Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: ALI G ORÐABÓK

í Borat, Ali G og Bruno fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Respect fyrir johnny naz!

Re: Heimur endalausra talna

í Ljóð fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Skemmtileg pæling. Hvað vannstu annars?

Re: Er rétt að láta ..........

í Ljóð fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Það kann að vera þín skoðun að Sjón sé ofmetinn en þú getur verið viss um að Sjón mun ekki gleymast í bráð. Jónas, Hallgrímur og Hulda eru mjög góð skáld en þau eru fulltrúar fyrir gamlar og úr sér gengnar stefnur. Þau ljóð sem eru birt í dag sem eru í svipuðum dúr eru undantekningalítið lélegar stælingar á ljóðum þeirra. Saga er bara hluti af þeim yrkisefnum sem ljóðskáldum standa til boða og alls ekki endilega það merkilegasta eða mikilvægasta. Persónulega finnst mér ljóð leiðinlegur...

Re: Er rétt að láta ..........

í Ljóð fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Þurfa börnin eitthvað að læra ljóðin utanbókar?

Re: Hámarkshraði

í Bílar fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Á frönskum sveitavegum (a.m.k. nyrst, og örugglega víðar), sem NB eru mjög svipaðir íslenska hringveginum að gerð, er leyfilegur hámarkshraði 70. Merkilegt þar sem frönsk umferðarmenning er jafnvel verri en íslensk.

Re: Beljubrandarinn.

í Húmor fyrir 24 árum, 11 mánuðum
SJÚKI HELVÍTIS… samt dáldið sniðugt. held samt að ég hafi heyrt hann í einhverri mynd áður.

óháð hvað?

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 12 mánuðum
RÚV verður ekki óháð ef hún fær framlög frá ríkiskassanum, hún verður háð stjórnmálamönnum um fjárveitingar. Það verða aldrei til óháðar sjónvarpsstöðvar þar sem allar sjónvarpsstöðvar eru tengdar við tekjulind sína.

haaa -nt-

í Ljóð fyrir 24 árum, 12 mánuðum

blaaa -nt-

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 12 mánuðum

Re: Davíð snillingur

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 12 mánuðum
Bíddu… missti ég af einhverju? Hvenær hefur Davíð rökrætt? Hann þorir ekki einusinni í viðtöl nema þau séu drottningarviðtöl.

Machiavellismi

í Heimspeki fyrir 24 árum, 12 mánuðum
Ef þú átt við machiavellismann og það sem honum tengist þá eru mjög skiptar skoðanir á því hversu vel kenningin fylgir kennaranum. Machiavellisminn gengur út á það að ríkisvaldið sé í raun hafið yfir lög og megi því brjóta allar siðferðisreglur sem eru viðurkenndar í mannlegu samfélagi (og eru í lögum). Margir eru þeirrar skoðunar að þetta sé ekki það sem hann hafi átt við með furstanum, heldur hafi hann verið fyrsti “félagsvísindamaðurinn” sem lýsti heiminum eins og hann raunverulega var en...

Re: Bað

í Ljóð fyrir 25 árum
Nú verða dönsku júróvísjónkynnarnir að fara að passa sig.

Re: Bara vegfarandi

í Ljóð fyrir 25 árum
Ert þú Guð?

Re: má ég fá álit?

í Ljóð fyrir 25 árum
Ágætis ljóð en ertu ekki aðeins að teygja þig í ríminu? Mætti laga málfræðina, en ekki taka samt of mikið mark á Jedi. “Gonna” er málþróun, eins og you'll og ain't, hvort sem það telst fínt mál eða ekki er spurning um hversu mikið snobb þú ert.

Re: Er rétt að láta ..........

í Ljóð fyrir 25 árum
Nei, láta þau læra skemmtileg ljóð eins og Sjón. Á annars eitthvað að láta börn læra ljóð nema þau hafi sjálf áhuga á því (og fái að ráða hvernig ljóð þau læra)? Ég er algerlega á móti því að “gömlum þjóðlegum” ljóðum sé troðið inní hausinn á börnum áður en þau geta svo mikið sem melt innihaldið.

Re: Hvernig væri að skipta upp greinasafninu?

í Ljóð fyrir 25 árum
Útskýringar: ertu þá að tala um ljóðrýni, þar sem aðrir en skáldin túlka ljóðin eftir þeirra eigin tilfinningu? Ég er annars alveg á móti því að skáldin sjálf túlki ljóðin sín til fulls, mesta lagi að þau útskýri hluti eins og hvað er verið að vísa í, sem er ekki alltaf augljóst. Ef skáldið útskýrir ljóðið sitt sjálft þá er ekkert point í því að skrifa ljóðið til að byrja með (þið gætuð þá alveg eins skrifað einfaldar straight forward greinar í t.d. deigluna eða heimspeki).

Re: Hversu Klár Ertu ???

í Heimspeki fyrir 25 árum
Deva: Barathor Eladrin: Dave Devil: Aznimul Demon: Codexum tók mig hálftíma

Re: Hryðjuverk Friðriks - ESSO

í Stjórnmál fyrir 25 árum
Ég var að velta því fyrir mér hvenær þetta mál kæmi inná huga (þar sem ég var að velta því fyrir mér að skrifa hana sjálfur en hafði ekki tíma). Friðrik Garðarsson er eini Íslendingurinn með garnirnar vel festar. Þegar flestar Evrópuþjóðir myndu mótmæla hástöfum, t.d. með því að loka fyrir umferð á Hraðbrautum og stofnbrautum eða loka fyrir aðgengi að bensíndælum, þá sitja Íslendingar heima og bora í nefið og segja: “djö..” Nema Frikki the pump-cutter sem fer og mótmælir í verki. Ég vona að...

Re: Var að spá...

í Kvikmyndir fyrir 25 árum
Sjáðu frönsku sýruna Weekend frá 7. eða 8. áratugnum. þar er enginn góður sem skiptir máli og enginn vondur sem skiptir máli. Allir einfaldlega eru bara. Það er enginn móralskur boðskapur sem ég gat komið auga á bara röð súrrealískra atburða.

Re: Jamm

í Kvikmyndir fyrir 25 árum
Barátta góðs og ills samt sem áður.

Re: Er Metal að verða að söluvöru?

í Metall fyrir 25 árum
Að mínu mati er það ekki svo mikið metallinn sjálfur sem er að verða að mikilli söluvöru heldur rapprokkið. Limp væri snilld ef þeir myndu sparka Fred Durst og ná sér í almennilegan söngvara eða rappara. Fred Durst er ömurlegur (dæmi: textinn í My Generation: “Do you think we can fly, do you think we can fly, do you - think can fly? Well I do, I do”!!!).

Re: Varnarliðið á Keflavíkurflugvelli

í Deiglan fyrir 25 árum
Kína nýtur ekki stuðnings Rússa og hefur ekki gert lengi. Þó svo að Kommúnistar hafi verið við völd í Kína frá 1949 þá lentu þeir uppá kant við Sovétmenn mjög fljólega þar sem þeir vildu ekki lúta Moskvuvaldinu. Það eru jafnvel enn minni líkur á því að Rússar styðji Kínverja hernaðarlega þar sem Rússar eru orðnir kapítalistar og þar sem efnahagur þeirra er í rúst vegna breytingarinnar frá kommúnisma yfir í kapítalisma, sem gerir þá háða vesturlöndum um efnahagsaðstoð. Jafnvel þó Rússar...

Re: Guð???

í Tilveran fyrir 25 árum
Guðleysi er bara blekking sem er sköpuð af mönnum sem sætta sig ekki við það sem þeir geta ekki skilið eða skýrt og sætta sig ekki við það að mennsk hugsun er ekki æðsta hugsunin.

Re: Hvora á að kaupa?

í Rokk fyrir 25 árum
Alveg rétt. En Siamese Dream er jafnvel meira ómissandi.

Re: 304819

í Ljóð fyrir 25 árum
gurrmuli nurrgmoli
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok