Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

gomamiso
gomamiso Notandi frá fornöld 38 ára kvenmaður
808 stig Sambandsstaða: Á lausu
Hefur áhuga á: Körlum
Vatn er gott

Re: McGonagall

í Harry Potter fyrir 18 árum, 9 mánuðum
…svo ég skjóti inn í þá er nafnið Sirius nafn á stjörnu. Hér er linkur sem þið skuluð lesa vel. Sagan um Jörund Hundadagakonung er þekkt í London svo maður veit aldrei nema að Rowling hafi veitt eitthvað þaðan, auk nafnið á stjörnunni (Sirius) og heitið (hundadagar)… Soldið merkilegt.

Re: Loka baráttan í töfraheiminum

í Harry Potter fyrir 18 árum, 9 mánuðum
…eða það :O), var alveg búin að steingleyma þeim. Og tattúin?…vá hvað maður var mikið inn í þessum heimi…

Re: VAr að fá nýjar fréttir!!!

í Harry Potter fyrir 18 árum, 9 mánuðum
HAHAHAHAHA!…þú ert svo fyndinn. Ég dýrka þig alveg út af lífinu. Allt þetta vit og gáfurnar sem þú hefur í hausnum hlýtur að hafa áhrif á hálsinn á þér. Þú ert alveg yndislegur gæji…24 ára segiru? já, en þú átt langt í land með kurteisi og rökstuðning, en þú ert ungur enn og vittu til, þér tekst það einn daginn. Vertu bara þolinmóður og ekki gefast upp elskan, og mundu að við á huga munum alltaf reyna að beina þér á rétta braut. Við erum alltaf hér þér til halds og trausts, alltaf… Kær...

Re: Endurkoma!

í Harry Potter fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Mér finnst alveg merkilegt að við skulum hafa skrifað svipaða grein á liggur við sama degi :O) En flott grein! ;O) Gaman að sjá hvernig aðrir nördar eru. Maður heldur alltaf að það sé enginn jafn slæmur og maður sjálfur, en svo poppar einhver upp. Ég var til dæmis aldrei svona rosalegur safnari þó mér hafi fundist HP-myndir á desktopnum gera mig að svakalegum HP nörd. Ég náði aldrei að mana mig upp í senda Rowling bréf. Hélt að hún myndi hlægja að bréfinu mínu (lágt sjálfsmat…), þess vegn...

Re: Loka baráttan í töfraheiminum

í Harry Potter fyrir 18 árum, 9 mánuðum
hahaha, JÁ! Við eigum eftir að éta þessar myndir, bita eftir bita og tyggja þær vel áður en við dæmum þær. …það verður gaman.

Re: Loka baráttan í töfraheiminum

í Harry Potter fyrir 18 árum, 9 mánuðum
ójá, er svo sammála þér. Ég er núna að lesa allar bækurnar upp á nýtt bara til þess að endurupplifa þessa spennu áður en sú seinasta kemur út. Ég er meir að segja búin að vera með herping í maganum af spennu undanfarið, mig hlakkar svo svakalega til. En jú, ætli maður felli ekki nokkur tár þó um dauðan hlut sé að ræða. Ég las þessar bækur sjálf þegar ég var 11-12 ára. Líf mitt var í algjöru rugli og ég var farin að einangra mig rosalega. Þegar Harry Potter kom út þá fór ég inn í herbergið...

Re: Loka baráttan í töfraheiminum

í Harry Potter fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Vá já! Það er alltaf leiðinlegt að lesa lokakaflann í góðri bók. En kannski kemur hún með meira krassandi :O)

Re: Fréttir 18. júní

í Harry Potter fyrir 18 árum, 9 mánuðum
Laugavegur eða Austurstræti… Ég hef nú alltaf mætt (eða pabbi fyrir mig þegar ég vissi ekki af þessu…yeah, I know, lame)…niður á laugavegi. Hefur alltaf verið siður hjá okkur pabba að hjóla þangað og bíða í röðinni. En það er spurning hvort maður brjóti upp siðinn og fari í Austurstrætið…hmmm…

Re: óraunverulegur verleiki

í Rómantík fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Það er ekkert nema frábært að þú skulir hafa skrifað þessa grein! Ég hef skrifað grein hér á huga um kynferðisfbeldi sem ég lenti í og veit að það er rosalegur erfitt að skrifa svona. En það er léttir að sjá jákvæð svör frá þroskuðu fólki, og einnig þeim sem hafa lent í svipuðum astæðum. Ég held að það versta sem ég þurfti að þola þegar ég var að styrkja sjálfstraustið mitt var að enginn skildi tilfinningar mínar. Þær blönduðust allar saman í einn hrærigraut og gerðu mig ráðvillta. En ég...

Re: uppáhalds setningin þín?

í Kvikmyndir fyrir 18 árum, 10 mánuðum
ójá! …ég varð að telja orðin sem byrja á V… Orðafjöldi: 133 Orðafjöldi V: 48 %: 36% ræðunar eru orð sem byrja á V… soldið kúl að sjá þetta svona :OP

Re: hvað mynduð þið gera?

í Rómantík fyrir 18 árum, 10 mánuðum
nei, en það er það í augum margra. Þetta er innprentað í okkur frá blautu barnsbeini. Um leið og fólk trúlofar sig þá búast margir við giftingu í kirkju síðar meir.

Re: Ekkert smá sætt :D

í Rómantík fyrir 18 árum, 10 mánuðum
æ, en sætt ;O) Minn er einmitt svona rómó þegar hann veit upp á sig sökina eða einhvað sérstakt er í gangi. Reyndar lenti ég í því eitt skiptið að panta ferð til vinkonu minnar út í Svíþjóð og hafði ekkert rætt það frekar við unnustann. Ég keypti miðann og sagði honum það eftir á, hann var auðvitað rosalega svekktur því þá var ég einmitt úti 3.júní (þá 2 ára afmælisdagurinn okkar). Ég eins og hálfviti var búin að steingleyma því :O/ Alla ferðina rifumst við í símanum um alla minnstu hluti og...

Re: uppáhalds setningin þín?

í Kvikmyndir fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Vandetta: Voilà! In view, a humble vaudevillian veteran, cast vicariously as both victim and villain by the vicissitudes of Fate. This visage, no mere veneer of vanity, is a vestige of the vox populi, now vacant, vanished. However, this valorous visitation of a by-gone vexation, stands vivified and has vowed to vanquish these venal and virulent vermin van-guarding vice and vouchsafing the violently vicious and voracious violation of volition. [carves V into poster on wall] The only verdict...

Re: American History X (1998)

í Kvikmyndir fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Uppáhalds myndin mín ;O)! Er á topp 10 listanum, verulega góð.

Re: Forðist "Commando" á DVD

í Kvikmyndir fyrir 18 árum, 10 mánuðum
vá hvað ég lenti einmitt í því fyrir viku síðan að kaupa DVD myndir á 1000 kr. bæði í BT og Bónus. Við keyptum 2 Clint Eastwood myndir (eigum The good, The bad and The ugly) og vorum rosalega ánægð. En nei… Er ekki búið að stytta myndirnar um 1 KLUKKUTÍMA!!! Ég skil ekki svona rugla. Tilhvers að gera þetta við gamlar myndir sem er þegar búið að gefa út hundrað sinnum?! Þetta er bara eyðilegging á fornminjum!

Re: hvað mynduð þið gera?

í Rómantík fyrir 18 árum, 10 mánuðum
1. Ef ég væri manneskjan sem segði “nei” þá væri ástæðan einföld. Trúi ekki á Guð og sé engan tilgang í að binda einhver heit í hans nafni. 2. Hryllilegt að gifta sig í dag. Meiri borganir af hinu og þessu… 3. ..ekki rétti tíminn …en hinsvegar þá er ég og unnustu minn “trúlofuð”. Við fengum okkur hringa að ganni, bara svona upp á lookið ;O). Viljum hvorugt giftast.

Re: Aldur?

í Rómantík fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Ég byrjaði í mínu fyrsta og alvarlega sambandi þegar ég var 16 ára (17 aldursári), 3 júní. Unnusti minn var á 19 (20 aldursári) og við erum enþá saman eftir 3 ára samband :O)

Re: Fantastic Four: Rise of the Silver Surfer, SPOILER

í Kvikmyndir fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Já, fyrst þú minntist á lækningu þá má enn og aftur til gamans geta í sambandi við Silver Surfer að… “…He can heal living beings (though he cannot raise the dead)”-wikipedia Sem er nú enn ein villan sem að Stan Lee lætur óáreitta í myndinni. Það skal bara enginn segja mér það að Invisible girl hafi EKKI verið dauð þarna í lok myndarinnar.. total crap. Eins og sagt er þarna í klausunni þá getur SS læknað særða…afhverju í andskotanum gerði hann það ekki strax um leið og hún særðist… svona rugl...

Re: Byssuþjóðin

í Deiglan fyrir 18 árum, 10 mánuðum
þessi þjóð er svo að ganga frá sér… merkilegt að Bush sé ekki búinn að senda eina kjarnorkuflaug á Írak… Að þessi maður hafi verið endurkjörinn sýnir fávisku flestra í Bandaríkjunum um sýna eigin stjórn. “…don't ask what you can do for your country, ask what the country can do for you…uu…”

Re: STRÆTÓ!

í Deiglan fyrir 18 árum, 10 mánuðum
Ég var ögn pirruð þegar ég skrifaði þessa grein en það sem ég er að ýja að eru þessar stöðugu breytingar á Strætó. Maður er varla búinn að læra á nýtt kerfi og þá kemur nýtt, oftar en ekki til hins verra.

Re: Krakkar í dag og áður

í Börnin okkar fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Já, nokkuð til í þessu hjá þér. Smá svona, ákafi, á köflum… En ég verð að segja að það er allt í lagi að borga börnum fyrir eitthvað visst verk. Þ.e.a.s. litla systir mín (10 ára) fær áskrift fyrir Syrpuna ef hún tekur upp úr uppþvottarvélinni þegar þarf. Er það ekki sanngjarnt? Væri eitthvað betra að láta hana fá þetta frítt? Hvað væri hún þá að læra? Fyrir mitt leiti þá finnst mér þetta ágætis leið til þess að sýna börnum að maður fær ekki neitt nema að vinna fyrir því. Kenna þeim að virða...

Re: Skólabúningaskylda...

í Skóli fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Fyrir mitt leiti þá er ég að vissu leiti sammála því að skólabúningar verði skylda í skólum. Ég tek eftir þessu sjálf í skólanum hjá litlu systur minni. Hún hefur sífelldar áhyggjur af því hvernig hún klæðir sig og lítur út í skólanum (nota bene, 10 ára). Hún var gráti nær í símanum við mömmu í gær af því að ég kom ekki með bláan bol sem hún vildi fara í á kóramóti sem hún er á. Og ég leyfi mér alveg að segja að þessar stelpur sem maður sá þarna voru svo uppteknar af öllu útliti að hinar sem...

Re: Vegna greinarinnar um Self-Harm

í Tilveran fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Myndiru sem sagt ekki labba til manneskju sem væri að skera sig og segja henni að hætta og reyna að fá hana ofan af því sem hún er að gera? Ef þú gerðir það þá væri það merki um að þér væri ekki sama og manneskjan sem er að skaða sig skynjar það. “Þarna er maður sem vill ekki að ég skaði mig, vill greinilega hjálpa mér og er ekki sama um það sem ég er að gera.” Stuðningur frá öðrum skiptir miklu máli en auðvitað er sjálfstraustið það eina sem getur komið fólk útúr svona. Ég skil vel mál...

Re: Vegna greinarinnar um Self-Harm

í Tilveran fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Margt til í því sem þú ert að segja. Að meiða sjálfan sig er náttúrulega veiklyndi, en þá á andlega sviðinu. Fólk finnur einmitt fyrir vanmætti andlega og reynir að koma honum í líkamlegt form, í það form sem það höndlar sársaukann betur. Það er bara mjög rökrétt, mannsheilinn er undarlegt fyrirbæri og þau taugaboð sem hann sendir beinast auðvitað að sársauka staðnum þar sem manneskjan skar sig. Hversu oft hefur maður ekki bitið í vörina/kinnina eða klipið sig til þess að dvína sársaukann er...

Re: self-harm...í von um að koma í veg fyrir að fókl dæmi vitlaust

í Tilveran fyrir 18 árum, 11 mánuðum
Vá, fólk! Það mætti halda að meirihlutinn af fólki hérna átti sig ekki á því um hvað þetta snýst. Í fyrsta lagi er verið að minna fólk á hversu mikið vandamál þetta er. Bæði vegna þess hvað fólki finnst þetta vera töff (það eru einstaklingarnir sem vilja athygli) og hvað fólki líður illa og finnst þetta ekki töff. Í öðru lagi er hér manneskja sem er að segja frá sinni reynslu og vara fólk við svona rugli og vera ekki að dæma útfrá eigim skoðunum. Ef þessi manneskja hefði viljað athygli þá...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok