Þessi mynd hefur verið hjá mér í miklu uppáhaldi síðan ég var gutti. Alveg hressandi old time Schwarznegger með smekklegum hasar.

En NEIII þessir forsjáhyggju asnar í Hollywood eru gjörsamlega búnir að eyðileggja þessa DVD útgáfu.

Ég skellti mér í BT um daginn og fékk þessa mynd 1000 kr.
Skellti henni í tækið með með popp og kók í hönd.

Svo byrjaði myndin með atriðinu þar sem ruddarnir aka um á öskubíl, stopa hjá gaur sem var tagetið og taka upp Uzi.
Þeir plaffa hann niður og svo búið…
Ha neiii… það er búið klippa atriðið þar sem bófinn rölti að dauða gaurnum og skaut hann aftur til að ver örugglega viss um hann væri dauður. Þið vitið hvert ég er að fara.

Svona var myndin út í gegn, búið að klippa út allt ofbeldi og myndin gersamlega handónýt.
Comone, þessi mynd er rated 18 ára. Og allt saklaust ofbeldi er kippt út, for crying out loud :(

Afhverju er þetta gert?? Afhverju gera menn svona??
Ég var svo fúll að ég ætla að skila þessari mynd aftur í BT. alveg sama hvort ég fæ endurgreitt eða ey.

Eins gott að ég á þessa mynd á VHS sem ég tók upp af SÝN í gamla daga.. óklyppt og hressandi :)

yes.. don´t buy this cutted shit.