Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

greatness
greatness Notandi frá fornöld 314 stig

Re: Er allur heimurinn að missa sig í BNA kjaftæði?

í Deiglan fyrir 24 árum, 2 mánuðum
Japan réðst árið 1931 ef ég man rétt inn í Mansjúríu. Árið 1933 (aftur ef ég man rétt) þá réðust þeir svo inn í Kína. Með þessu og fleiri útþenslutilburðum þá settu Bandaríkin viðskiptabann á Japan. Þegar var komið að árásinni á Pearl Harbour höfðu Japanir einungis gróflega áætlað 6 mánaða eldsneytisbirgðir til að halda hernum sínum gangandi. Til þess að tryggja áframhaldandi útþenslu ríkis síns ákváðu Japanir að ráðast skyndilega á Pearl Harbour sem var aðalhöfn Kyrrahafshers Bandaríkjanna....

Re: Kynþáttamisrétti.

í Sagnfræði fyrir 24 árum, 2 mánuðum
Ég myndi kannski vera til í að skrifa um rasismann í Ísrael/Palestínu. Sú ritgerð væri samt sem áður örugglega ekki þér að skapi. ÉG þekki ekki nægilega vel ástandið í Danmörku til þess að gera mér skoðanir á því en ég mun örugglega líta inn á það. greatness.

Re: Guadalcanal

í Sagnfræði fyrir 24 árum, 2 mánuðum
Ég skilaði henni í menntaskólanum við Sund í Kvikmyndasögu. greatness.

Re: Vangaveltur um Ísrael/Palestínu, ef.......?

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 2 mánuðum
Vissulega mun herinn aldrei vernda okkur, enda er engin vörn til gegn kjarnorkusprengjum. Allaveganna ekki eins og er og efa ég það að nýja kjarnorkuvarnaráætlunin sem Bandaríkjamenn eru að reyna að þróa núna muni hjálpa eitthvað til. Hún mun allaveganna aldrei gera það á Íslandi. Annað mál gegnir varðandi hryðjuverkaárás. Ég efa það stórlega (kannski að taka stórt upp í mig) að hryðjuverkamenn geri sér glóð úr því að hefja hryðjuverkaárásir á Íslandi. Það er auðvitað alltaf mögulegt en ég...

Re: Vangaveltur um Ísrael/Palestínu, ef.......?

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 2 mánuðum
Það er í sjálfu sér hlægilegt að stinga upp á því að rifta stjórnmálasambandi við Bandaríkin og enginn myndi fylgja því eftir. Ástæðan er náttúrulega sú að þótt að ég sé á móti stefnu Bandaríkjanna í málefnum Ísraels/Palestínu þá er það náttúrulega fyrst á stefnuskrá ríkisstjórnar Íslands að tryggja hagsmuni Íslands. Þeim er ekki tryggt ef við slítum stjórnmálalegu sambandi við Bandaríkin, það er svo einfalt. Landið myndi einfaldlega fara á hausinn við það. ' Hinsvegar þá er ég fylgjandi...

Re: Vangaveltur um Ísrael/Palestínu, ef.......?

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 2 mánuðum
Helsta ástæðan fyrir því að Sharon er að einangra Arafat núna og eins og þú segir að útmála hann sem hryðjuverkamenn er líklegast vegna þess að það á að fara að ákveða það í stríðsréttadómsstólnum í Haag þann 1 Mars hvort að rétt eigi yfir Sharon. Ef stríðsréttadómsstóllinn í Haag ákveður að gera það þá verður handtökuskipun skipuð á hann og á því að handtaka hann held ég í flestum Evrópuríkjum (ef hann fer þangað) og einnig Bandaríkjunum. Hann er þegar búinn að drepa líklegast besta vitnið,...

Re: ,,Anarchy

í Deiglan fyrir 24 árum, 2 mánuðum
Já það er falleg og göfug hugmynd að koma á einhvers konar alheimslöggu. En hver á að stjórna henni? Allir einstaklingar á hnettinum eru frá einhverju landi, hafa einhvers konar trú eða á menningarleg tengsl við einhverja trú, allir eru frá einhvers konar menningu. Spurningin er því sú, getum við sætt okkur við að aðili frá annarri menningu ráði því hvort að þorskastríð okkar við Breta sé réttlætanlegt eða ekki eða að Ísraelar megi réttlæta það að hindra flóttamönnum frá Palestínu að koma...

Re: Orrustan við Kursk: Mestu skriðdrekaátök sögunnar

í Sagnfræði fyrir 24 árum, 2 mánuðum
Stutt og laggott. Ég bjóst reyndar við lengri ritgerð en þessari þegar ég opnaði linkinn en helstu upplýsingar eru í lagi. greatness.

Re: Fá Jimmy Page og Robert Plant

í Rokk fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Rosalega væri það gaman, ég myndi mæta en örugglega fá hjartaáfall eða eitthvað. Hinsvegar þá er ekki líklegt að einhverjir af þeim muni spila saman aftur. Hér eru ástæðurnar. Árið 1995 þá hringdi Jimmy í John Paul og spurði hann hvort að hann væri til í að fara í hljómsveitarferðalag með honum og Robert Plant. John Paul sem þá var nýbúinn að gefa út plötuna sporting life með frægri rokk söngkonu var alveg til í málið. Jimmy sagðist myndu hringja í hann eftir að hann væri búinn að tala við...

Re: Málpípa Hitlers á Skjá einum

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Jæja, ég tek þetta ekki eins alvarlega en þú. Mér fannst þetta vera frekar fyndið og augljóst að honum Agli hafi verið skemmt yfir þessu. Það finnst mér hinsvegar svolítið skrýtið að maður með eins háa greindarvísitölu og var farið með í þessu viðtali skuli geta fallið svona langt niður í gryfjuna. Eitt annað ef Fischer er svona viss um að allt sé fyrirfram skipulagt í skákheiminum hvers vegna ekki að koma fram og spila. Ég meina hvernig sannar maður kenninguna sína með því að segja alltaf...

Re: Hverjir verða fyrstir á Tunglið?

í Deiglan fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Eitt varðandi geislunina út í geimnum. Í geimnum eru þrjár gerðir af geislum, eða geislavirkni öllu heldur. Það eru Alfa, Beta og Gamma geislar. Af þessum geislum eru Alfa og Beta geislar mun hættuminni en Gamma geislar en einnig mun algengari. Ég man sérstaklega eftir því þegar ég fór á fyrirlestur fyrir svona einu og hálfu ári síðan að maður þar sem talaði um ferð til mars nefndi þessa geislun. Hann sagði ef ég man rétt að þeir geimfara sem myndu fara til Mars myndu verða fyrir geislun á...

Re: Hvað er besti trommuleikar fyrr og síðar

í Rokk fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Þegar Jimmy Page var spurður að því einhvern tímann um 1980 hver af nútíma hljómsveitum hann væri hrifinn af þá gaf hann sér langan tíma til að lýsa hrifningu sinni á hljómsveitinni Rush. greatness.

Re: Hverjir verða fyrstir á Tunglið?

í Deiglan fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Ég hef ekki lesið þennan vef en ég man þegar þetta mál komst í hámæli á meðal vina minna og annara fyrir svona ári. Þá var eitthvert blað sem allir voru að emaila til hvers annars og var þetta orðið svo algengt að prófessor við einhvern Bandarískan háskóla fannst hann tilneyddur til þess að svara þessum ásökunum. Ég man eftir að lesa það eftir að það var birt í morgunblaðinu og verð nú að segja að mér finnast skýringar hans á ásökunum samsærismanna vera nokkuð góðar og trúverðulegar. Ég er...

Re: Hvað er besti trommuleikar fyrr og síðar

í Rokk fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Jú, ég hef heyrt í honum, hann er með alveg rosalega stórt trommusett líka en annað en flestir aðrir trommuleikarar sem spila með of stórt trommusett þá getur hann notað það. greatness.

Re: Bush ætlar að stórefla bandaríska herinn

í Deiglan fyrir 24 árum, 3 mánuðum
úff, þetta er mikill peningur. Mér finnst þetta lykta svolítið mikið af Írak. Það er að segja að hann er að gera sig tilbúinn undir að berja á Saddam “satan” Hussein eins og Bandaríkjamenn vilja líta á hann. En það eru náttúrulega bara getgátur. Ég held að stríð við Írak núna yrði líklega erfiðara en það var í flóastríðinu. greatness.

Re: Myndin af Karlamagnúsi.

í Sagnfræði fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Ég veit vel hvað þú ert að tala um. Reyndar þá sagði einhver maður mér sem ég var að tala við að þeir álitu að gera myndir af einhvejru guðlegu vera synd. Svona eins og að gera skurðgoð. Annars þá held ég að það sé bara ágætlega heilbrigt að hafa einhverja ímyndaða mynd af útliti hans enda er persóna hans mjög mikilvæg kristnum trúarbrögðum og jafnvel öðrum. Ég hef samt spurningu, hvernig telja t.d. kristnir múslimar að Jesú hafi litið út eða jafnvel Múslimar sem telja hann vera spámann. Það...

Re: Myndin af Karlamagnúsi.

í Sagnfræði fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Það fyndna við það er að við vitum ekki hvernig Jesú leit út. Það er hvergi til mynd af honum sem var teiknuð af honum þegar hann var á lífi og allar þær myndir sem þú sérð hjá Kaþólikkum og hverjum öðrum sem iðka að teikna myndir af honum þá getur þú verið viss um að það sé bara þeirra eigin hugmynd af því hvernig hann á að líta út. Svo er líka mikill möguleiki að mínu mati að hann hafi alveg örugglega verið dekkri á litinn en kristnir vilja láta vera. greatness.

Re: Framsækin og flott tónlist í boði !

í Rokk fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Veistu hvort að hægt sé að láta þá hafa tónleika sem þeir myndu svo spila. Þar sem maður er búinn að safna í smá tíma þá á ég gott efni sem er alveg hæft til útvarpshlustunar. greatness.

Re: Beautiful Lies..nei meinti Mind

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 3 mánuðum
oooh sorry, misskildi aðeins þráðinn. Svona er þetta ekkert fyndið:( greatness.

Re: Hvað er besti trommuleikar fyrr og síðar

í Rokk fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Já paicarinn er frábær, rosalega þéttur en líka mikið af svona földum töktum. Frábær og til þess að verða sannfærður um hæfileika hans skal bara hlusta á fireball. Frábært intro en allt með honum er gott. Leitt hvað hann hefur hinsvegar elst illa:( Annars þá er uppáhaldstrommarinn minn bæði Ian Paice og John Bonham. Svo eru líka til fullt af öðrum trommuleikurum en ég nenni ekki að gera annan lista, hef þegar gert það of oft. greatness.

Re: Little Nicky

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Adam Sandler var ágætur í byrjun en myndirnar sem hann er búinn að senda frá sér síðan the wedding singer eru ótrúlega illa skrifaðar, leiknar og húmorslausar. Ég hló aldrei að þessari mynd, þótt svo að það hafi verið gaman að sjá Ozzy Osbourne. greatness.

Re: Beautiful Lies..nei meinti Mind

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Stutt og laggott, lol. greatness.

Re: Fall Bandaríkjanna?

í Deiglan fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Ein spurning, hvað varð annars um fangana tvo? greatness.

Re: Fall Bandaríkjanna?

í Deiglan fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Nei nei maður, þú þarft ekkert að vera að afsaka þig. Ég veit hvernig það er að vera að rífast við fólk sem veit ekki hvað það er tala um. Leiðinlegt og pirrandi, ég er því alltaf fljótur að afsaka mig fyrir það ef ég geri eitthvað slíkt sjálfur. Eins og er er mikið að gera hjá mér en ég mun vissulega kíkja á bókina á undan myndinni, það er líka mun ódýrara:) En ég þakka þér kærlega fyrir að leiðrétta mig því ef enginn er til staðar til að leiðrétta mann nær maður ekki lengra en maður er...

Re: Fall Bandaríkjanna?

í Deiglan fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Þetta þykir mér furðulegt þar sem ég var að lesa um daginn netsíðu þar sem talað var um aðgerðina og svo var sagt að hún hefði mistekist. Ég vissi að þeir ætluðu sér að handtaka eða drepa tvo leiðtoga eða meðlimi hópsins. Verulega furðulegt en ég biðst innilegrar afsökunar á þessu. Maður verður víst að verða mun vanfýsnari á þær netsíður sem maður les. Jæja ég er vissulega miður mín yfir þessu. greatness.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok