Ójá ég man sko eftir þessu, allir veggir, hurðakarmar, loftin, bókstaflega allt. Allar myndir teknar niður og pússaðar, stytturnar þvegnar, meira að segja allar bækurnar úr bókaskápnum týndar niður díííís. Eina “stórhreingerningin” mín fyrir jólin er eldhússkáparnir, ég laga til í þeim og þríf þá, helst í nóvember. Þá kemur líka í ljós hvaða krydd og bökunarvörur er útrunnið og hvað vantar fyrir jólabaksturinn og jólamatinn.