Er ekki bara bæði betra? Annars held ég að ef þú ert að spá í SP þá væri kannski sniðugra að fá sér Siamese Dream (nema þú eigir hann fyrir). Mellon Collie er verulega góður en gallinn við hann er að það eru of mörg lög á honum, þ.e.a.s. nokkur lög á disknum eiga ekki heima þar heldur hefðu frekar átt að koma sem B-hliðar, þá er ég helst að tala um We only come out at night og Lily (my one and only). Á meðan Mellon Collie er 95% góður þá er Siamese Dream 100% diskur. Það er ekki veikur...
Trúleysi byggist einmitt líka á þessum vafasama grunni, trú. Þú trúir líklega ekki á Guð af því að þú getur hvorki séð hann eða sannað fyrir þér á annan hátt að hann sé til. Hefur þú nokkurn tíma séð hlut sem hefur orðið til af sjálfu sér, þ.e. efni myndast úr tómi?
Takk fyrir Deeq Það er merkilegt hvað langar setur fyrir framan tölvuskjá geta grillað á manni heilann það er merkilegt hvað grillaður heili getur skapað ég samdi þetta á svona ca. 5 mínútum (bestu ljóðin mín verða til á ca. svo löngum tíma, ef ég nota lengri tíma þá deyr oft eða mengast upphaflega hugmyndin). mér finnst æðislegt að gera svona expressjónískt slap of lard einsog (svigalínuna).
Menn þurfa ekki að fara í kirkju til að trúa. Ég sjálfur er kristinn en fer nánast aldrei í kirkju (kirkjan er svo mikið kjaftæði að það hálfa VÆRI nóg). Ég verð ekki var við að fólk missi trúna á því að iðka trú sína (how stupid is that?). Já, Guð gaf okkur frjálsan vilja, já, við megum gera allt sem við viljum en við verðum líka að taka afleiðingum gerða okkar. Þetta er ástæðan fyrir því að við þurfum að láta blessa okkur og hreynsa burt syndir okkar, annars komumst við ekki til himna....
Ef maður lítur þannig á að ekkert sem maður gerir í lífinu hafi neitt gildi (líklega líta margir sem eru í sjálfsmorðshugleiðingum þannig á að lífið hafi ekkert gildi þar sem það líður undir lok) þá er það mun auðveldari ákvörðun að binda endi á allt saman en ef að maður lítur þannig á að maður gæti verið að missa af eilífu og fullkomnu lífi í himnaríki.
Hvernig þá? Var ekki góðæri í landinu í millitíðinni? Er Steingrímur Hermannsson galdramaður sem lagði þau álög á íslenskan efnahag að allt færi í háaloft eftir 10 ár?
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana.
Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..