Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

dha
dha Notandi frá fornöld 35 ára kvenmaður
1.508 stig

Stærðfræði (4 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Fyrirgefið að ég set þetta ekki á skólaáhugamálið, það er ekkert svo virkt á þessum tíma árs … Mig vantar sá hljálp í stærðfræði 203, er í 3. kafla í Stærðfræði 3000 - Algebra, föll og mengi (grænu bókinni). Ég er í smá vandræðum með ójöfnur af öðru stigi. Ég á að nota formerkjatöflu. Þetta virkar ágætlega þegar jöfnurnar eru á forminu (x-a)(x+b) - eða eitthvað þannig - eða x(x+a). Maður finnur bara 2 x-gildi sem gefa núll. Svo flækist þetta þegar ég fæ jöfnur með deilingu, t.d....

David Gilmour (4 álit)

í Gullöldin fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Ég hlusta mjög sjaldan á útvarp en það gerðist í dag að ég kveikti á Bylgjunni og þá var verið að spila lag sem David Gilmour gaf út í dag. Mér fannst þetta fínt lag, ég hef samt lítið hlustað á sólóferil hans. Veit einhver hérna hvaða lag þetta er? Hann gaf út smáskífu í dag en í byrjun mars gefur hann út samnefnda plötu.

Átak (12 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Ég ætla að byrja á smá átaki hérna á huga. Í staðin fyrir að segja að fólk geri leiðinlega eða tilgangslausa korka ætla ég að hrósa öllum korkum sem ég les sem eru ekki tilgangslausir eða leiðinlegir (og hundsa hina), sama um hvað þeir eru. Það er bara svo miklu skemmtilegra. Mér er sama hvort einhver er með en ég ætla allavega að hvetja fólk til að gera þetta.

Nöfn (7 álit)

í Bækur fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Ég er að fara að gera ritgerð í skólanum og ég mátti velja efnið (en átti að tengjast bók sem við erum að lesa). Ég ákvað að skrifa um nöfn á sögupersónum, hvernig höfundar skapa persónurnar og hafa nöfn sem þýða eitthvað. Það er hægt að sjá þetta vel í Harry Potter, t.d. að Dumbledore þýðir býflugar (silly nafn á silly persónu) og Narcissia Malfoy (mamma Draco) heitir eftir Narcissos (ég man ekki alveg stafsetninguna) úr grískri goðafræði. Bókin sem ég var að lesa í skólanum er...

Tungan á mér (13 álit)

í Heilsa fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Í morgun þegar ég ætlaði að fá mér að borða fékk ég svona skrítna, óþægilega tilfinningu á tungunni. Eins og þegar maður er búinn að borða miðjuna úr kiwi (eða er það bara ég sem finn það?). Svo kíkti ég á tunguna á mér og sá að það eru litlar rauðar bólur á henni. Svo er ég að fá hálsbólgu. Er þetta eitthvað óeðlilegt?

Pæling ... (61 álit)

í Sorp fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Haldið þið að það sé hægt að verða geðveikur af því að pæla of mikið? Ég fór í sturtu áðan og ég pæli alltaf mikið í sturtu. Ég hélt að ég væri að verða geðveik …

Desktop (8 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Ég er aðeins að taka til á desktoppinum í tölvunni minni (svo myndin sjáist betur :P) Ég nota hvort sem er eiginlega aldrei neitt sem er á honum. Hvað gerist ef ég hendi þeim iconum sem eru ekki shortcut?

Stytting framhaldsskólanna (18 álit)

í Skóli fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Ég póstaði þessu á forsíðuna en mér datt í hug að setja það hérna líka. Hérna eru nokkrar staðreyndir um afleiðingarnar sem ég fann á síðu Hagsmunaráðs íslenskra framhaldsskólanemenda - http://hagsmunir.is/ - Skyldueiningum í 3. tungumáli á náttúrufræðibraut verður fækkað um helming - ekki nóg þekking til að nýta sér. - Einingum í raungreinum fækkar töluvert - Þetta minnkar möguleika til að velja nám við hæfi - Deildir eins og eðlisfræði- og máladeildir munu hugsanlega leggjast af sökum...

Tvíburar (38 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Ég veit að þetta er frekar tilgangslaus korkur en mig langaði bara að spyrja að einu: Eru einhverjir tvíburar hérna á huga? Eineggja eða tvíeggja þá? Vinir eða óvinir? Ég er sjálf tvíeggja tvíburi og við erum bestu vinkonur (vorum ekki alltaf svona góðar …) Bara smá svona forvitni í mér :)

Snorra-Edda (10 álit)

í Tolkien fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Ég vissi alltaf að Tolkien hefði notað mikið úr norrænni goðafræði en núna er ég að lesa Snorra-Eddu og sé hvað það er rosalega mikið … Sagan um hringin er nærri því samsvarandi sögunni um Sigurð Fáfnisbana og hringinn sem dvergurinn Andvari átti og lagði álög á. Mörg nöfn eru auðvitað úr Snorra-Eddu en ég held að flestir kannist við það. Ég fann samt einhver sem ég hafði ekki heyrt um áður. Norræn goðafræði er mjög greinilega fyrirmyndin að Miðgarði og einhverju af þeim verum sem búa þar....

Ávaxtaréttur (0 álit)

í Matargerð fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Mér leiðist svo ég ákvað að skella hérna inn smá “uppskrift” af ávaxtasulli sem ég bý mér oft til. Það er samt eiginlega engin uppskrift … Þetta er mjög gott fyrir þá sem eru nammisjúkir en að reyna að bæta matarræðið. - Maður þarf að eiga mixara fyrir þetta - Fyrst kíkir maður í ávaxtakörfuna sína og sér hvaða ávextir eru að skemmast þar. - Maður velur nokkra sem gætu passað saman (t.d. epli og bananar, appelsína og kíví passa ekki alltaf í þetta en það fer allt eftir smekk) - Hreinsa og...

Hugmyndir? (10 álit)

í Matargerð fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Ég bý á heimavist og vegna lélegrar færðar kemst ég ekki oft heim. Ég þarf þess vegna oft að vera á vistinni um helgar og sjá um allan mat sjálf (með systur minni). Við erum búnar að prófa allt sem er hægt að elda í örbylgjuofni; núðlur, pizzur, 1944, bollur (foreldaðar sem þarf bara að hita), brauð, súpur … Vandamálið er að maður verður þreyttur á að borða alltaf sama matinn. Hafið þið einhverjar hugmyndir um hvað er hægt að gera ef maður hefur bara lítinn vask og örbylgjuofn?

Stytting framhaldsskólanna (77 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Nú hefur verið tekin sú ákvörðun um að stytta nám til stúdentsprófs um eitt ár. Við Íslendingar ætlum að hafa allt eins og fyrirmyndir okkar, Norðurlöndin, og þá sérstaklega Svíþjóð. Hér eru nokkrar staðreyndir um þetta: - Skyldueiningum í 3. tungumáli á náttúrufræðibraut verður fækkað um helming - ekki nóg þekking til að nýta sér. - Einingum í raungreinum fækkar töluvert - Þetta minnkar möguleika til að velja nám við hæfi - Deildir eins og eðlisfræði- og máladeildir munu hugsanlega leggjast...

Linkar og html - allir að lesa! (16 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Ég hef oft tekið eftir því að fólk sendir inn linka sem virka ekki og líta oftast svona út: http://hugi.is/forsida/ Ég varð mjög pirruð á þessu um daginn og komst að því hvað er að. Þegar maður svertir bara linkinn og ýtir á url-takkann kemur eitt bil á eftir og það er það sem eyðileggur. Ég vildi bara láta þá vita sem vissu þetta ekki og ef stjórnendur geta lagað þetta (eða látið laga þetta) þá væri það ágætt. Takk fyrir mig

Er guð til? (44 álit)

í Heimspeki fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Þessi könnun fékk mig til að hugsa … Er guð til? Eru draumar ekki til? Eru tungumál ekki til? Þótt það sé ekki endilega það tungumál sem við notum og ekki okkar draumar þá er þetta líklega til. Þótt það sé ekki áþreifanlegt er það jafn mikið til og hugsun og vit. Þess vegna tel ég guð vera til, sama hvort fólk “trúir” á hann. Og þótt fólk trúi á guð þarf það ekki að vera að hann sé til. Guð er auðvitað ekki stór maður á himnum, heldur er hann bara hugsun innra með fólki sem hjálpar sumum, og...

Tökum okkur á (16 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Mér líst ekki á það hvernig hugi er að fara. Það er alltaf verið að rífast og nöldra og rífast yfir nöldrinu o.s.frv. Ég sakna þess þegar hugi var staður til að tala friðsamlega við annað fólk. Mér finnst að við ættum að taka okkur á og vanda okkur rosalega við allt sem við gerum hérna (þá er ég ekki að tala um stafsetningavillur, hverjum er ekki sama um þær?) Ekki vera með óþarfa skítkast og ekki með ljótt orðbragð. Það er búið að eyða nógu mörgum korkum og banna of marga síðustu daga....

Emiliana Torrini (11 álit)

í Íslensk Tónlist fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Er einhver hérna að fíla hana? Ég hef hlustað á hana síðan ég var lítil og foreldrar mínir hlustuðu á hana. Þá voru það diskarnir Merman og Crouqie d'ou la. Mér finnst það sem ég hef heyrt af nýja disknum hennar líka ótrúlega flott þótt það sé pínulítið öðruvísi. Það er bara ótrúlegt að heyra á diskunum sem ég nefndi hvað hún er með ótrúlega flotta rödd og hefur gott vald á henni. Tvö lög á Crouqie d'ou la, The Dirty Dozens og Miss Cele's Blues, eru (held ég) upphaflega flutt af svörtum...

Tungumál (26 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Ég þarf að lesa dönskubók fyrir þriðjudaginn og er núna búin að lesa stanslaust á dönsku í dag :S Það versta við þetta er að ég fer að hugsa á dönsku eftir að lesa svona mikið :S Í skólanum er ég stundum að læra ensku (tímarnir fara fram á ensku því kennarinn er breskur), frönsku og dönsku sama daginn og það er farið að verða ruglandi þegar maður þarf alltaf að skipta um tungumál á klukkutíma fresti. Auk þess er ég í tónlistartímum hjá Bandarískum kennara sem kann ekkert í íslensku … Ég...

Erum við Bandaríkjamenn? (21 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Ég hef tekið eftir því að það eru margir að senda inn korka sem eru bannaðir. Stjórnendur eru að verða paranoid yfir því að allt er bannað í dag. Fólk sendir inn fleiri korka bara af því það má ekki. Svo er alltaf verið að banna fólk fyrir eitthvað lítið. Ég held að í vikunni hafi örugglega verið sett nýtt met í að eyða korkum og banna notendur. Erum við virkilega orðin svona viðkvæm fyrir öllu? Það má ekki tala um neitt hérna lengur. Þetta minnir mig á mynd sem ég sá um daginn um byssueign...

Vírusvörnin (0 álit)

í Hugi fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Af því það er alltaf verið að tala um “vírusinn mikla” er ég búin að vera að skanna tölvuna mína (svo komst ég að því að vírusvörnin mín gerir það sjálf á hverjum degi). Áðan kom upp gluggi sem sagði eitthvað um að það væru “Microsoft security vulnerabilities”. Svo stóð fyrir neðan að ég ætti að ná í Windows update. Ég ætlaði að gera það en ég er með nýjasta update. Veit einhver hvort ég þarf þá að gera eitthvað? Ég veit að það eru ekki allir sem trúa þessu með vírusinn en það er hvort sem...

Lesa (12 álit)

í Skóli fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Ég er í smá vandræðum. Ég er að lesa bók fyrir þriðjudaginn sem heitir Mord i september. Ég les alveg hræðilega hægt, sérstaklega á dönsku. Ég er líka með smá athyglisbrest (eða allavega væg einkenni) og næ alls ekki að beina athyglinni að þessu. Bókin er 205 bls. og ég er komin á bl.s 45. Getur einhver gefið mér ráð um það hvernig ég get lesið þetta hraðar? Ég er að lesa eina bls. á 10 mínútum svo þetta gengur of hægt.

Rófubein (12 álit)

í Heilsa fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Ég varð fyrir smá óhappi áðan, vinur minn kippti stólnum undan mér og ég datt (það er ekki fyndið að gera þetta!) Núna finn ég hræðilega mikið til í rófubeininu, ég held samt að ég sé örugglega ekki brotin en þetta er vont! Veit einhver hérna góð ráð? Hvernig er best að sitja? Lagast þetta ekki sjálft?

Stærðfræði. Hjálp? (46 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 2 mánuðum
Ég er að læra mengi í stærðfræði. Nei, ekki það sem maður lærir í 3. bekk heldur STÆ 203 í framhaldsskóla. Ég var að spá hvort það er einhver hérna sem man eftir þessu. Hvað þýða N og Z? Er N ekki bara náttúrulegar tölur? Ég veit að Z þýðir ræðar tölur eða heilar tölur eða eitthvað þannig. (Ég finn ekki rétt merki en U er “sam” eða sammengi) Er þetta ekki það sama? A ∩ (B U C) = (A ∩ B) U (A ∩ C) Ég hefði sent þetta inn á /skoli en ég fæ miklu meiri viðbrögð hérna og mig...

Lesa yfir ... (8 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Ég var að gera ensku ritun sem ég á að skila á morgun. Vitiði um einhverja síðu á netinu sem er eins og puki.is nema fyrir ensku?

??? (15 álit)

í Hljóðfæri fyrir 18 árum, 3 mánuðum
Gibson vs/ ESP Gibson!! Esp!! Spila ekki á hljóðfæri Eru Gibson og ESP einu hljóðfærin? Eru ekki til fleiri hljóðfæri en gítarar? Fyrirgefiði að ég er að nöldra yfir könnuninni en ég bara varð.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok