Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Menntaskólaval

í Skóli fyrir 21 árum
Já, ég hef nú reyndar þurft að fara með strætó síðustu daga eftir að hesturinn minn festist í kindagirðingu og heltist.

Re: Menntaskólaval

í Skóli fyrir 21 árum
Ég ætlaði alltaf í MH, en svo kom að vissum tímapunkti hjá mér að ég var algerlega ákveðinn í að fara í MR. Ég hef ekki enn séð eftir þeirri ákvörðun. Félagslífið er ótrúlega virkt, enda tvö nemendafélög, námið er nokkuð strangt en það er ekkert nema goðsögn að maður geri ekkert annað en að læra þegar maður er í MR. Bara að vera nokkuð samviskusamur og passa að heltast ekki úr lestinni. Besti undirbúningurinn fyrir háskólanám, það er alveg klárt.

Re: Menntaskólaval

í Skóli fyrir 21 árum
Ég þekki mjög vel manneskju sem var í heimavistarskóla, Laugavatni, og ég heyri að þetta sé frekar mikið sukk. Það er náttúrulega heldur lítið eftirlit og engir foreldrar á staðnum sem þú þarft að leyna neinu fyrir, þó það sé mismunandi hjá hverjum fyrir sig hvernig foreldrarnir taka á drykkju og þannig.

Re: KORKA-MOÐRINGJA KORKURINN!!!!

í Sorp fyrir 21 árum
Já… mig langar í smáköku. Ég segi já.

Re: Er Rokkið Dautt??

í Músík almennt fyrir 21 árum
Já, ok. Missti þarna aðeins úr samhengið, tók heldur ekki að þú værir líka með móðursvarið.

Re: Er Rokkið Dautt??

í Músík almennt fyrir 21 árum
Metallica er svolítið annarrar kynslóðar en Deep Purple, Led Zeppelin og Black Sabbath. Reyndar er Black Sabbath líka tæpum tíu árum á eftir DP og LZ en líka rokkið orðið þeim mun meiri metall. Ég kemst nú reyndar ekki hjá því að minnast á að John Lennon leit á Ticket to Ride sem fyrsta heavy metal lag sem gefið var út (smá útúrdúr).

Re: Er Rokkið Dautt??

í Músík almennt fyrir 21 árum
Rokkið er langt í frá dautt. Það er bara annað. Yfirleitt tekur fólk það t.d. ekki jafn alvarlega í dag og á hippatímabilinu. Hlutur eins og Woodstock mundi aldrei gerast í dag. Einhvern veginn er hippabyltingin bara búin og fólk svona farið að róa sig, fara aftur að læra og vinna og tónlistin í stíl við það. “Upparokk” eins og The Strokes og Franz Ferdinand dæmi um það. Samt má finna alls konar psychedelic tónlist enn þá, svo ekki sé minnst á þunga tónlist. Gullöldin sk. er tímabil,...

Re: Er Rokkið Dautt??

í Músík almennt fyrir 21 árum
Já, það er rétt. Þetta gerðist ekki allt bara einn daginn í snögglegri rokkbyltingu. Þróunin í átt til rokkmenningarinnar var að eiga sér stað allan fyrri hluta 20. aldar. Jazz var til dæmis “tónlist djöfulsins” í augum sumra þeirra íhaldssamari og þótti nú heldur framúrstefnuleg í heimi þar sem varla neitt var áberandi á heimsvísu nema tónlist klassísku tónskáldanna.

Re: tónlist og tíska

í Tíska & útlit fyrir 21 árum
Þetta er náttúrulega rosaleg einföldun hjá þér svo ekki sé meira sagt. Hér eru til miklu fleiri flokkar og miklu meiri og fleiri tilbrigði innan hvers flokks. Ég tel mig rokkara (þó jafnvel lengra út í hnakkann en margir rokkarar) en hef hvorki sítt hár né geng í hljómsveitarmerktum bolum. Mér finnst samt alveg forkastanleg sú fullyrðing þín að rokkarar hugsi minna um útlitið en aðrir, en þetta er auðvitað bara fáránleg fullyrðing. Það er heldur ekkert “nú til dags”. Útlit og lífsstíll og...

Re: Msn...

í Netið fyrir 21 árum
Já, það er einmitt svona rugl (ekki endilega alveg svona rugl, en í þessa veruna) sem JReykdal er búinn að vera að reyna að sporna við á korkunum, en svo er því hleypt inn á greinarnar…! Nei, áframhald á svona löguðu gengisfellir bara huga sem málefnavef og ekki síst minnkar það þá notendur sem senda það inn.

Re: Msn...

í Netið fyrir 21 árum
Hahaha. Ég biðst afsökunar, en ég get ekki annað en opnað svarið með smá hlátri. Þegar ég les þessa grein og svarasvör greinarhöfundar ímynda ég mér… stelpu í 9. bekk sem eyðir trúlegast of miklum tíma á MSN og of miklum peningi í Dieselbuxur og meik. Greinin sjálf er nú alveg sök sér, en það fyndnasta er þessi vörn sem höfundur fer í við öllum svörunum, með heldur misheppnuðum tilraunum til þess að leyna því hve móðguð hún er. Útúrsnúningar og almennt mjög óþroskaðar röksemdafærslur. Ætti...

Re: SS auglýsing

í Tilveran fyrir 21 árum
Uppþvottalögur þ.e.a.s. - svona ef einhverjum dytti í hug að koma með hina bráðgáfulegu og hnyttnu athugasemd að þvottefni notist nú í þvottavélar.

Re: SS auglýsing

í Tilveran fyrir 21 árum
Mér finnst þetta álíka heimskuleg auglýsing og ef þvottaefni væri auglýst með orðunum: “Auðveldara að vaska upp, meira að segja fyrir konuna.” Ekki einu sinni almennileg tilraun til að koma til móts við karlrembuna.

Re: Hægri = frjálslyndi -Ósatt!

í Stjórnmál fyrir 21 árum
-6.88 og -6.15 þ.e.a.s.

Re: Hægri = frjálslyndi -Ósatt!

í Stjórnmál fyrir 21 árum
Ég er, nokkurn veginn eins og ég bjóst við, bara ansi vinstrisinnaður og frjálslyndur: 6.88 6.15

Re: Hægri = frjálslyndi -Ósatt!

í Stjórnmál fyrir 21 árum
Átti að vera “frjálslyndi”, ekki “frjálslyndur”

Re: Hægri = frjálslyndi -Ósatt!

í Stjórnmál fyrir 21 árum
Ertu nú alveg viss um að þú vitir hvað þú ert að tala um? Liberalism þýðir nú einfaldlega bara frjálslyndur og libertarianism frjálshyggja. Frjálshyggja er ákveðin pólitísk afstaða sem snýst almennt um að takmarka skuli ríkisvald við verndun eignarréttarins. Frjálslyndi er afstaða sem snýst um að persónulegir hlutir, s.s. kynlíf, trúmál og siðferðismál séu að miklu eða mestu leyti utan verkahring ríkisins að grípa inn í. Þetta með flokkaheiti er svo allt annað mál. T.d. má benda á danska...

Re: Joey Jordison stórlega ofmetinn

í Tilveran fyrir 21 árum
Já, leiðinlegt þegar trommutextarnir verða of einfaldir. Geri ráð fyrir að þú hafir óvart sagt þetta í staðinn fyrir “takta” ;)

Re: Ég hata Apple

í Tilveran fyrir 21 árum
Það er ótrúlega mikið af fólki sem gengur um með massaða Sennheiser heddfóna um hausinn.

Re: "allt í drasli"

í Tilveran fyrir 21 árum
Ég lít nú varla einu sinni á Þak yfir höfuðið sem þátt, frekar bara fasteignasíðurnar í ljósvakaformi.

Re: Kurt Donald Cobain

í Rokk fyrir 21 árum
Hvers vegna í ósköpunum eru stjórnendur tónlistaráhugamálanna enn að hleypa inn þessum greinum um Kurt Cobain? Ef ég mundi senda inn grein um eitthvað á Deigluna eða hvað sem er um eitthvað sem væri búið að kovera svo gjörsamlega með öðrum greinum, ekki bara fyrir löngu heldur líka nýlega, þá efast ég um að hún yrði samþykkt. Það ættu nú að vera einhver takmörk fyrir því hvað efni greinanna er. Þetta er ekki einu sinni svo merkileg eða yfirgripsmikil grein.

Re: iPod

í Tilveran fyrir 21 árum
Hmm… þú hefur bara ekki tekið eftir þessu fyrr en þú fermdist eða eitthvað, en t.d. í menntaskólunum er þetta allsráðandi og hefur verið í nokkurn tíma. Síðasta spurningin er nú alveg fáranleg, auðvitað getur fólk ekki fengið sér mismunandi gjafir, lýðurinn hefur nefnilega ekki sjálfstæðan vilja.

Re: páfinn

í Tilveran fyrir 21 árum
Ég man nú ekki betur en að allir dýrlingarnir hafi verið í mannslíkama…

Re: Er skák íþrótt?

í Hugi fyrir 21 árum
Það að fólk viðurkenni mistök sín réttlætir þau ekki…

Re: Veggjald ,, td Borga fyrir það að fara til hafnarfjarðar = landamæri mætti segja

í Tilveran fyrir 21 árum
Nákvæmlega! Ég borga ekki einu sinni svo mikið í strætó til að fara í skólann á morgnana (þegar ég nota strætómiða) og þykir mér þó nóg um. Ætli strætógjöldin myndu hækka líka?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok