1 stk. blaðlaukur
1 stk. rauðlaukur
1 stk. rauð paprika
1 stk. græn paprika
Nokkrir sveppir
400 gr. pasta, nokkrar tegundir
1 poki mosarella kryddaður ostur

Sósa:

1 dós sveppaostur
1/4 rjómi
2 msk hreinn rjómaostur
2 tsk pasta og pizzakrydd

Grænmetið er britjað í frekar stóra bita og léttsteikt á pönnu, pastað soðið og sett í eldfast mót. Grænmetið er sett ofan á, ostarnir bræddir í potti og rjóminn settur út í. Rjómanum og brædda ostinum er hellt yfir grænmetið og pastað og rjómaosturinn settur ofan á. Bakað í ofni við 180°C þar til osturinn er orðinn fallega brúnn. Borið fram með ristuðu brauði og fersku salati.