Búast má við því að sumarið í sumar verði mjög spennandi. Ég hef fylgst með íslensku deildinni frá því að ég man eftir mér og mér sýnist ekki á öðru en að þetta verði mest spennandi keppni hingað til. Ég tel mig vita töluvert um hvert lið og ekki sé ég að neitt lið ætli að skara fram úr. Það mun væntanlega ekki ráðast fyrr en í síðustu umferð hvaða lið verður meistari og hvaða lið falla. Mig minnir að í einhverju landi hafi eitt skipti liðið í þriðja sæti hafi átt möguleika á titlinum fyrir seinustu umferð en svo fallið eftir að hafa tapað því vonum við að þetta verði spennandi sumar og svo mikil dramatík verði. Segjum svo bara ÁFRAM ÍSLAND