Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re:

í Heimspeki fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Heimska er afstætt hugtak og þar af leiðandi gefur það ekki endilega augaleið að fleiri séu heimskir í stórum hópi. Reyndar er ég þó sammála því að meirihlutinn virðist a.m.k. heimskur, en það er bara mitt mat. Ég er reyndar ekki alveg sannfærður um að meirihlutinn sé svo rosalega heimskur; ef til vill er hann illa upplýstur, en ég held að vandamálið sé að meirihlutinn pælir einfaldlega ekki í stjórnmálum og kýs þá eftir einhverri tilfinningu (afþví að pabbi kaus þennan flokk, það eru svo...

Re: Er guð sem enginn trúir á til?

í Heimspeki fyrir 24 árum, 11 mánuðum
var þá enginn tími áðuren maðurinn kom til að búa hann til? voru 2 risaeðlur + 2 risaeðlur ekki 4 risaeðlur áðuren maðurinn kom? fyrirbærið 2 er ekki til afþví að mennirnir bjuggu til hugtak sem merkir 2. ef við hefðum gefið fyrirbærinu, sem við köllum tvo, heitið bebe, þá hefði það ekki breytt því að fyrirbærið sem við köllum tvo væri enn það sama, það hefði bara annað nafn.

Re: Spilling my ass!!!

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Ég sé enga ástæðu til að stöðva þessar umræður um kynlíf. Mér sýnist kynlífsumræða á Íslandi vera frekar heilbrigð. Kynlíf er eðlilegur hluti af lífinu. Kynlíf er hægt að misnota og afbaka eins og allt annað í lífinu. Ef þú hefur ekki áhuga á kynlífi, ekki stunda það. Ef þú hefur ekki áhuga á að tala um kynlíf, ekki tala um það og finndu þér vini sem hafa eitthvað annað að gera en að tala um kynlíf (ætti ekki að vera erfitt).

Re: Hinir nýju Íslendingar.

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Jesús var Gyðingur. Gyðingar voru náskyldir aröbum þannig að líklegast er að Jesús hafi reyndar verið brúnn. Gyðingar eru flestir hvítir í dag vegna þess að þeir hröktust yfir til Evrópu á fyrstu öldunum eftir Krist og blönduðust hvítum. Í sambandi við hitt þá held ég að þú sért að grínast og ætla því ekki sóa tíma mínum í að svara því.

Re:

í Heimspeki fyrir 24 árum, 11 mánuðum
það er umdeilanlegt

Re: Postulínsfólkið.

í Ljóð fyrir 24 árum, 11 mánuðum
flámælt ljóð hjá þé

Re: 1

í Ljóð fyrir 24 árum, 11 mánuðum
takk fyrir það

Re: Ameríski útkjálkinn Ísland

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
þróun (sem hugtak) er hlutlaust fyrirbæri útaffyrir sig. þróun getur verið góð eða slæm eftir því í hverju hún felst.

Re: Hinir nýju Íslendingar.

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Hvernig færðu það út að vandamál verkalýðshreyfingarinnar sé vegna stjórnmálaþáttöku? Verkalýðshreyfingin skiptir sér minna af stjórnmálum en áður fyrr en stendur sig verr. Vandamál verkalýðshreyfingarinnar er óeining innan hennar, sem birtist m.a. í því að á meðan landsbyggðarfélög vilja halda áfram í verkfalli og knýja fram betri samninga þá vilja verkalýðsfélög á SV-horninu oft ljúka verkfallinu með því að semja um léleg kjör (sem skiptir verkamenn á SV-horninu ekki máli þar sem þeir eru...

Re: Hinir nýju Íslendingar.

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Á að vísa ‘óþekkum’ innflytjendum með íslenskan ríkisborgararétt úr landi? Ég veit reyndar ekki betur en að innflytjendum sem ekki hafa íslenskan ríkisborgararétt sé (a.m.k. í einhverjum tilfellum) vísað úr landi ef þeir gerast brotlegir við lögin (Kannski er þetta bara kjaftæði hjá mér).

Re: Hinir nýju Íslendingar.

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Það er hæpið að auka umburðalyndi án fræðslu. Það er varla nóg að segja við fólkið í landinu: “Hey! verið umburðalynd!”

Re: Vandi heimspekinnar

í Heimspeki fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Stjórnmálaheimspekin er í mörgum tilfellum grunnur undir stjórnmálagreiningu stjórmálafræðinnar. Punkturinn hjá mér var að það að segja að hinar og þessar fræðigreinar eigi ekki að velta fyrir sér spurningum sem eru meira inni á sviði annarrar greinar, punktur, er frekar vafasamt. Hin vísindin mega og eiga að velta fyrir sér heimspekilegum spurningum. Það er nauðsynlegt þar sem hver fræðigrein hefur sitt sjónarhorn.

Re: Hvað er þjóðernishyggja?

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Það kann að vera rétt að Kanslarinn hati ekki aðra kynstofna, en þau rök sem hann notar til þess að réttlæta aðskilnaðarstefnu sína benda mjög til þess að honum sé a.m.k. frekar illa við þessa kynþætti. Hann bendir t.d. á leti og greindarskort svartra auk þess sem hann reynir að gera Gyðinga tortryggilega með því að taka setningu úr biblíunni úr samhengi og segir að þar sé gyðingum gefið leyfi til að hafa mök við 3ja ára stelpur. Þó ég haldi með ÍA þá hef ég engar áhyggjur af því að KR-ingar...

Re: Vandi heimspekinnar

í Heimspeki fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Hvað áttu við með “vísindi”? Ef þú átt við félagsvísindi þá byggjast þau að verulegu leiti á siðfræði og stjórnspeki (hvað er stjórnmálafræði annað en stjórnspeki og hversvegna er verið að kenna stjórnmálaheimspeki?). Félagsfræði þarf að velta fyrir sér heimspekilegum hlutum eins og gildismati og öðru slíku. Ef þú átt við raunvísindi þá eru þau ekki stikkfrí frá siðfræðilegri umræðu og eiga ekki að vera það. Erfðafræðin þó sérstaklega. Erfðafræðingur verður að velta því fyrir sér hvort það...

Stærðfræði?

í Heimspeki fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Athyglisverð staðhæfing að stærðfræðin sé búin til af mönnum. Er þetta rétt? Fann maðurinn upp stærðfræðina eða uppgötvaði hann aðeins reglur hennar? Er ekki 2+2=4 óháð manninum? eða varð 2+2=4 afþví að maðurinn bjó til þessa reglu? myndi það ganga upp að 2+2 væri 5?

Re: Er guð sem enginn trúir á til?

í Heimspeki fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Mér finnst leiða af örlagatrú að Guð sé bæði höfundur góðs og ills. Það er eitthvað sem ég get ekki sætt mig við. Ég get hinsvegar sætt mig við að Guð noti hið illa til góðs. Við mennirnir höfum frjálsan vilja og erum ábyrgir gjörða okkar. Það er a.m.k. mín skoðun.

Re: Er guð sem enginn trúir á til?

í Heimspeki fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Hér ert þú að rugla saman trú og Guði. Trú þrífst ekki nema á hana sé trúað, þetta er rétt. Þetta leiðir til þess að ef allir kristnir myndu hætta að vera kristnir þá myndi kristnin líða undir lok. Af þessu leiðir þó ekki að Kristur eða Guð muni líða undir lok.

Re: Er guð sem enginn trúir á til?

í Heimspeki fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Heimspekin skellir ekki endilega skollaeyrum við raunvísindum heldur þorir hún að spyrja þessarra spurninga óháð þeim. Hún getur síðan tekið afstöðu útfrá þessum vísindum. Heimspekin þorir að efast um að staðreyndir séu staðreyndir. Raunvísindin standa m.a. á þeim grunni að það sem við skynjum í kringum okkur séu staðreyndir, heimspekin setur spurningarmerki við það hvort þessar staðreyndir séu staðreyndir.

Re: Er guð sem enginn trúir á til?

í Heimspeki fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Biblían gefin út til að einfalda allt fyrir okkur mönnunum? Hefur þú lesið Biblíuna? Greinilega ekki. Þar er alls ekki verið að einfalda alla hluti (a.m.k. ekki það mikið að við getum skilið Guð). En það sem mestu máli skiptir í Biblíunni er skýrt: “Því svo elskaði Guð heiminn að hann gaf son sinn eingetinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf” (Jóh. 3:16)

Re: Heilbrigð skynsemi er ofmetin

í Heimspeki fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Punkturinn hjá mér er þessi: Þurfum við ekki dálítið að vara okkur á að treysta ‘heilbrigðri skynsemi’, þar sem það sem við skynjum sem heilbrigða skynsemi blindar okkur fyrir ‘raunverulegri skynsemi’. Það sem ég á við er að við þurfum að vara okkur á þessum merkimiða: heilbrigð skynsemi, þar sem margt sem er sett undir heilbrigða skynsemi er alls ekki skynsamlegt.

Re: Spilling my ass!!!

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Ein ástæða sem mér finnst líkleg orsök sé það satt að samkynhneigðir skrifi meira um kynlíf en aðrir: Mér finnst það mjög líklegt að þeir hommar sem koma útúr skápnum séu meira kynferðislega aktífir en þeir sem halda sig inní skápnum séu bældir kynferðislega og hafi þar af leiðandi minni hvöt til að koma út úr skápnum. Þeir sem eru inní skápnum eru álitnir vera gagnkynhneigðir (við gefum okkur að þeir séu það þar sem við vitum ekki betur) og þeir eru líklega ekki að skrifa mikið af greinum...

Re: Spilling my ass!!!

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Það er ekkert nema eðlilegt að það sem samkynhneigðir skrifi í blöðin tengist kynlífi og réttindum homma og lesbía, barátta þeirra snýst um kynlíf og réttindi þeirra og annarra til að stunda annarskonar kynlíf en venjulegt gagnkynhneigt kynlíf, réttindi þeirra til að ráða líkama sínum sjálf og rétt þeirra til að velja sér maka. Opnari umræður um kynlíf hjálpa málstað samkynhneigðra þar sem það fær fólk til þess að hætta að tala um kynlíf, venjulegt sem óvenjulegt, sem tabú, og þannig minnka...

Re: þröngsýni og fordómar gagnvart kristnum

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Ertu þá á móti trúfrelsi?

Re: Radiohead? Snillingar eða...

í Rokk fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Kid A lögin voru reyndar slatti mikið spiluð í Alternative Nation á MTV, sérstaklega Idioteque.

Re: Spilling my ass!!!

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Áður en þú ferð að slengja svona tölum fram sem þú last “einhverstaðar”, þá ættirðu fyrst að reyna að læra smá aðferðafræði í félagsvísindum. Þú segir að hommar nauðgi hlutfallslega oftar en gagnkynhneigðir; hversu mikið oftar? sé munurinn lítill þá eru þessar tölur ómarktækar og þ.a.l. þýðingarlausar. Hversu mörg tilfelli voru í þessum tölum? Eftir því sem fjöldi tilfella minnkar því meiri munur þarf að vera á hommum og gagkynhneigðum til þess að hann teljist marktækur. Annað: Það er ALDREI...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok