Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Ógeðslegt bögg varðandi samræmdu

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Það eru ákveðnar lágmarkskröfur sem menntamálaráðuneytið setur til þess að komast inn á stúdentsnámsbrautir. Þeir eru samt ekkert endilega að skipta sér svo mikið af því og sérstaklega skólar eins og MH hafa verið þekktir fyrir það að fara aðeins fram hjá reglunum. Allir eiga rétt til framhaldsnáms sem lokið hafa grunnskóla, og þar eru engar lágmarkskröfur. Hins vegar er ekki þar með sagt að allir hafi rétt á því að fara á stúdentsnámsbraut, til þess eru almennar námsbrautir og núlláfangar -...

Re: Schnabbi das kleine Krokodil

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Hahaha, nei, það er nú gott. Nóg er af hnakkaskapnum fyrir.

Re: Schnabbi das kleine Krokodil

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Þetta er gamalt þýskt barnalag teknóað upp, verslóvæðingin holdi klædd. Heyrði þetta þrisvar í þýskutíma og langaði að æla. Skondið fyrst samt.

Re: að læra fyrir stærðfræðipróf...?

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Já, ég líka… þ.e.a.s. þetta fyrsta. Svo minnist ég á tungumál að auki, geri kannski ekki nógu skýra grein fyrir því.

Re: að læra fyrir stærðfræðipróf...?

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Það er nú alveg óþarfi að gera lítið úr þeim fögum. Tungumálin eru helvíti mikið meira en páfagaukalærdómur, svo eru nú reyndar margar raungreinarnar lítið annað en páfagaukalærdómur. Þessi helvítis utanbókarlærdómur er alls staðar.

Re: að læra fyrir stærðfræðipróf...?

í Tilveran fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Jú, veistu, ég er að gera þetta einmitt núna.

Re: Er Rokkið Dautt??

í Músík almennt fyrir 20 árum, 11 mánuðum
Ég efast engan veginn um það.

Re: Herkænskuleikir

í Tilveran fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Mér sýnist nú líka C&C-/herkænskuleikjaáhugamálið vera búið að breytast í hálfgert svona 6-greinar-á-ári-áhugamál, svo það er greinilega alveg óþarfi að hafa þessi áhugamál aðskilin.

Re: Herkænskuleikir

í Tilveran fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Jújú, en ég meina… flestir vinsælustu herkænskuleikirnir í dag eru Blizzard, C&C hefur ekkert verið að gera neitt rosalega sniðuga hluti, svo hvers vegna á Blizzard að fá sérmeðferð ef það eru þegar áhugamál sem allir Blizzardleikirnir geta ágætlega heyrt undir?

Re: Náladoði *varúð! leifur2 kvartar*

í Tilveran fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Það fer nú allt eftir því hvers kyns. Skurðaðgerð þarf alls ekki að taka meira en örfáar klukkustundir, jafnvel undir klukkustund, hún er ekkert endilega eitthvert meiriháttar mál.

Re: Náladoði *varúð! leifur2 kvartar*

í Tilveran fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Ég kannast við "náladoði" - úr Andrésblaði ef ég man rétt.

Re: Náladoði *varúð! leifur2 kvartar*

í Tilveran fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Það er nú bara eins eðlilegt og að taka fót af við háls eða að mjaðmagrindarbrotna við olnboga.

Re: Náladoði *varúð! leifur2 kvartar*

í Tilveran fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Nú? Hvaða putti á þá að styðja á “æ” eða “a” eða enter? Baugfingur? Nei, þá styð ég nú áframhaldandi tilvist litlaputta.

Re: Herkænskuleikir

í Tilveran fyrir 20 árum, 12 mánuðum
Hmm… hvernig væri þá að láta Blizzard sameinast annars vegar MMORPG og hins vegar Herkænskuleikjum, þar sem allir eða flestir Blizzard leikir geta nú heyrt undir þessa tvo flokka ef mér skjátlast ekki.

Re: Leggja niður tolla?

í Hugi fyrir 21 árum
Sá nákvæmlega sami og af vöru sem þú kaupir hér á landi, hvort sem hún er innlend eða erlend. Hins vegar er stundum þannig að ef þú pantar að utan bætist íslenskur virðisaukaskattur ofan á annan erlendan.

Re: Söngvakeppni Framhaldsskólanna!!!!

í Tilveran fyrir 21 árum
Auðvitað átti MR að vinna, auðvitað! Og auðvitað vann MR, já… auðvitað!

Re: Er Rokkið Dautt??

í Músík almennt fyrir 21 árum
Ja… eins og þú segir. Það var ekki á valdi nema þeirra allra bestu að flytja svona tónlist. Þess vegna má nú á vissan hátt tala um Jazz sem framúrstefnulegra því þar mætist oft klassísk tónlist og alþýðutónlist svartra. Þrátt fyrir flóknar og frumlegar fléttur klassísku tónskáldanna, þá er einmitt hitt að rokk og djass náði samt út fyrir ákveðinn ramma sem klassísku tónlistinni var settur með hráum og einföldum tónsmíðum.

Re: KORKA-MOÐRINGJA KORKURINN!!!!

í Sorp fyrir 21 árum
ok…

Re: KORKA-MOÐRINGJA KORKURINN!!!!

í Sorp fyrir 21 árum
Hérna.

Re: Rokkið er dautt og annað kjaftæði?

í Músík almennt fyrir 21 árum
Við annan lestur verð ég nú reyndar að segja að ég er ekki alveg sammála þeirri fullyrðingu að hipparnir hafi ekkert gert fyrir heiminn. Þeir kollveltu viðteknum gildum og mynduðu líklega það stærsta kynslóðabil sem nokkurn tímann hefur orðið í mannkynssögunni. Þetta bil hefur óhjákvæmilega haft óumdeilanleg áhrif á heiminn, pólitísk og siðferðisleg. Líklega gerirðu þér ekki grein fyrir því hvað breyttist í raun margt í hippabyltingunni.

Re: Rokkið er dautt og annað kjaftæði?

í Músík almennt fyrir 21 árum
Ég viðurkenni með skömm að ég bara rétt leit yfir greinina en ég ætla samt að lýsa yfir því að ég er eiginlega alveg sammála þér. Mér finnst bara engan veginn réttlætanlegt að halda fram því að rokkið sé dautt. Rokkið er LANGT frá því dautt. Það eru bara þeir sem að þora ekki að sleppa takinu af gamla rokkinu sem halda því fram. Rokkið er bara annað í dag en það var áður og ég vona bara innilega að það verði ekkert aftur eins og það var áður. Það hefur ekki þróast svona langt til þess að...

Re: Hægri = frjálslyndi -Ósatt!

í Stjórnmál fyrir 21 árum
Nei, til Friedmans. Fyrirgefðu að ég svari svona seint, mig minnti að ég hefði svarað áður.

Re: Hægri = frjálslyndi -Ósatt!

í Stjórnmál fyrir 21 árum
Kemur mestmegnis heim við það sem ég er að segja en það er gott að fá svona svart á hvítu.

Re: Menntaskólaval

í Skóli fyrir 21 árum
Það er allavega einn í bekknum mínum frá Mosó og ég veit um fleiri í árgangnum, svo er reyndar alveg góður slatti frá Keflavík og Njarðvík, sem er alveg ofar mínum skilningi. Ég veit um talsvert af fólki sem hefur fengið að fara af náttúrufræðibraut á málabraut fyrir næsta ár, það er alltaf svolítið um það þannig að málabrautin er yfirleitt miklu fyllri í 4. bekk en 3.

Re: Menntaskólaval

í Skóli fyrir 21 árum
Já, ég bý í Kópavogi og þarf að taka strætó 40 mínútum áður en tíminn byrjar en ég læt mig hafa það. Ég held það sé miklu meiri eftirsókn eftir að komast á náttúrufræðibraut en málabraut, sem skýrir líklega hvers vegna fjölda er haldið við 1 af 10 bekkjum. Ég held allavega að það sé ekkert erfiðara að komast á mál. en nát. (þó ég hafi ekki kynnt mér það sérstaklega).
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok