Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

greatness
greatness Notandi frá fornöld 314 stig

Re: Bismarck

í Sagnfræði fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Sælir Kundera. Mig langar að fá smá rök fyrir því hvers vegna að John Fitzgerald Kennedy var lélegasti forseti síðustu aldar. Hann var ekki sá bestu að mínu mati en alls ekki sá versti. greatness.

Re: Stardhip Troopers (spoiler)

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 3 mánuðum
já, þessi mynd kom mér svo sannarlega á óvart. Ég hafði gaman af brjálæðisleikanum bak við herinn sem var auglýstur svona vel. Ágætis skemmtun. greatness.

Re: Fall Bandaríkjanna?

í Deiglan fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Ég myndi samt sem áður kalla það ósigur í orrustu en ekki stríði hversu mikið sem liðið var á móti, það er samt sem áður tap. Kannski ekki sanngjarn bardagi en bardagar og eða orrustur eru sjaldan sanngjarnar. greatness. Tókst þeim áætlunarverk sitt; nei.

Re: Besta lag allra tíma

í Rokk fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Í engri sérstakri röð: Atom heart mother, Comfortably numb. Tommy- öll platan. Dark side of the moon - öll platan. Stairway to heaven Kashmir No quarter Child in time og svo mörg, mörg fleiri. greatness.

Re: Fall Bandaríkjanna?

í Deiglan fyrir 24 árum, 3 mánuðum
ÉG vil bara minna höfund ritgerðarinnar á að Bandaríkjamenn hafa ekki alltaf farið sigri hrósandi úr stríðum sínum. Þeir töpuðu nú eins og frægt er Víetnam stríði sínu, þeir fóru heldur ekki sigri hrósandi frá Kóreu þótt svo að þeir hafi náð að setja landamærin aftur að 38 breiddargráðu. Þeir náðu ekki að koma í veg fyrir að Kína yrði rautt. Og svo töpuðu þeir lítilli orustu í Sómalíu sem varð til þess að Bandaríkjamenn flúðu í burtu með allt sitt lið. ÉG veit nú ekki hvort að Bandaríkin...

Re: The Cell: Misskilið listaverk eða poppkúltúrdrasl?

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 3 mánuðum
ÉG bjóst ekki við miklu af þessari mynd þegar ég leigði hana. Ég reyni hinsvegar ávallt að hafa opinn huga. Myndin kom mér á óvart. Hún var sjónrænt mjög flott og handritið var fínt. Jennifer var ekki beðinn um of mikið og því var leikur hennar ágætur. Hinir leikararnir stóðu sig með prýði og því ágætis afþreying. 2,5 af 5 í heild greatness.

Re: The Thin Red Line(spoiler)

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 3 mánuðum
ÉG vil bara koma fram til að segja að þetta er með betri stríðsmyndum sem gerðar hafa verið, mun áhugaverðari og betri en saving private ryan. ÉG vil samt sem áður ekki vera að tiltaka hvers vegna því ég er búinn að gera það of oft á þessum vef. greatness.

Re: The Thin Red Line(spoiler)

í Kvikmyndir fyrir 24 árum, 3 mánuðum
ÉG vil bara koma fram til að segja að þetta er með betri stríðsmyndum sem gerðar hafa verið, mun áhugaverðari og betri en saving private ryan. ÉG vil samt sem áður ekki vera að tiltaka hvers vegna því ég er búinn að gera það of oft á þessum vef. greatness.

Re: Hverjir eru í þínu mati bestu rokk hljómsveitir í heimi?

í Rokk fyrir 24 árum, 3 mánuðum
þetta eru þeir tuttugu tónlistarartistar sem ég ber mestu virðingu fyrir. 1: Led Zeppelin 2: The beatles 3: Pink Floyd 4: Deep Purple 5: Black Sabbath. 6: Uriah Heep 7: The Doors 8: Queen 9: Jimi Hendrix experience 10: The who 11: Iron Maiden 12: Kiss 13: John Lennon 14: Bob Dylan 15: Cream 16: Credence clearwater revival. 17: Eric clapton 18: Elton John 19: Bruce Springsteen 20: Guns and Roses. Og svo margir margir fleiri. greatness.

Re: Stone Temple Pilots hættir eða ekki??!

í Rokk fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Nei, ég held ekki. Ég var að lesa einkaviðtal við söngvarann í sama blaði og listinn yfir 100 bestu rokk plötur allra tíma var að finna. þar segist hann vera búinn að ná sér og að bandið sé orðið samheldnara en áður og yadda,yadda,yadda…. Og að allt sé í góðu lagi í dag. greatness.

Re: Bismarck

í Sagnfræði fyrir 24 árum, 3 mánuðum
sælir. Bara á smá glettnum nótum. Er svona nafnavenja algeng í dag í Þýskalandi:) greatness.

Re: Bismarck

í Sagnfræði fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Vá, það er erfitt að gera sé grein fyrir því hver áhrifamesti maður allra tíma var því það eru margir þættir sem koma við sögu. Við skulum ekki gleyma því að við erum að mestu leyti að tala menn sem höfðu einungis áhrif á vestræna menningu en ekki menningu Asíulanda eða Afríkulanda nema kannski óbeint að einhverju leyti. Ég ætla hinsvegar ekki að fara að tiltaka þá því ég mér þykir ólíklegt að ég gæti komist að niðurstöðu um hver ég ætti að velja. Einn mann verð ég samt að nefna sem mér...

Re: Kynþáttamisrétti.

í Sagnfræði fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Reyndar þá var það í huga mínum að fjalla aðeins um hana sem og fjöldamörg önnur tilfelli um kynþáttamisrétti en þar sem ritgerðin átti upphaflega að vera bara tvær blaðsíður þá vildi ég ekki vera að íþyngja kennaranum of mikið:) Takk samt fyrir ábendinguna. greatness.

Re: Hví mega Palestínumenn ekki verja sig?

í Deiglan fyrir 24 árum, 3 mánuðum
En félagi minn ef þú lesur sögubækurnar þá kemstu kannski að því að múslimar hafa líklegast haft umburðarlyndustu trúrbrögð í sögunni gagnvart öðrum trúarbrögðum á landsvæðum stjórnað af múslimskum yfirvöldum. greatness.

Re: Bestu tölvukaupin

í Vélbúnaður fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Það vantar að þú setur saman heildarverð fyrir það ef þú velur til dæmis það dýrasta í öllum flokkum og svo það ódýrasta sem og kannski hvað það myndi kosta sem þú myndir velja af öllum þessum flokkum. Annars gaman að fá svona verðsamanburð. greatness.

Re: Hvaða rugl er í gangi?!!!!

í Deiglan fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Mjög gott svar og ég er mjög sammála þér. Ég er ötull stuðningsmaður við málstað Palestínumanna þó svo að ég muni aldrei leggja blessun mína yfir hryðjuverk. Ég er sammála þér að þetta er líklegast eina eða allaveganna ein af mjög fáum leiðum sem geti skilað árangri. Hinsvegar þá er öðru máli sagt um hvort að þessi leið sé líkleg. Ég á erfitt með að ímynda mér að einhver leiðtogi(palestínskur) muni koma fram sem geti haldið niðri hryðjuverkasamtökum Palestínumanna. Annars þá vildirðu fá rök...

Re: Hugleiðingar um gamalt fólk.

í Deiglan fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Ég efa það ekki að þú lítir örugglega nokkuð hátt á sjálfan þig fyrir að vera að færa það sem þér finnst vera góð rök fyrir óhefðbundnum skoðunum. Mér finnst þessi grein rugl og óvirðing við eldri og dauðar og gleymdar kynslóðir. greatness.

Re: Um Hitler , femismann og ýmislegt fleira...

í Deiglan fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Ja með þessari rökfærslu má segja að Hitler hafi verið farið atómaldarinnar, þoturnar, framfara í nánast hverri einustu vísindagrein nútímans. Faðir tölvunnar meira að segja. Annars fyndin grein. greatness.

Re: Kaldhæðni sögunnar

í Deiglan fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Ég hef líka velt þessu fyrir mér oft. Það hefði vissulega verið ákjósanlegra. Ég þekki því miður ekki nægilega hvernig ástandið var á þessu svæði í lok seinni heimsstyrjaldar á milli þeirra gyðingar sem voru þá á svæðinu og Palestínumanna þannig að ég get náttúrulega ekki dæmt um það hér og nú hvort komist hafi verið að réttri ákvörðun. Vissulega hefur svipuð hugmynd örugglega komið fram hjá einhverjum í sameinuðu þjóðunum. Það sem hefur samt sem áður líklegast ráðið úrslitum er afstaða...

Re: Kaldhæðni sögunnar

í Deiglan fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Svo verður líka að líta á þetta í öðru samhengi. Allt Þýskaland var ekki hernumið né allt Frakkland. Við erum að tala um héruð. Vissulega var Rínarhéraðið mun mikilvægara Þýskalandi en héruðin sem Frakkland voru þeim. Þó svo að þau hafi verið það táknrænt. Hinsvegar þá var ekki verið að ógna fullveldi hvorrar þjóðar til lengri tíma litið. Hvorug þjóð glataði stjórn á landi sínu, Palestínumenn hafa hinsvegar gert það. Það er búið að rifta menningarleg tengsl Palestínumanna við landið sitt....

Re: Palestína-Ísrael

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Góð grein en líka mjög gott svar. Það er þörf á meira umræðu um aðild beggja aðila því eins og flestir gera sér grein fyrir því þá er þetta líklegast lengsta afmarkaða stríðsástandið úr kalda stríðinu. Einnig þá er þetta það eina sem er enn nokkurn veginn við lýði er Kórea. greatness.

Re: Palestína-Ísrael

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Loks að mínu mati nægilega skýr og vel orðuð grein um söguna bak við þetta þó svo að hún sé ekki alveg eins ítarleg og mætti hafa hana. Skemmtileg lesning samt sem áður. Ég skil vel athugasemd þína Thossinn. greatness.

Re: Hvað finnst ykkur vera besta lag Black Sabbath

í Rokk fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Black Sabbath, planet caravan iron man eru mjög góð en svo er líka fullt af öðrum lögum. Mér finnst einnig war pigs mjög gott. p.s. eru til einhverjir live diskar með black sabbath? greatness.

Re: könnun!

í Rokk fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Vantar líka möguleika eins og ég; mér finnst þeir allir jafngóðir, ég fíla ekki metallica. Ég hef aldrei hlusta á þá etc… greatness.

Re: Er mannakjöts át lausn á offjölgunarvandanum?

í Deiglan fyrir 24 árum, 3 mánuðum
Mannfjölgunarvandinn er eins og er aðeins bundinn við Asíu og Afríku,eða viss ríki í þessum löndum. Lausnin að senda börn frá vestrænum ríkjum til þessara landa er í sjálfu sér ekki vel ígrunduð tillaga. Ef börnum á vesturlöndum fækkar, eða barnafæðingum þá verður aldurssúlan þynnri á neðri stigum og á endanum verða vinnufærir karlar og konur mikill minnihluti í samfélaginu. Það er eitthvað sem við sjáum þegar fram á með áframhaldandi þróun samfélagsins á vesturlöndum. Við skulum ekki vera...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok