Það er eitt sem ég væri til í að fá að vita. Þessi spurning er til þeirra sem vilja herinn burt. Hvers vegna viljiði herinn burt?? Ég er bara ekki að skilja það.

1. Við fáum peninga fyrir að hafa hann hérna.

2. Mér finnst hann ekkert vera fyrir mér og það angrar mig ekkert
að hann sér hérna.

3. Áður en við fengum stóru þyrluna okkar TF-LÍF þá fengum við
mjög oft þyrlu aðstoð frá hernum og fáum enn ef TF-LÍF ræður
ekki við verkefnið.

4. Ef að svo ólíklega vildi til að einhverri þjóð mundi detta það
í hug að ráðast á Ísland þá er Varnarliðið á staðnum til að
verja okkur eitthvað smá.

5. Við getum keypt ódýra hluti af þeim s.s. bíla í gegnum Sölu
Varnaliðseigna.

Endilega komið með ykkar álit og svarið þessari grein með ykkar rökum. Þetta eru mín rök og mitt sjónarhorn á Varnaliðinu.

Takk fyrir.