Mér líst ekki á það hvernig hugi er að fara. Það er alltaf verið að rífast og nöldra og rífast yfir nöldrinu o.s.frv. Ég sakna þess þegar hugi var staður til að tala friðsamlega við annað fólk.

Mér finnst að við ættum að taka okkur á og vanda okkur rosalega við allt sem við gerum hérna (þá er ég ekki að tala um stafsetningavillur, hverjum er ekki sama um þær?) Ekki vera með óþarfa skítkast og ekki með ljótt orðbragð. Það er búið að eyða nógu mörgum korkum og banna of marga síðustu daga.

Einnig vil ég minna notendur á að nota rétt áhugamál fyrir korka sína.

Hver er með mér?