Svona er bara þróunin í þessu. Hvernig haldið þið að álitið væri ef FL. væru ennþá með DC-8??? Þetta náttúrulega stórlækkar allan kostnað við bæði þjálfun á áhöfnum, flugvirkjum og öllu fólki sem kemur nánlægt flugrekstrinum. Svo er náttúrulega eitt með FL. eins og mörg önnur félög að þau eiga mjög fáar flugvélar. Mig minnir t.d. að FL. eigi bara tvær vélar alfarið, aðrar vélar eru á annaðhvort kaupleigu eða langtímaleigu eins og t.d. fraktarinn og Condorvélin sem er núna staðsett í Boston....