Snickers og bláber… namminamm…

Snickersostakaka

8-10 heilhveitikexkökur (Haustkex)
75g. smjör
2 msk. sykur
2 Snickersstykki
250g. mascarponeostur, mjúkur
200g. sýrður rjómi (36%)
4 msk. flórsykur, eða eftir smekk
1 tsk. vanilluessens
250g. bláber (má sleppa)

Ofninn hitaður í 180°c. Kexkökurnar muldar fínt, gjarnan í matvinnsluvél, og smjöri og sykri hrært saman við. Blöndunni hellt í bökuform eða kringlótt, eldfast mót og þrýst niður á botninn og dálítið upp með börmunum. Sett í ofninn og bakað í 8-10 mínútur, eða þar til bökuskelin er svolítið byrjuð að taka lit en ekki farin að brenna. Tekin út og látin kólna. Snickersstykkin skorin í fremur litla bita. Osturinn og sýrði rjóminn hrærður með flórsykri og vanilluessens og síðan er Snickersbitunum hrært saman við. Hellt í bökuskelina og jafnað. Berjunum dreift yfir. Kælt vel.
Sá sem margt veit talar fátt