ofsa fín grein hjá þér, cactus, en ég sé nú ekki alveg film noirið í fargo, dirty harry myndunum og fleirum þarna. Ansi víðtækt hugtak, þykir mér, en góðar film noir myndir eru snilld. Gleymdir að telja upp mína uppáhaldsmynd sem er í noir stílnum, með jazzy tónlist eftir Joseph Vitarelli þar sem kvikmyndaunnusta mín til margra ára, Linda Fiorentino, undirförulli en amma andskotans, á í útistöðum við Bill Pullman sem þó skortir ekki undirförulsháttinn, bévaður bófinn. Ef menn verða ekki...