Ég verð bara á fá smá útrás hérna!
Sko..ég kynntist æðislegum stráki fyrir tveimur vikum. Við byrjuðum að hittast og ég var svo ánægð…ég hef aldrei átt í svona “sambandi” við strák áður…hef alltaf bara átt svona góða vini en aldrei svona náð góðum tengslum við þá. OK…ég var búin að bjóða honum heim til mín, hann hitti foreldra mína, við vorum að hittast gegt oft, fórum í bíó saman…eftir að ég kynntist honum þá leið mér bara eins og ég væri fullkomnasta manneskja í heimi! hef aldrei verið með neitt gott sjálfsálit nema núna…þá bara fór það úr mínustölu upp í plús tölu..ég var svo ánægð með mig og í hvert skipti þegar að ég horfði í spegil sá ég alsæla fallega stelpu sem átti svo margt gott í sér, svo saklaus, svo hreykin af sjálfri sér, áttif ramtíðina fyrir sér og bara vá…hún var æðsisleg :) ok…so hérna eitt kvöldið þá var vinkona mín að tala við vin þessa stráks sem ég var búin að vera að hitta…þá voru þeir eitthvað að dunda sér heima hjá þessum stráki…köllum bara strákinn X og vin hans Y…Y er lika besti vinur minn og kynntist X í gegnum hann…ok..ég hafði ekki heyrt í X síðan á þriðjudaginn og það var sunnudagur…ég sendi honum tvö sms en hann svaraði aldrei.
Svo var vinkona mín (köllum hana U) að tala við Y í símann og Y sagði við U að X væri bara allt í einu hættur að vera hrifinn af mér og hann vissi ekkert ástæðuna…U sagði mér það svo sem X hafði sagt Y…soldið flókið að útskýra…en kommon! Drengurinn gat ekki sent mér sms eða hringt í mig og láta mig vita að hann hefði engan áhuga! hann lét mig bara bíða eftir að hann sendi mér svar sem hann aldrei gerði! lét svo vinkonu vinar síns um það að láta mig vita! eg vissi ekkert hvað ég átti að gera…hvort ég ætti að hlaupa út úr húsi vinkonu minnar og fara að hágráta eða sitja þarna áfram og bara segja: já ok…og hlægja eins og mér væri alveg sama…allavegana..ég valdi seinni kostinn…sat bara þarna…leið mjög illa…svo sagði ég bara: æjj..ég verð að fara…er soldið þreytt….fór svo heim náði í pening og fór út í sjoppu og keypti mér helling af nammi…át það eins og brjálæðingur og fékk svo illt í magann :S
ég geymdi tárin þangað til að ég fór að hátta og lagðist upp í rúm og breyddi sængina upp fyri haus og fór að hugsa ógeðslegar hugsanir um sjálfa mig…lagðist hálf partinn í þunglyndi…núna þegar að ég lít í spegilinn sé ég bara ógeðslega stelpu sem á sér ekkert líf!
Kommon..hvað gerði ég vitlaust, hvað er að mér? Ég vil bara fá að vita hvað ég gerði rangt!!!! Hafa fleiri stelpur lent í svona? :S mér líður svo illa…var hérna í skýjunum einn daginn þvílíkt ástfangin en svo bara daginn eftir er komin haturstilfinning í mig og bara nánast langar til þess að bitch slappa drenginn!!! hvað er málið með að strákar hætti bara allt í einu að hafa samband?!?!?!?!?! Ég vil fá svör!!!
Afsakið pirringinn bara er gjörsamlega eitt spurningamerki!!!
Aqulera

p.s. ég er ekki að ráðast á alla stráka bara veit að sumir strákar eru svona….