Er einhver hérna að fíla hana? Ég hef hlustað á hana síðan ég var lítil og foreldrar mínir hlustuðu á hana. Þá voru það diskarnir Merman og Crouqie d'ou la. Mér finnst það sem ég hef heyrt af nýja disknum hennar líka ótrúlega flott þótt það sé pínulítið öðruvísi.

Það er bara ótrúlegt að heyra á diskunum sem ég nefndi hvað hún er með ótrúlega flotta rödd og hefur gott vald á henni. Tvö lög á Crouqie d'ou la, The Dirty Dozens og Miss Cele's Blues, eru (held ég) upphaflega flutt af svörtum konum og ef ég vissi ekki að hún væri hvít myndi ég giska á að hún væri svört. Það er ótrúlegt!

Hvernig finnst ykkur Emiliana Torrini?
Ég mæli með því að allir kynni sér hana því hún er ein af bestu söngkonunum á Íslandi.