Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Re: Hvað er þjóðernishyggja?

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Góð grein, og gott hjá þér að skerpa á muninum á þjóðernishyggju og rasisma. Vandamál þjóðernishyggju er það að kynþáttahatarar fela sig í mörgum (ef ekki flestum) tilfellum á bakvið hana. Dæmi: Ef þú hefur nennt að fylgjast með löngu umræðunni (Ég var hérna fyrstur… ca. 140 póstar) á Deiglunni þá hefur þú tekið eftir því að Kanslarinn, sem hélt því statt og stöðugt fram að hann væri þjóðernissinni, studdi bann eða höft við innflutningi frá öðrum löndum en vestrænum m.a. með því að...

Re: þröngsýni og fordómar gagnvart kristnum

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Ég er ekki að væla, ég er að biðja þig um að hætta að drulla yfir kristna við hvert tækifæri sem þú færð. Ég get á sama hátt sagt þér að flestir kristnir sem ég þekki eru mjög víðsýnir og bera flestir mikla virðingu fyrir trúarskoðunum annarra (ég viðurkenni að sumir kristnir sem ég þekki eru þó gríðarlega þröngsýnir). Ég hef hinsvegar ekki tekið eftir jafnmikilli víðsýni hjá trúlausum, heldur hef ég oft tekið eftir mikilli andstöðu og jafnvel fjandskap gagnvart trúarbrögðum, aðallega...

Re: Radiohead? Snillingar eða...

í Rokk fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Að mínu mati er Kid A besta platan með Radiohead (mjög margir ósammála) þar sem þeir sína virkilega að þeir gera bara nákvæmlega sem þeim sýnist og fylgja engum formúlum. Þeir sýna líka hvað þeir ráða vel við að gera virkilega góða raftónlist og það er alveg frábært hvernig þeir brjóta niður gamla lagaformið (vers1 - vers2 - kórus - vers3 - kórus - sóló - brú - kórus - kórus… fade). Þó þeir séu í mjög elektrónískum pælingum (en margir hafa sakað þá stefnu um andleysi) þá tekst þeim að gefa...

Re: Spilling!!!

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
maður skilur það nú svoldið að gunnari í krossinum sé blandað inní þetta. Hann segir að samkynhneigð sé röng, og það er einmitt það sem biblían segir (hvort þessi lög eiga við í dag treysti ég mér ekki til að dæma um). Þar sem Gunnar fer alveg örugglega yfir strikið er þegar hann segist geta “afhommað”(eða “aflessað”) samkynhneigða. Hinn samkynhneigði verður að átta síg á því sjálfur hvort honum finnst þetta vera synd eða ekki og hegða sér samkvæmt því. Samkynhneigð hins samkynhneigða er...

Re: Spilling!!!

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
maður skilur það nú svoldið að gunnari í krossinum sé blandað inní þetta. Hann segir að samkynhneigð sé röng, og það er einmitt það sem biblían segir (hvort þessi lög eiga við í dag treysti ég mér ekki til að dæma um). Þar sem Gunnar fer alveg örugglega yfir strikið er þegar hann segist geta “afhommað”(eða “aflessað”) samkynhneigða. Hinn samkynhneigði verður að átta síg á því sjálfur hvort honum finnst þetta vera synd eða ekki og hegða sér samkvæmt því. Samkynhneigð hins samkynhneigða er...

Re: Spilling!!!

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
maður skilur það nú svoldið að gunnari í krossinum sé blandað inní þetta. Hann segir að samkynhneigð sé röng, og það er einmitt það sem biblían segir (hvort þessi lög eiga við í dag treysti ég mér ekki til að dæma um). Þar sem Gunnar fer alveg örugglega yfir strikið er þegar hann segist geta “afhommað”(eða “aflessað”) samkynhneigða. Hinn samkynhneigði verður að átta síg á því sjálfur hvort honum finnst þetta vera synd eða ekki og hegða sér samkvæmt því. Samkynhneigð hins samkynhneigða er...

Re: sammála

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Ef það er eitthvað að marka myndina Arlington Road þá er mórallinn í bandaríkjunum þannig að fólk er ánægt á meðan því er sagt að einn brjálaður maður beri ábyrgð á hryðjuverkum sem þessum. Það er þá eins og það vilji ekki vita af einhverjum stórum samtökum sem séu tilbúin að fremja hræðileg hryðjuverk í þeirri trú að það hristi upp í þjóðfélaginu og verði málstað þess til framdráttar. En maður skyldi auðvitað ekki trúa öllu sem maður sér í bíó.

Hver ertu, Ofurkusa?

í Heimspeki fyrir 24 árum, 11 mánuðum

Hver ertu, Ofurkusa? (nt)

í Heimspeki fyrir 24 árum, 11 mánuðum

Re: Spilling!!!

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
“þér þætti ekki skemtilegt ef að einhver hommi mundi reina að nauðga þér.” Ef þetta væru einhver rök væri hægt að segja að það ætti að senda alla gagnkynhneigða á stofnun til að lækna þá af kynkvöt sinni þar sem konum þætti ekki skemmtilegt ef einhver karlmaður reyndi að nauðga þeim og körlum þætti það heldur ekki skemmtilegt ef einhver kona reyndi að nauðga þeim. Eða ertu kannski að segja að allir (eða a.m.k. flestir) hommar séu stöðugt að reyna að nauðga öðrum körlum?

þröngsýni og fordómar gagnvart kristnum

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
hversvegna þarftu alltaf að draga kristnina inní allt sem þú ert á móti? Ég er kristinn og hef ekkert á móti samkynhneigðum. Alveg eins og vgr er þröngsýnn og fordómafullur gagnvart hommum og lesbíum, og virðist líta þannig á að þeir hafi það eina markmið að draga alla þjóðina inn í eitt allsherjar kynsvall, þá ert þú þröngsýnn og fordómafullur gagnvart kristnum. En öfugt við það sem þú virðist halda þá eru kristnir ekki upp til hópa hrokafullir, heimskir, þröngsýnir, fordómafullir,...

Sigur Rós vs. Land og Synir?

í Djammið fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Fór á minifestivalið og hefði engan veginn vilja missa af Sigur Rós (sem bæ ðe vei var að toppa allt sem var á Ágætis Byrjun) fyrir einhverja gelgjuhljómsveit.

Re: Fréttablaðið - málgagn Samfylkingarinnar...?

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Það væri vel af sér vikið af Fréttablaðinu ef því tækist að vera málgagn bæði nýfrjálshyggju og kratisma. Þetta eru svo andstæðir pólar að það hálfa væri hellingur. Nýfrjálshyggjan gengur útá það að hafa velferðarkerfið eins lítið og hægt er á meðan sósíaldemókratisminn gengur útá að hafa viðamikið velferðarkerfi sem styður við þá sem minna mega sín og veitir öllum jöfn tækifæri.

Re: Hvar er mAlkAv?!!?

í Rokk fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Mér skilst að málið sé ekki það að hann hafi beint verið rekinn af huga, heldur var admin-staðan tekin af honum (vægt gjald fyrir að dirfast að ganga gegn hinni almáttugu og óskeikulu stjórn Huga! þetta var kaldhæðni bæðevei). mAlkAv fór svo í fýlu (can you blame him?) og ákvað að koma ekki inn aftur.

Re: Radiohead? Snillingar eða...

í Rokk fyrir 24 árum, 11 mánuðum
keep it to yourself punk

Re: Ég elska Ísland

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Öll samskipti milli menningarheima er hægt að flokka sem inngrip þar sem samskiptin fela í sér flutning á hugmyndum milli heimanna. Um leið og menn taka afstöðu til þessarra hugmynda þá breytist menning þeirra, þó ekki sé nema lítil breyting. Íslenskir trúboðar fara ekki og boða kristna trú með valdi heldur fara þeir á staðina og gefa íbúunum val um hvort þeir vilja fylgja Jesú eða ekki. Oftar en ekki þá ákveða íbúarnir að fylgja Jesú. Er eitthvað athugavert við það? Ef svo er á þá ekki...

Re: Radiohead? Snillingar eða...

í Rokk fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Ég lít ekki á það sem aðdáunarvert athæfi að kúka yfir aðdáendur ákveðinna hljómsveita eða tónlistarstefna, so don't even kid about that.

Ef þú ert ekki hálfviti þá má auðveldlega rugla þér saman við hálfvita

í Rokk fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Er einhver minnimáttarkennd í gangi hjá þér? Mér sýnist þessi póstur hjá þér benda til þess að flestir Radiohead, Sigur Rósar og Slayer fans séu gáfaðri en þú. Að minnsta kosti vona ég að þeir séu umburðarlyndari. Þó ég sé Radiohead og Sigur Rósar aðdáandi þá þýðir það ekki að ég sé að snobba fyrir þeim eða öðru arty “drasli”, það þýðir bara að ég fíla tónlistina og hef þar af leiðandi annan tónlistarsmekk en þú.

Re: Lokapóstur á heimspeki

í Heimspeki fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Gríðarlegur aumingjaskapur hjá stjórnendum Huga að þola ekki smá gagnrýni. mAlkAv ekki hætta að skrifa þó þér hafi verið hent út sem stjórnanda. Það eru ekki margir hér inni af viti. Ég er kannski ekki sammála öllu sem þú segir en þú setur hlutina a.m.k. yfirleitt málefnalega fram (sjaldgæfur kostur á Huga). Ég tel reyndar að það þurfi strangari skorður á ritskoðun heldur en það að ritskoða eigi þær greinar sem túlka má sem rasistaáróður (sem þær vissulega í mörgum tilfellum eru). Ég held að...

Re: Hvað um hinar

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Takk Það kom mér reyndar mjög á óvart að enginn skyldi segja þetta fyrr.

Hvað um hinar "hvítu" heimsálfurnar?

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Hver á Ameríku? Er það “rauði” kynstofninn, Indjánarnir? Nei, það eru hvítir innflytjendur sem ráða þar öllu. Hver á Ástralíu? Eru það frumbyggjarnir (sem NB eru svartir, þó af öðrum kynstofni en flestir svertingjar)? Nei, það eru hvítir innflytjendur sem ráða þar öllu og leituðust við að útrýma frumbyggjum með öllum ráðum langt fram eftir 20. öldinni, þetta var gert af “mannúðarástæðum”. Eiga þessir hvítu innflytjendur þá að flytja aftur til Evrópu? Eða er það bara sanngjarnt að hvítir eigi...

Re: 1848 Ávarp

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
ég vil bara benda þér á að þjóðir fyrrum Júgóslavíu eru líklega skyldari innbyrðis en t.d. Norðurlandaþjóðirnar. Það er sáralítill munur á Króötum, Serbum og Bosníumönnum. Þessar þjóðir tala sama tungumálið, serbó-króatísku, og í raun er svo lítill erfðafræðilegur munur á Bosníumönnum og Serbum að hægt er að tala um sömu þjóðina. Það eina sem aðskilur Bosníumenn og Serba eru trúarbrögðin. Deilurnar á Balkanskaga eru fyrst og fremst afrakstur þjóðernisrembings innan sambandsríkjanna og...

Re: Ég var hérna fyrstur.. farðu bara ;p

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Ef þú ert ekki rasisti hvaða máli skiptir það þig þá hvort Hitler hafi verið af Gyðingaættum eða ekki? Viltu hleypa Pólverjum (sem eru flestir frekar fátækir, og því til í að vinna hvaða vinnu sem er fyrir lægri laun en allur almenningur á Íslandi, en þó hvítir) frekar inn í landið heldur en t.d. Japönum (sem teljast með ríkustu þjóðum heims og eru oft gríðarlega vel menntaðir, eru ekki hvítir en lifa í samfélagi sem er að mjög mörgu leyti líkara okkar samfélagi en pólska samfélagið)?

Re: Ég var hérna fyrstur.. farðu bara ;p

í Deiglan fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Rasistar rugla þessu tvennu saman, þ.e.a.s. fela sig á bak við þjóðernishyggju. Þjóðernishyggju virðist líka oft fylgja (sé hún sterk) þjóðrembingur sem felst í því að maður trúi því að manns eigin þjóð sé merkilegri en allar aðrar. Þjóðernishyggja í íslensku samfélagi nútímans er gamaldags fyrirbæri. Ísland er ekki að berjast fyrir neinu sjálfstæði lengur, það eru engin ríki í heiminum sem okkur stafar bein stríðsógn af þannig að forsendur fyrir þjóðernishyggju eru brostnar að öllu leyti...

Re: mafia?

í Stjórnmál fyrir 24 árum, 11 mánuðum
Röltu þér bara niðrí hljómalind, 12 tóna eða geisladiskabúð valda. Þar eru ódýrari diskar (og jafnvel áhugaverðara efni, í hljómalind og 12 tónum, en víðast annarsstaðar, a.m.k. fyrir sýrðar týpur eins og mig). Annars er ég alveg sammála þér, geisladiskaverð er allt of hátt. Geisladiskaverð í Bretlandi telst vera hátt en er þó bara gott miðað við Ísland.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok