Cecil B. Demented
Ég sá þessa mynd fyrst þegar filmundur var með hana hjá sér ég vissi ekkert út í hvað ég var að fara.

Þessi mynd er eftir hinn frábæra leikstjóra John Waters sem kom með snilldarverkin Pink Flamingo og Pecker.

Myndin fjallar um Cecil B. Demented sem er ungur uppreysnafullur leikstjóri sem myndi gera ALLT til að myndinn hans komist á filmu. Með ALLT þá meina ég það í orðsins fyllstu merkingu.

Ég ætla ekki að segja neitt meira um myndina til að eiðilegja hana ekki fyrir ykkur. Nema kannski mitt álit á henni sem er að hún er ein mesta snilldarmynd sem ég sá allt síðast á. Hún er fyndinn, vel gerð og skemmtileg.

Freddie