Ég er nú reyndar ekki að tala um einhverjar greinar í Vikunni eða “sálfræðipróf” eins og “hversu þunglynd er ég”. Ég er að tala um alvöru upplýsingar, handbækur í læknisfræði, gefnar út af alvöru læknum, Lyfjabókin, doktor.is osfrv. Ég efast t.d. um að fólk hafi vitað fyrir nokkrum árum hvað stafylokokkar væru, hvað þá fjölónæmir stafylokokkar og hvaða munur væri á mismunandi fúkkalyfjum sem gefin væru við slíkum sýkingum. Þetta veit fólk í dag, oft á tíðum alla vega, og vill fá svör t.d....