þetta er ljóð

fjarlægðin frá jörðinni til tunglsins eru 300.000 ljóð

þótt ég stæði hér á árbakkanum og semdi 60 ljóð á klukkustund

þá myndi hausinn á þér springa

og eftir lægju 3600 ljóð

0 ljóð stöðva þær fyrirætlanir sólarinnar að draga skugga sinn

lengra til hægri

en ef ég sný mér 180° frá suðri til norðurs

þá get ég snúið við fyrirætlunum sólarinnar

þessi glíma mín við sólina tekur ca. 3 ljóð

Þetta er ekki 1 af þeim

það að flýja skugga sólarinnar

kostar 900 ljóð á klukkustund

og maður verður að passa sig að snúa alltaf í vestur

en endalaus flótti kostar oftast 75 sorgarljóð

(spegillinbaðarsigí ljóðinu endetturframfyrirsigþegarmjálmhundurinndrekkurísigmeira ljóð. þegarnóttinaðlokumkemursigrihrósandi þá mUnU drAUmAr þÍNIr DEYJA að lokum. þá ersummutala lífsþíns 0 ljóð (smá innskot (smá inninnskot (smá……..))))

getur þú enn brosað?

þetta er ekki ljóð