Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

doIh8u
doIh8u Notandi frá fornöld 40 ára karlmaður
2.340 stig

Einkunargjöf gegn Búlgaríu (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
hér ætla ég að skrifa umfjöllum um hvern leikmann fyrir sigí leiknum gegn búlgaríu, það er að segja eins og mér fannst(og sá) 1.Árni Gautur Arason: Hafði lítið að gera og reddaði því sem hægt var að gera var klaufi að missa fasta aukaspyrnu Búlgara en sýndi skemmtilega takta í lok leiksins með því að leika á 2 sóknarmenn búlgara, einkunn 7 2. Auðun Helgason annar tveggja FH-inga í liðinu stóð sig ágætlega sýndi sig vel á könntunum og á vel heima í hægri bakverðinum einkunn, 7 3.Arnar Þór...

Dacourt grófastur (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Búið er að sýna lista yfir grófustu leikmenn ensku deildarinnar samkvæmt dæmdar aukaspyrnum gulum spjöldum og rauðum spjöldum. Athyglisvert er að efsti maðurinn Oliver Dacourt skildi ekkert rautt spjald hafa og skildi það þá sýna hörku en ekki hversu grófur hann er, eitt stig var gefið fyrir fengið á sig aukaspyrnu þrjú stig fyrir gult spjald og sex stig fyrir rautt spjald. Einnig er athyglisvert að vandræðagemsarnir Roy Keane og Dennis Wise eru ekki inn á listanum og teljast því ekki til 12...

Fáranleg skoðanakönnun (13 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
HVaða leikmaður er besti varnamaðurinn? Ok hér er smá um það. Skoðanakönnunin sjálf er ekkert hægt að setja út á EN allir virðast alltaf kjósa leikmannin í liðinu sem þeir halda með en ekki þann sem þeim finnst bestur. Jaap Stam og Sami Hyypia fá mjög mörg atkvæði en t.d. Rio Ferdinand og Sol Campbell ekki mjög mörg, Ef það kæmi hver er versti varnamaður deildarinn þá mundi koma það sama út STam og Hyypia fá mörg atkvæði vegna þess að aðdáendur liv, man og ars hata hverja aðra og kjósa þá...

Landsliðshópur Englendinga (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 11 mánuðum
Sven Göran Ericsson virðist ekki breyta landsliði sínu mikið einu breytingarnar eru að Alan Smith og Jamie Carragher eru komnir í hópinn en annars er hópurinn svohljóðandi: David Seaman (Arsenal), David James (Aston Villa), Nigel Martyn (Leeds United), Phil Neville (Manchester United), Ashley Cole (Arsenal), Rio Ferdinand (Leeds United), Chris Powell (Charlton Athletic), Wes Brown (Manchester United), Jamie Carragher (Liverpool), Martin Keown (Arsenal), Gareth Southgate (Aston Villa), Steven...

Spennandi sumar (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Búast má við því að sumarið í sumar verði mjög spennandi. Ég hef fylgst með íslensku deildinni frá því að ég man eftir mér og mér sýnist ekki á öðru en að þetta verði mest spennandi keppni hingað til. Ég tel mig vita töluvert um hvert lið og ekki sé ég að neitt lið ætli að skara fram úr. Það mun væntanlega ekki ráðast fyrr en í síðustu umferð hvaða lið verður meistari og hvaða lið falla. Mig minnir að í einhverju landi hafi eitt skipti liðið í þriðja sæti hafi átt möguleika á titlinum fyrir...

Bronckhorst til Chelsea (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Leikmaður Glasgow Rangers hefur gefið til kynna að miklar líkur er á því að hann fari til Chelsea í sumar. Hann segir að áhuginn sé til staðar og einnig að vinur hans Jimmy Floyd Hasselbaink segir að þa'ð sé gott að vera þar. Ekki er vitað kaupverðið á hollendingnum en mjög líklegt er að Chelsea kaupi Giovanni Van Bronckhorst. Einnig hefur frést að Arsenal sé að bjóða 10 milljónir í portúgalska leikmanninn Jorge Andrade.

HK í evrópukeppni (1 álit)

í Handbolti fyrir 22 árum, 12 mánuðum
Svo virðist vera að HK í kópavogi ætli að fara í evrópukeppni bikarhafa. Hk fékk þátturétt eftir að haukar urðu íslandsmeistarar en Hkingar hafa verið að íhuga þátttöku en segja að kostnaður gæti haft áhrif á það að þeir taki ekki þátt. Leikmenn KA hafa einnig íhugað þátttöku í evrópukeppninni og hafa leikmenn ka lýst yfir miklum áhuga á því. Við vonum bara að þeir geri það því gaman er að fylgjast með íslenskum liðum í evrópukeppni.

Þórður til Tottenham (9 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum
Þórður Guðjónsson sem er í láni hjá enska úrvalsdeildarliðinu Derby County hefur gefið út þá yfirlýsingu að hann muni yfirgefa Derby í sumar. Þórður er ekki sáttur við að hafa bara komið inná sem varamaður og sagðist ætla að yfirgefa félagið en nánast er öruggt að hann verði seldur vegna fjárhagsörðuleika Las Palmas á spáni. Þórður sagði að hann hefði ekki áhuga á að vera varamaður hjá Derby og ætli að fara og einnig væri þrjú félög á eftir honum Tottenham, Hansa Rostock og Werden Bremen....

Svindl í CM3 (5 álit)

í Manager leikir fyrir 23 árum
Ég er sá gaur sem hefur farið í nánast alla cm leiki og hef lengi spilað champ en núna er ég búinn að fá leið á nýja leiknum og tók um helgina fram cm3 og byrjaði að spila. Bróðir minn(sem spilar líka mikið champ) sá að ég var í cm3 og sagði mér frá svindlum í þeim leik sem ég prófaði. Svindl nr 1. þú býður í leikmann sem þú vilt fá. Mjöööög hátt verð svo því sé örugglega tekið jafnvel þó þú hafir ekki efni á því og þegar liðið er búið að taka því þá klikkar á offer contrackt og klikkar á...

Spennandi keppni (1 álit)

í Körfubolti fyrir 23 árum
Núna eru búnir tveir leikir í í sex einvígum af átta og staðan er svona. inn í sviga því sem ég spáði fyrir fram Philadelphia 1-1 Indiana (3-0) Phoenix 1-1 Sacramento (3-2) Utah 2-0 Dallas (3-2) Charlotte 2-0 Miami (1-3) San Antonio 2-0 Minnesota (3-1) Toronto 0-1 New York (3-2) Portland 0-1 L.A.Lakers (3-2) Millwakee 2-0 Orlando (3-1)

Poom til United og Scholes skrifar undir (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum
Manchester united hefur sýnt áhuga á Eistneska markverðinu Mart Poom hjá Derby County. Alex Ferguson sagði að United þyrfti á varamarkverði að halda því Gouw er orðin gamall og að fá Andy Goram voru mistök. Ferguson sagði að mjög gott væri að fá Poom til að leysa Barthez af annað slagið. Mart Poom sem er 29 ára Eistlendingur hefur staðið sig með miklu prýði í marki Derby undanfarin ár. Gaman verður að vita hvort eitthvað verður úr þessu. Þess má til gamans geta að Paul Scholes hefuru skrifað...

Dyer til United (6 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum
Samkvæmt fréttavefnum planetfootball.com segir að rauðu djöflarnir séu búnir að gera 15 milljón króna punda boð í enska landsliðsmanninn og leikmann Newcastle Kieron Dyer. Dyer sem er búinn að vera meiddur í 4 mánuði er að ná sér eftir erfið meiðsl. Forráðamenn newcastle vilja fá 20 milljónir punda fyrir hann en ólíklegt er að manchester bjóði hærra. Einnig hefur heyrst að Leeds United vilji kærkja í kappann sem kom frá Ipswich á sínum tíma. Boð Manchester mun þó vera eitthvað hærra en ekki...

4 breytingar á byrjunarliðinu (3 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum
Atli Eðvaldsson landsliðsþjálfari íslands virðist hafa gert fjórar breytingar á byrjunarliði íslands sem mætir möltu. Tveir íslenskir leikmenn eru í banni þeir Heiðar Helguson vegna tveggja gulra spjalda og svo Lárus Orri sigurðson vegna rauðs spjald gegn Búlgörum en liðið er þannig skipað. Árni Gautur Arason verður í marki. Arnar Viðarsson og Rúnar Kristinsson verða bakverðir. Fyrir miðju í vörninni verða þeir Eyjólfur Sverrisson og Hermann Hreiðarsson. Á köntunum verða Tryggvi Guðmundsson...

Háspenna lífshætta (4 álit)

í Handbolti fyrir 23 árum
Það voru svo sannarlega ótrúlegir undanúrslitaleikirnir í handboltanum og svo sannarlega dramantískir. Eftir að leiktíminn var liðinn í leik KA og Aftureldingar var jafnt og þurfti að framlengja. Aftureldingarmenn höfðu eins marks forystu þegar bara aukakast var eftir og sigurinn blasti við þeim en allt kom fyrir ekki. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði glæsilegt mark beint úr aukakastinu og þurfti að framlengja aftur. OG aftur var jafnt eftir framlenginu og þurfti að grípa til bráðabana. Það...

Ná Haukar að verja titilinn (1 álit)

í Handbolti fyrir 23 árum
Spennandi leikur fór fram í ljónagryfjunni á akureyri þegar heimamenn sigruðu aftureldingamenn í framlengingu og bráðabana. aftureldingarmenn byrjuðu með boltan í bráðabananum en guðjón valur sigurðsson skoraði sigurmarkið úr vítakasti. Því eru KA menn komnir í úrslit. Í hinum leiknum sem fer fram á laugardag(ídag) mætast haukar og valur í nýja íþróttahúsi haukanna á ásvöllum. Haukar verða að teljast sigurstranglegri því þessi völlur er algjör ljónagryfja og hallast ég að sigri haukanna en...

Spá fyrir úrslitakeppnina (8 álit)

í Körfubolti fyrir 23 árum
Núna er úrslitakeppnin í nba deildinn bráðum að fara hefjast og eru margir stórleikir á dagskrá og sérstaklega í vestrinu. Hér ætla ég að spá í spilin í fyrstu umferðinni um hvaða lið komast áfram og hvaða lið falla út. 1 Philadelphia 3 8 Indiana 0 Philadelphia mun taka þetta nokkuð létt og vinna þetta 3-0 þeir hafa verið stórkostlegir í vetur og án efa sterkasta liðið í austurdeildinni þeir eiga eftir að fara alla leið í úrslita leikinn en ekki má vanmeta neitt og lið og svo gæti alltaf...

Dýrkeypt mark (2 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum
Leeds og Valencia eru komin áfram í meistaradeild evrópu eftir seinni leikina í gær. Þrátt fyrir 2-0 tap komst leeds áfram 3-2 samanlagt eftir stórleikt á Elland Road. Leikmenn Deportivo voru mun sterkari í leiknum og voru leedsarar heppnir að komast áfram því leikmenn Deportivo skutu nokkrum sinnum í stöng og slá. Markið sem Arsenal fékk á sig á heimavelli reyndist mjög dýrkeypt og hennti þeim útúr meistaradeildinni. Fyrri leikur liðanna fór eins og flestir vita 2-1 fyrir Arsenal og...

Hvað verður um KA (5 álit)

í Handbolti fyrir 23 árum
Nú þegar búið er að samþykkja breytta reglugerð í handboltanum og leikin verður aðeins ein deild hefur eins og flestir vita KA dregið lið sitt úr keppni(eða munu þeir ganga svo langt) en hvað verður um alla ungu efnilegu leikmenn KA sem hafa verið að spila svo vel á þessari leiktíð hvað eiga þeir að gera? Er bara ætlast til að þeir flytji bara suður til að geta spilað handbolta og komast svo kannski ekkert í liðið með því að þeir séu að draga lið sitt út keppni þá eru þeir að gera það að...

Íslenska landsliðið (2 álit)

í Handbolti fyrir 23 árum
Hvað finnst ykkur um íslenska landsliðið. Hvernig finnst ykkur þeir hafa staðið sig? Finnst ykkur vera rétt val á leikmönnum? Hvaða breytingar er þörf á? Satt að segja finnst mér val á leikmönnum ekki vera nógu gott. Alltaf þeir sömu. Fáir sem fá tækifæri. Mér finnst t.d. markverðirnir ekki verja nógu mikið hvernig væri að gefa leikmönnum sem hafa verið að verja mikið t.d. Bjarni Frostason hvernig væri að gefa honum tækifæri hann hefur varið mjög vel í vetur eða einhver annar sem hefur...

Verða að selja mikið (10 álit)

í Manager leikir fyrir 23 árum
ÞEgar maður er með neðri deildar lið þá neyðist maður oft til að selja leikmenn annaðhvort til að fá pening eða því leikmenn eru óánægðir. ég var t.d. með Wigan Athletic og ég fékk aftur og aftur boð í Roy Carrol(sem er landsliðsmarkvörður n-íra og einn efnilegasti markvörður bretlandseyja) en ég seldi hann ekki. Ég fékk stan collymore til mín og hann brilleraði í 2.deildinni en gat ekki rass í byrjun á fyrstu þá seldi ég hann í byrjun á 1.deild á meðan ég gat losað mig við hann. Erfitt...

léleg lið (10 álit)

í Manager leikir fyrir 23 árum
Hvernig finnst ykkur að vera með léleg lið. Neðri deildar lið helst. Ég hef spilað manager i dáltið langan tíma langt áður en leiknum var breytt og mér finnst miklu skemmtilegra að vera með lið sem er ekki það gott og á ekkert alltof mikla peninga. Venjulegast þegar ég fæ nýjan champ man leik þá byrja ég á að testa leikinn og leikmenn með góðum liðum og fer svo að byrja með einhver lið í 2. og 3. deild. Mér finnst enska deildin langskemmtilegust og er oftast í henni en hitt getur verið fínt....

Leeds heldur áfram að koma á óvart (4 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
“Litla liðið” í meistaradeildinni helduru áfram að koma á óvart í meistaradeild evrópu og eftir fyrri leikina eru þeir svo gott sem komnir áfram eftir magnaðan sigur á Deportivo la Coruna 3-0. Það var írski bakvörðurinn Ian Harte sem var allt í öllu í leiknum og byrjaði á því að skora beint úr aukaspyrnu leggja svo upp mark fyrir Alan Smith. Það var svo dýrasta varnamaður í heimi sem setti punktinn yfir i-ið þegar hann skoraði fyrsta mark sitt fyrir leeds eftir að hann kom frá West Ham. Ekki...

Var rangt hjá dómaranum að (6 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
var rangt hjá dómaranum að reka Lárus Orra Sigurðson að velli gegn búlgörum? Allir svara þessu játandi. Það er mín skoðun að það hafi verið rangt en ég fór aðeins að kíkja á reglurnar og thar stendur að ávalt skal víkja leikmanni útaf geri hann tilraun eða slær mótherja en alltaf skal dómarinn meta hversu alvarlegt brotið er. Mín skoðun er að þetta hafi ekki verið tilraun til að slá hann heldur aðeins smá klapp á kinnina en það er alveg ljóst að dómararnir eru ekki með okkur íslendingunum í...

byrjunarlið u21 tilkynnt (0 álit)

í Knattspyrna fyrir 23 árum, 1 mánuði
Sigurður Grétarsson þjálfari 21 árs landsliðs íslands tilkynnti fyrir stutta byrjunarlið gegn búlgörum. kemur liðið lítið á óvart en liðið er skipað eftirfarandi leikmönnum: 1. Ómar Jóhannsson 2. Páll Almarsson 3. Bjarni Geir Viðarsson 4. Indriði Sigurðsson (fyrirliði) 5. Grétar Rafn Steinsson 6. Baldur Aðalsteinsson 7. Jóhannes Karl Guðjónsson 8. Helgi Valur Daníelsson 9. Þórarinn Kristjánsson 10. Guðmundur Steinarsson 11. Veigar Páll Gunnarsson Varamenn: 12. Stefán Logi Magnússon 13. Árni...

Stjarnan og Blikar upp (3 álit)

í Körfubolti fyrir 23 árum, 1 mánuði
Lið Stjörnunnar og lið Breiðabliks komust upp í úrvaldsdeild í körfuknattleik í gær. Stjarnan og Blikar hafa haft dálitla yfirburði í vetur og unnu þeir lið sín í úrslitakeppninni í gær. Stjarnan vann Þór Þorlákshöfn í öðrum leik liðanna í gær 86-96 í Þorlákshöfn og Blikar unnu Selfyssinga á selfossi 77-101 og unnu því samanlagt 2-0. Blikar og Stjörnumenn er þá kominn meðal þeirra bestu og verður gaman að sjá hvernig þau standa sig í efstu deild.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok