Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

dha
dha Notandi frá fornöld 35 ára kvenmaður
1.508 stig

Týndur (15 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 11 mánuðum
http://mbl.is/mm/frettir/frett.html?nid=1201701 Látið vita ef þið sjáið þennan.

Verkfræði (15 álit)

í Vísindi fyrir 17 árum, 11 mánuðum
Ég vona að þetta passi hérna … Ég var að pæla hvort einhver viti eitthvað um það hvað verkfræðingar gera aðallega. Ég hef rosalega mikinn áhuga á stærðfræði, eðlisfræði og efnafræði og mér var sagt að verkfræði væri eitthvað fyrir mig. Ég veit bara ekki alveg um hvað starfið snýst. Ég hef heyrt að þetta sé mjög fjölbreytt en mig langar að vita svona dæmi um störf sem ég gæti unnið með þessa menntun (verkfræði í háskólanum) Svo var ég líka að pæla hvort það eru einhverjar fleiri greinar sem...

Silvía Nótt (25 álit)

í Tilveran fyrir 17 árum, 11 mánuðum
Ég veit ekki hvort þetta er búið að koma (sleppið þá bara að svara) en mér fannst þetta fyndið: http://mbl.is/mm/folk/frett.html?nid=1201461

Ray Charles (5 álit)

í Jazz og blús fyrir 17 árum, 12 mánuðum
Ég var að horfa á sjónvarpið, nærri því í fyrsta skiptið i mánuð, og hitti einmitt á frábæran þátt um Ray Charles á RÚV. Sá einhver hann? Allavega fór ég allt í einu að hugsa hvað mér finnst þetta frábær tónlist; gospel, rythmablús og soul blandað saman … Svo fattaði ég að ég hlusta of lítið á þetta. Getið þið mælt með einhverjum góðum lögum með honum og kannski einhverjum svipuðum tónlistamönnum. Ég a lög eins og What'd I Say og þessi vinsælustu en mig langar að finna fleiri lög …

Vantar einhvern glósur? (31 álit)

í Skóli fyrir 18 árum
Ég var að pæla hvort það vantar einhvern glósur hérna. Ég á ágætar glósur úr þeim áföngum sem ég hef verið í (allavega þeim sem ég hef getað glósað úr) og svo á systir mín eitthvað, svo mér datt í hug að deila þeim með ykkur. Verst að ég fattaði það seint … En ég ætla að tékka hvort fólk vantar eitthvað sem ég á: Örlítið í samfélagsfræði (fyrir samræmdu) Danska - Et helvedes hus FÉL 103 - Allar glósurnar úr áfanganum, mjög góðar glósur, held ég NÁT 123 - Eðlis- og efnafræðiglósur FRA 103...

Snorra-Edda eða Laxdæla? (3 álit)

í Skóli fyrir 18 árum
Ég er að fara í próf úr þessum bókum eftir helgi. Vandamálið er að ég er að verða búin að gleyma þessu :S Það er fáránlegt að hafa próf úr bók sem við lásum í febrúar. Ég vil taka það fram að ég las alla Snorra-Eddu (frábær bók :P) og mestalla Laxdælu (ég les hægt og við áttum að lesa 5 bækur á önninni á mismunandi tungumálum :S) svo ég er ekki ein af þessum sem nenni ekki að lesa og bið um glósur daginn fyrir próf :P Ég fann reyndar einhverjar glósur úr Laxdælu og á eftir að kíkja betur á...

Vííííí (39 álit)

í Sorp fyrir 18 árum
Ég verð bara að deila gleði minni með öðrum :) Ég var í dönskuprófi og mér gekk bara mjög vel. Ég er örugglega búin að ná því (og vinnueinkunnin var 8,04) Ég þarf (líklega) aldrei aftur að fara í dönsku!!! :D Eru einhverjir búnir með einhver próf? Hvaða próf eruð þið að fara í? Gangi ykkur vel í ykkar prófum :)

Sms-leikur (26 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum
Ég lét plata mig til að taka þátt í sms leik til að reyna að fá Hróarskeldu frítt … 11. hver vinnur svo ég ákvað að eyða smá inneign í þetta. Ég sendi eitthvað sms í 1900 og fæ spurningu sem ég get svarað, svara henni og bíð spennt eftir svari. Svo kom sms og ég var alveg tilbúin að trúa að ég hefði unnið (maður verður að vera bjartsýnn :P) En þá fékk ég “Villa kom upp hjá þjónustunni, reynið aftur síðar” Ég hef bara 5 mín til að svara þessu en ég er búin að senda nokkrum sinnum og ekkert...

Mugison í sjónvarpinu (5 álit)

í Hugi fyrir 18 árum
Veit einhver hvað lagið heitir sem Mugison söng á íslensku tónlistarverðlaununum (sem er verið að sýna núna á RÚV). Þetta er lag með hljómsveit, smá strengjasveit og smá brass-sveit … Ekkert smá flott! Veit einhver hvað það heitir og hvar ég get fengið það?

Hvað er ég? (54 álit)

í Skóli fyrir 18 árum
Mig langar að taka það fram að ég er að reyna að vera mjög hreinskilin í þessarri grein svo engin skítköst takk. Allir kannast við þessar týpur; nördinn sem er alltaf búinn með allt fyrst og fær hár einkunnir, og hinsvegar tossann sem er alltaf lengi að öllu og skilur ekki neitt. Það er bara þannig að það eru flestir annaðhvort “nörd”, “tossar” eða “venjulegir” Ég hef alltaf fengið háar einkunnir. Ég kippi mér ekkert upp við að fá tíu en hinsvegar finnst mér undir átta slæmt. Sumir hugsa...

Íbúfen (10 álit)

í Heilsa fyrir 18 árum
Það stendur á miðanum með Íbúfen-dollunni minni (400 mg) að fullorðnir eigi að taka 200-400 mg 3-4 sinnum á dag, ekki lengur en viku og ekki með öðrum verkjalyfjum. Hvað haldiði að gerist ef maður tekur 2 íbúfen og 3 panodil? Vinur minn gerði þetta af því hann var með hausverk. Ég sagði honum að þetta væri ekki sniðugt en hann sagði að það væri bara aumingjaskapur í mér :S Ég var bara að pæla hvort það gæti eitthvað gerst … (Hann er frekar kærulaus svo hann væri líklegur til að verða sér að voða :P)

Góður dýralæknir? (1 álit)

í Fiskar fyrir 18 árum
Þetta eru svo æðislegar persónur og mér finnst þetta svo sæt mynd :) Aumingja fiskurinn … :( Fleiri myndir af Pon og Zi http://www.ponandzi.com/ ef einhver hefur áhuga!

Einfalt en flott (4 álit)

í Grafísk hönnun fyrir 18 árum
Það hafa kannski margir fattað þetta en mig langar samt að setja það hérna. Ég fattaði frábæra aðferð við að gera flott munstur. Það er hægt að nota þetta í t.d. bakgrunna á síður þar sem má ekki vera of mikið á myndunum (það er bara leiðinlegt) Allavega, þetta er það sem kom út (tvær fjólubláar myndir með beinum grænum röndum, hitt er bara eitthvað annað photoshop-bull :P): http://www.picturetrail.com/gallery/view?p=999&gid=9885231&uid=4756443 1. Ég gerði rönd á leyer sem var litaður fyrir....

Tilfinningar (21 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum
Hafið þið lent í því að vita ekki hvernig ykkur líður? Ég er mikið búin að vera á flakki síðasta árið, er á heimavist og var úti í sveit í sumar. Ég á vini úti um allt og sakna alltaf einhverra. Mér finnst það bara ágætt að það sé alltaf einhver til að hlakka til að hitta. En núna eftir eitt ár af flakki er þetta orðið þreytandi. Um daginn kom ég úr páskafríi, um leið og ég yfirgaf vinina heima hitti ég aftur vinina sem eru á heimavistinni. Þeir vinir sem ég á heima eru mjög góðir vinir...

Illustrator (10 álit)

í Grafísk hönnun fyrir 18 árum
Ég var að pæla, er einhver hérna sem notar Illustrator? Ég var að fá það og Photoshop (átti þau reyndar fyrir löngu en skipti um tölvu og gleymdi að setja þau inn). Mér finnst eiginlega Illustrator skemmtilegri þar sem maður er kannski meira með liti og form og þannig. En hvað getur maður gert með þessu? Ég kann bara að gera eitthvað bull en mig vantar hugmyndir um hvað er hægt að gera með þetta, kannski tutorial eða eitthvað þannig. Pabbi minn er ljósmyndari (og sér líka stundum um umbrot)...

Föstudagskvöld (5 álit)

í Jazz og blús fyrir 18 árum
Ég las í Fréttablaðinu (held ég) í gær (held ég, fann þetta bara í vinnunni) að það væru einhver jazz-kvöld eða spunakvöld eða eitthvað þannig á næstu föstudögum. Ég man því miður ekki hvar en mér datt í hug að láta samt vita ef einhverjir hafa áhuga á að finna þetta ;)

Sigurrós? (29 álit)

í Klassík fyrir 18 árum
Ég sá í könnuninni að einhverjir eru á þeirri skoðun að Sigurrós spili klassíska tónlist … Hvernig getur það verið? Þótt þeir noti fiðlur og selló í lögin (sem er reyndar hljómsveitin Amina) þá er tónlistin ekki klassík, eða hvað?

Tutorial (6 álit)

í Grafísk hönnun fyrir 18 árum
Ég hef aldrei prófað þetta áður. Ég bara var að fikta eitthvað í photoshop og þetta kom vel út. Svo engin skítköst en allt í lagi að segja sínar skoðanir og leiðbeina mér :) 1. Nýtt skjal, ég var með 400x400 2. Bakgrunnurinn á að vera í þeim lit sem þið viljið nota (bara eitthvað, alltaf hægt að breyta. 3. Gera nýjan layer 4. Gera langan kassa eða breiða linu í miðjunni á nýja layernum með Marquee Tool [|] <- svona (ef þið fattið þetta :P) 5. Filla inní með hvítu 6. ctrl+D (deselect) 7....

Windows media player (5 álit)

í Hugi fyrir 18 árum
Veit einhver hvernig er hægt að losna við þetta forrit? Það er eitthvað að þessu hjá mér, vírus eða eitthvað. Allavega tekur hann allt vinnsluminnið þegar hann opnast en þar sem hann er automatic fyrir allskonar windows drasl opnast hann stundum hjá mér, þótt ég sé búin að stilla margt á önnur forrit. Ég reyndi að finna file til að uninstalla en það er ekki til. Ég reyndi að leita að möppunni fyrir þetta og bara eyða henni, en það er ekki hægt. Ég reyndi að fara í add or remove programs en...

Páskaföndur =) (9 álit)

í Sorp fyrir 18 árum
Núna ætla allir að vera duglegir og gera eitthvað sniðugt fyrir páskana, er það ekki? Ég var að gera eitt mjög sniðugt áðan. Okkur langaði svo að hafa svona páskaegg sem skraut en það er svo mikið vesen að blása úr eggjum og mála og þannig svo ég er búin að læra annað. Í þetta þarf: - Nokkur egg - Hýði utan af lauk (venjulegum, hvítlauk, rauðlauk, bara eins og mann langar) - Líka hægt að nota ýmislegt annað en laukhýði, t.d. appelsínubörk og hýði af epli, en mér finnst flottast að nota...

MH - Söngkeppni framhaldsskólanna (1 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum
Ég var að pæla hvort það er hægt að finna lagið þeirra einhversstaðar. Þetta var eitthvað frumsamið lag, mér fannst það flott :)

Páskaföndur (12 álit)

í Heimilið fyrir 18 árum
Það er eitt sniðugt sem við í fjölskyldunni minni gerum oft fyrir páskana. Maður setur hýðið utan af lauk utan um egg, vefur það inn í tusku og bindur með svona sláturgarni. Svo sýður maður eggin og þau verða rosalega flott á litin. Það er líka hægt bara að borða eggin svona, ekkert vesen með að blása úr eggjunum og mála þau. Það er örugglega líka hægt að nota eitthvað fleira sem er með litarefnum ef maður vill aðra liti. Þessi egg verða samt mjög flott :) Gleðilega páska! (ef einhver les þetta …)

Norðurljósablús (3 álit)

í Jazz og blús fyrir 18 árum
Heyrði einhver um þessa hátíð um daginn? (eða kannski fyrir frekar löngu síðan) Ég ætlaði að láta vita hérna en gleymdi því vegna anna :S Það var haldin blúshátið á Höfn í Hornafirði sem heitir Norðurljósablús. Þar komu fram margir bestu blúsarar landsins, t.d. Magnús Eiríksson, KK og hljómsveitirnar Mood, Kentár og Vax. Auk þess kom sænska hljómsveitin Emil & The Ecstatics. Þessi hátið var haldin fyrstu helgina í mars 2006 og verður árleg héðan í frá. Fyrirgefið að ég lét ekki vita af þessu...

Snjóflóð (17 álit)

í Tilveran fyrir 18 árum
http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1195705

Stress (8 álit)

í Heilsa fyrir 18 árum
Ég er búin að vera í smá veseni núna nýlega, ég er alltaf þreytt, er að missa áhugan á öllu og fleiri leiðindi. Ég er líka með mjög slæma vöðvabólgu sem ekkert virðist virka á. ÉG er búin að fara tvisvar til læknis og læra allt um það hvernig ég á að sitja og þannig en ekkert lagast. Svo var ég um daginn í lífsleiknitíma að læra um streitu og fattaði að ég er með flest alvarlegustu einkenni streitu. Ég er mjög róleg manneskja, kannski of róleg stundum. Ég geri allt hægt, tala, borða, vinn,...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok