Meginmálið er það að Enska knattspyrnusambandið ákvað ekki að gefa Hunt bann eða slíkt enda ekki ástæða til, af myndböndum að sjá er þetta ekki viljaverk, ÞÓ Hunt hefði alveg getað hoppað úr þessu til að vernda markmanninn. Það sem menn verða hins vegar að átta sig á er að í fótboltanum eru menn sem vilja vinna og þeir leggja sig alla fram um það og þegar menn sjá hugsanlegt færi á að ná boltanum, hvort sem það er í tæklingu við útileikmann, taka lausan bolta, ná bolta á undan tæklandi...