Hann asnaðist til að klúðra því Jæja, loksins kom að því! Ben Affleck asnaðist til að klúðra ástarsambandi hans og Jennifer Lopez. Mér fannst þetta persónulega dáldið sjokking því að maður hefði nú haldið að nú væri hann kominn framhjá hættunni á að klúðra sambandinu, nú þegar þau voru trúlofuð, en nei. Þannig er málið að Ben er nú búinn að halda framhjá J.Lo! Það var þannig að hann var í Vancouver í Kanada með félaga sínum, leikaranum Christian Slater. Ég las þetta í The National Enquirer um daginn og mig minnir að sagt hafi verið að Christian hafi verið þarna í Vancouver við tökur á kvikmynd, hinsvegar man ég ekki hvað var sagt að Ben væri að gera þarna! En allavega, Þeir semsagt fóru á einhvern matstað í byrjun kvöldsins og svo fóru þeir á nektardansstað þar sem að Ben fékk kjöltudans frá einni dansmeyjanna. Ein af þeim leiddi Ben inn í herbergi, einhvers staðar í bakhluta staðarins og þar náðist á öryggismyndavél Ben að hafa mök við þessa dansmey. Stuttu seinna var staðurinn morandi í nöktum dansmeyjum og fyrr en varði hafði Ben haft mök við aðra dansmey. Þá var þetta orðin algjör orgía og brjálæði. Eftir það fóru þeir á hótelherbergi Christians og með dansmeyjar með sér þangað. Þetta náðist á mynd allt saman. Ja, þarna gerði Ben alveg hroðaleg mistök. Ég meina oh my god, hvernig getur hann þetta þegar hann hefur J.Lo? Hann er brjálaður! Að gera eitthvað svona þegar hann hefur J.Lo, the one babe to rule them all! Hann er nú meiri djöfulsins heimskinginn! Hann er samt góður leikari. Þarna klúðraði drengurinn þessu rækilega!
hvað finnst ykkur um þetta?
Kv, Yaina