gr) 100g. konfektmarsipan 100g. suðusúkkulaði eða konfekt 2 1/2 dl. rjómi. Myljið makkarónukökurnar í skál sem þolir frost og hellið serrí/líkkjör og perusafa...

Smákökur— ein uppskrift, 7 útgáfur (3 álit)

í Matargerð fyrir 21 árum, 10 mánuðum
Um daginn rakst ég á þessa einföldu uppskrift og féll fyrir því hversu auðveldlega hægt er að gera margar mismunandi útgáfur út frá sömu grunnuppskrift. Sniðugt að gera tvöfalt deig og gera mismunandi kökur úr hvorum hluta. Nú er bara að finna sér ástæðu til að leyfa sér að baka ;) 2 1/2- 3 bollar hveiti 3/4 bolli sykur 3/4 bolli púðursykur 1/2 bolli smjör 2 egg 1 tsk. matarsódi 1 tsk. salt Hrærið öllu hráefninu saman nema hvetinu. Að því loknu skulið þið bæta hveitinu við í smá skömmtum....

Paprikumauk (3 álit)

í Matargerð fyrir 21 árum, 11 mánuðum
Fékk þessa uppskrift hjá ömmu minni um daginn. Ég prófaði þetta mauk og bar það fram með steiktum fiski. Það kemur skemmtilega á óvart. 6 grænar paprikur 6 rauðar paprikur 1 gúrka 8 laukar Ediklögur: 5 dl. edik 350g. sykur 1 msk. salt Þvoið grænmetið og brytjið það smátt. Látið það í pott ásamt 2 ½ dl. af vatni og sjóðið í u.þ.b. 15 mín. Síið vatnið frá og hellið því. Látið maukið aftur í pottinn ásamt sykri, ediki og sjóðið í 20 mín. Hellið í hreinar, soðnar krukkur og lokið þeim jafnóðum....

Jarðarberjabrauð (3 álit)

í Matargerð fyrir 21 árum, 12 mánuðum
Halló, ég fann þessa uppskrift á einni erlendri uppskriftaheimasíðu. Mér leist ansi vel á þessa hana og því þýddi ég hana og skelli henni hér inn. En ég vil taka það fram að ég hef aldrei bakað þetta en ætla mér þó að gera það innan skamms. 3 bollar hveiti 2 bollar sykur 1 tsk. salt 1 tsk. kanill 1 tsk. matarsódi 1 1/2 dl. matarolía 4 egg, þeytt 1 tsk. rauður matarlitur 560g. frosin jarðarber, þídd og safinn síaður frá 225g. rjómaostur Hitið ofninn á 180°c. Smyrjið tvö aflöng bökunarform...

Karrý-kjúklingasalat (3 álit)

í Matargerð fyrir 21 árum, 12 mánuðum
Þetta hér er ógeðslega gott. Bauð vinum í mat um daginn og var með þetta salat. Allir hámuðu það í sig með bestu lyst. 3 bollar soðin hrísgrjón 2 bollar eldaður kjúlli, rifinn niður 1/2 bolli sellerí, í sneiðum 1/4 bolli púrrulaukur,saxaður 1/4 bolli rauðar paprikur, saxaðar 1 bolli sýrður rjómi 1/4 bolli majónes 3 msk. mango chutney 2 tsk. karrý 3/4 tsk. salt 2 msk. furuhnetur 1. Blandið saman kjúklingi, hrísgrjónum, selleríi, lauk og papriku í stórri skál. 2. Blandið afgangs hráefnunum út...

Öðruvísi muffins (1 álit)

í Matargerð fyrir 22 árum
Prófið þetta! 1 1/2 bolli fínt maísmjöl 2 bollar mjólk 1/2 bolli pilsner 2 bollar hveiti 2/3 bolli sykur 2 msk. lyftiduft 1 tsk. salt 2 egg 1/2 bolli grænmetisolía 1/2 bolli rifinn sterkur ostur 1/2 bolli rauður chilipipar, saxaður 1/2 bolli grænn chilipipar, saxaður 1/2 bolli pepperoni eða önnur kryddpylsa, söxuð Blandið saman maísmjöli, mjólk og pilsner. Látið standa í 10 mín. Blandið saman hveiti, sykri, lyftidufti og salti. Blandið eggjum og olíu í maísmjölsblönduna og hrærið vel....

Pizzukássa (5 álit)

í Matargerð fyrir 22 árum
Um daginn gerði ég mat sem sló aldeilis í gegn hjá 15 mánaða dóttur minni. Það er frekar erfitt að fá hana til að borða en hún hámaði þetta í sig. Ég fékk uppskriftina hjá frænku minni og sagði hún að öll börnin hennar væru alveg vitlaus í þetta. Mæli eindregið með að þið prófið þetta. Pizzukássa 2 bollar eggjanúðlur 500g. hakk 1 laukur, saxaður 2 hvítlauksrif, pressuð 1 græn paprika 1 bolli pepperónísneiðar 1 dós pizzasósa 4 msk. mjólk 1 bolli rifinn mozzarellaostur Hitið ofninn á 175°C....

Fiskur i skyrsósu (0 álit)

í Matargerð fyrir 22 árum, 1 mánuði
Loksins er komin nýr mánuður. Þá getur maður farið að elda almennilegan mat. Eftir að hafa lifað á því sem til er í ískápnum í rúma viku er mann farið að langa til að fara út í búð og gera sér glaðan dag. Þar sem fiskur er svo dýr kaupir maður hann bara spari og nú finnst mér vera komin tími á eitthvað spari. Eða hvað? Efir að hafa rennt í gegnum uppskriftirnar mínar rakst ég á uppskrift af fiskrétt sem mér leist mjög vel á. Mig langar að deila henni með ykkur. Skyrsósa: 200g. skyr (1 dós)-...

Kartöflusalat (1 álit)

í Matargerð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Í gær var ég með grænmetissúpu í kvöldmatinn. Mér þykir alltaf gott að hafa góða súpu annað slagið. En maðurinn minn er dæmigerður íslenskur karlmaður og finnst matur ekki vera matur nema kjöt eða fiskur sé á boðstólunum. Hann fæst þó til að borða súpuna ef ég er með e-ð annað, meira spennandi með. Í gær prófaði ég uppskrift af kartöflusalati með skinku, til að hafa með súpunni. Salatið sló gjörsamlega í gegn og má því búast við að súpa verði oftar á borðum hjá mér í framtíðinni ;0)...

Leir og trölladeig (8 álit)

í Börnin okkar fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Halló allir, mig langar til að setja hér inn uppskriftir að leir og trölladeigi, sem hægt er að leyfa börnunum að leika með. Leir: 2 bollar hveiti 1 bolli salt 1 bolli vatn örlítil matarolía matarlitur Allt er hnoðað saman þar til það er orðið jafnt og fínt. Passa sig að geyma leirinn í poka, annars verður hann þurr. Svona leir var alltaf gerður á leikskólanum sem ég vann á. Hann var gerður á mánudegi og entist út vikuna ef hann var geymdur í vel lokuðum poka. Trölladeig: 2 bollar hveiti 2...

Banana- & jógúrt salat (1 álit)

í Matargerð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Ég fór í kjúkling til mömmu um daginn og fékk þetta góða salat með. Í uppskriftinni stendur að það sé gott með alls kyns kjöt- og hrísgrjónaréttum. 2 msk. möndluflögur 2 msk. rúsínur 250 ml. hrein jógúrt 250 ml. sýrður rjómi 3-4 msk. hunang 1/8 tsk. kardimommuduft 1 meðalstór banani, afhýddur og skorinn í sneiðar Setjið rúsínurnar og möndlurnar í litla skál og setjið u.þ.b. 125 ml. af sjóðandi vatni út á. Látið standa í 15 mín. og síið svo vatnið frá. Blandið möndlunum og rúsínunum við...

Salsa og Guacamole!! (3 álit)

í Matargerð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Ef einhvern langar að búa til salsa eða guacamole, þá á ég mjög góðar og einfaldar uppskriftir. Hér eru þær: Salsa 4 stórir tómatar, smátt saxaðir 1 meðalstór laukur, smátt saxaður 1 hvítlauksrif, pressað 1/2-1 chili pipar, smátt saxaður 1/2 tsk. kóríanderduft 1 msk. ferskur sítrónusafi 1/2 tsk. oreganó 1/2 tsk. salt Blandið öllu saman og kælið í ísskáp í a.m.k. 2 klst. fyrir framreiðslu. Sósan geymist í 5 daga. Guacamole 2 avokadó 1 stórt hvítlauksrif, pressað 1/2-1 chili pipar, smátt...

Kartöflur m/ grillmat (0 álit)

í Matargerð fyrir 22 árum, 2 mánuðum
Einn daginn langaði mig að prófa e-ð annað með grillmatnum en plain grillaða kartöflu. Ég fór á stúfana og gróf þessa uppskrift e-s staðar upp. 300 g. kartöflur 1 meðalstór rauðlaukur 150 g. ferskir sveppir 1 krukka Newman´s Own Salsa, medium rifinn gratínostur Skerið kartöflurnar með hýðinu í þunna báta og brúnið vel í olíu á báðum hliðum. Setjið í eldfast mót og inn í 180°c heitan ofn og bakið í 15 mín. Á meðan skerið þið sveppina og laukinn og steikið saman á pönnu, hellið salsasósunni...

Heitur réttur!! (2 álit)

í Matargerð fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Þessi er æðislegur og er ég alltaf beðin um uppskriftina ef ég hef hann á boðstólum. 4-6 brauðsneiðar 1 stór rauð paprika 1 dós grænn aspas 1-12 fetaoststeningar í kryddolíu (ég hef alltaf meira) 12 svartar ólífur, steinlausar (ég hef alltaf meira) 50g rifinn ostur 2 msk. ferskt basilikum, smátt saxað 1 1/2dl rjómi 1 dl léttmjólk gráðostur eftir smekk Rífið brauðið niður í eldfast mót. Saxið papriku og aspas og skerið ólífur í sneiðar. Dreifið paprikunni og aspasnum, fetaosti og ólífum yfir...

Grjónasalat með beikoni og sveppum (1 álit)

í Matargerð fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Þessi er frískandi og góður. Þsð finnst alla vega minni fjölskyldu. 2-3 dl soðin löng hrísgrjón 100-150g beikonsneiðar 2-3 dl ferskar eða frystar grænar baunir 250g ferskir sveppir 1 lítill laukur 2-3 tómatar steinselja Lögur: 4 msk. sítrónusafi 5-6 msk. olía salt pipar Klippið beikonsneiðarnar í ræmur, stökksteikið þær og leggið þær á pappír sem drekkur í sig fituna. Hristið saman löginn. Skolið og hreinsið grænmetið. Skerið sveppina í sneiðar og leggið strax í löginn svo þeir dökkni ekki....

Sjávarrétta-salat (0 álit)

í Matargerð fyrir 22 árum, 3 mánuðum
Svona salat fékk ég um daginn hjá vinkonu minni. Ekkert smávegis gott. 250g rækjur 100g fetaostur 100g hörpudiskur 100g reyktur lax, í ræmum 2 rauðlaukar 2 tómatar 1 icebergshaus 1 rauð paprika Plokkið vöðvann af hörpudisknum og hendið. Setjið fiskinn (þ.e. hörpudisk og rækjur) í sjóðandi vatn og sjóðið í 2 mín. Skerið niður grænmetið. Blandið öllu saman. sósa: 1 1/4dl ólífuolía 1/2dl hvítvínsedik nýmalaður svartur pipar Blandið öllu hráefninu saman. Setjið yfir salatið og berið fram með brauði.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok