Leeds heldur áfram að koma á óvart “Litla liðið” í meistaradeildinni helduru áfram að koma á óvart í meistaradeild evrópu og eftir fyrri leikina eru þeir svo gott sem komnir áfram eftir magnaðan sigur á Deportivo la Coruna 3-0. Það var írski bakvörðurinn Ian Harte sem var allt í öllu í leiknum og byrjaði á því að skora beint úr aukaspyrnu leggja svo upp mark fyrir Alan Smith. Það var svo dýrasta varnamaður í heimi sem setti punktinn yfir i-ið þegar hann skoraði fyrsta mark sitt fyrir leeds eftir að hann kom frá West Ham. Ekki er eins góða sögu að segja af man utd sem á brattan að sækja þegar þeir þurfa að fara til Munchen marki undir. Leikmenn Arsenal standa þó betur að vigi gegn Valencia eftir 2-1 sigur.