Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Til hamingju Davíð?

í Deiglan fyrir 25 árum
Mér sýnist að þú hafir keypt þér stjórnmálaskoðun útí Bónus. Þú hefur greinilega ekki lesið stefnuskrá Samfylkingarinnar.

Re: Er þessi grein staðreynd?

í Heimspeki fyrir 25 árum
Kannski er malkav að dreyma. Kannski er mig að dreyma. Vonandi fer ég að vakna.

Re: Lífið: hefur það eitthvað gildi?

í Heimspeki fyrir 25 árum
Hvaða gildi getur maður gefið lífinu sjálfur? Maður gæti unnið að ýmis konar hjálparstarfi, sem er oft erfitt en líka oft gefandi starf. En hefur það eitthvað endanlegt gildi? Þegar mannkynið líður undir lok skiptir þá einhverju máli hversu miklar þjáningar þú linaðir, hversu mörg líf þú lengdir? Maður gæti reynt að verða ríkur, en ef það hefði eitthvað gildi þá væri Hollywood einn af þeim stöðum á jörðinni þar sem fólk upplifir mesta lífsfyllingu og hamingju. En hvar eru hjónaskilnaðir...

Re: Skilríkjalaus í Ríkinu.

í Djammið fyrir 25 árum
En þetta vonda fólk að hleypa þér í ríkið svona snemma. Fyrst þú ert svona hneykslaður af hverju ferðu þá í ríkið?

Re: Er þessi grein staðreynd?

í Heimspeki fyrir 25 árum
“Við skynjum raunverulega hluti og um það þarf ekki að kljást” - Ertu viss? Ef þú getur ekki sannað að við skynjum raunverulega hluti þá er enn rúm fyrir efa. Ef það er rúm fyrir efa þá er hægt að kljást um hlutina. Getur þú sannað það að við skynjum raunverulega hluti?

Re: Svona er nú bara mannlegt eðli

í Smásögur fyrir 25 árum
jeij! frábær saga maðu

Re: Er þessi grein staðreynd?

í Heimspeki fyrir 25 árum
OK ég viðurkenni að þetta var illa orðað. Það sem ég átti við er að við gefum okkur það að það sem við sjáum með augunum (óháð því hvernig heilinn síðan túlkar upplýsingarnar sem hann fær) séu til staðar í raun og veru. Við höfum hinsvegar engar aððrar sannanir fyrir því að þessir hlutir séu til staðar en að við sjáum þá og ef við ætlum að sanna það fyrir öðrum þá erum við tilneydd til að fara og sýna þeim þessa hluti (við gætum auðvitað tekið mynd en myndir er hægt að falsa). Það sama á við...

Re: Ömurlegt

í Handbolti fyrir 25 árum
ÁFRAM KA!

Re: bensín okur

í Stjórnmál fyrir 25 árum
ALLIR ÚT AÐ MÓTMÆLA!

Re: Urðarmáni-urðarstólpi?

í Smásögur fyrir 25 árum
Þessi geðlæknir er eitthvað skrýtinn

Re: ógeðslega léleg könnun

í Gamanþættir fyrir 25 árum
Samkvæmt skilaboðum frá umsjónarmanni áhugamálsins þá er búið að senda inn of mikið af könnunum og komin stífla. Eru þetta svona gömul skilaboð eða var engin betri könnun í boði?

Re: Kennarinn eða kenningin?

í Heimspeki fyrir 25 árum
Mig langar til að benda á að menn gagnrýna eða sniðganga oft kenninguna útaf persónu kennarans og annarra fylgjenda kenningarinna

Re: Sannleikurinn.

í Heimspeki fyrir 25 árum
Ég hef aldrei séð þig og lít þessvegna svo á að þú sért bara vírus í tölvunni minni (en auðvitað hef ég bara rangt fyrir mér).

Re: Aríar

í Heimspeki fyrir 25 árum
Á þessi grein ekki betur við deigluna?

Re: Er þessi grein staðreynd?

í Heimspeki fyrir 25 árum
NÁKVÆMLEGA!! Þetta er einmitt það sem ég var að reyna að segja: Staðreyndir eru eitthvað sem við gefum okkur. Við gefum okkur að tilvera okkar sé staðreynd. Það sem ég vildi hinsvegar benda á er að sá skilningur að staðreyndir séu eitthvað sem er óvéfengjanlegt á ekki við rök að styðjast.

Re: Er þessi grein staðreynd?

í Heimspeki fyrir 25 árum
“Ef ég segi er það staðreynd að allar stelpur eru með typpi, er það þá staðreynd vegna þess að það er staðreynd að þessi póstur er til?” Nei og þetta var heldur ekki það sem ég sagði. Það sem ég átti við var að forsendan fyrir því að það sem þú skrifaðir væri staðreynd (þá er ég ekki að tala um merkingu þess sem þú skrifaðir heldur hvort stafirnir séu þarna eða ekki) er að pósturinn sem inniheldur stafina sé til. Það sem þú skrifaðir fyrst: “Reynið að neita þessu: þessi póstur minn er ekki...

Re: Er þessi grein staðreynd?

í Heimspeki fyrir 25 árum
Það sem þú skrifaðir í póstinum er líklega aðeins staðreynd ef pósturinn er staðreynd. Hver er munurinn? Hvað meinaru?

Re: Er þessi grein staðreynd?

í Heimspeki fyrir 25 árum
Kannski er mig að dreyma. Ef svo er viltu þá vinsamlegast fara út úr draumnum mínum. Annars trúi ég því að þessi póstur sé staðreynd þar sem ég treysti augum mínum. En það er vissulega hægt að efast um tilvist þessa pósts (hefur þú séð Matrix?)

Re: Dæmigerð spurning um guð.

í Heimspeki fyrir 25 árum
Hvers vegna ætti það að skipta nokkru máli að afsanna tilvist ósýnilegrar kúlu sem hefur engin áhrif á heiminn? Hún HEFUR (sé hún til) engin áhrif á heiminn og skiptir þar af leiðandi ekki máli. En væri ég eitthvað verri eða heimskari þótt ég tryði því að ósýnilegar kúlur væru til? Tilvist Guðs skiptir máli því ef hann er til þá þýðir það eilíft líf í paradís ef maður trúir á hann. Ég trúi því að Guð hafi áhrif á heiminn en þar sem honum virðist mikið í mun að halda vilja mannsins frjálsum...

Re: Dæmigerð spurning um guð.

í Heimspeki fyrir 25 árum
Erum við ekki öll amateurheimspekingar?

Re: Er þessi grein staðreynd?

í Heimspeki fyrir 25 árum
“Skiptir í raun einhverju máli hvort það sem við skynjum er raunverulegt??” Það er hægt að komast í gegnum lífið án þess að velta þessarri spurningu fyrir sér. Ég held samt að það sé gott fyrir hvern og einn að átta sig á því hvað er átt við með hugtakinu ‘staðreynd’ í daglegu tali. Það ríkir ákveðin sátt um það að það sem við skynjum sé, undantekningalítið og undir venjulegum kringumstæðum, staðreyndir - raunverulegir hlutir, þ.e.a.s. við treystum skynfærum okkar. Þetta er nauðsynlegt fyrir...

Re: Er þessi grein staðreynd?

í Heimspeki fyrir 25 árum
Svarta platan - Of Wolf and Man

Re: Kofi Tómasar frænda

í Ljóð fyrir 25 árum
Man ekki eftir neinu eftir Ratcat og Romper.

Re: Höfuðáttirnar 6 ...

í Heimspeki fyrir 25 árum
Norður, suður, austur og vestur miðast við yfirborð jarðar og upp og niður miðast við miðju hennar. Þannig að ef þú leggur af stað stystu leið, eftir yfirborði jarðar, að Norðurpólnum þá stefnir þú alltaf í norður, svo einfalt er það. Ef þú hefðir einhverja tækni til að komast stystu leið beint í gegn um Jörðina frá Suðurpól á Norðurpól, þá færir þú niður þar til þú kæmir að miðjunni, eftir það færir þú upp.

Re: Mér leiðist

í Ljóð fyrir 25 árum
Æ fyrirgefðu, mér leiddist bara svo mikið þegar ég las þetta.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok