Hæ hó hó! :)

Ég sendi hér skeyti um daginn um að ég væri á leið til USA að kaupa svona pakka og bað um leiðbeiningar um verslanir. Fékk góð ráð hér og takk fyrir þau.

En það æxlaðist svo að ég komst ekki til USA sökum anna - en fann leið til að koma einni slíkri til landsins, kemur í dag/morgun. Er ekkert að verða smá vitlaus að bíða eftir “mínum jólum” :) Þá er að taka sér frí milli jóla og nýárs og læra á gripinn :)

Það sem ég keypti var

Canon EOS 10D
Canon 17-40 f4 L linsa
Grip (og auka minni)
Sandisk 512mb ultra II
Sandisk 256mb ultra II

Svo Lowepro taska, kortalesari, filterar og ýmislegt smálegt. Endaði í $2800 með $88 DHL hraðsendingu innan USA.

Tók reyndar ekki þrífót (vildi ekki hafa þetta OF umfangsmikið) eða flass, redda því hérna heima.

- Gummi