Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Niflhell
Niflhell Notandi síðan fyrir 16 árum, 7 mánuðum 108 stig
Áhugamál: Hjól, Bílar, Metall, Hljóðfæri

TS: trommusett ásamt hardware (0 álit)

í Hljóðfæri fyrir 11 árum, 7 mánuðum
Ég hef til sölu Gretsch Blackhawk trommusett sem keypt var í kringum 2007-2008. Það er white sparkle að lit og er í fínu ásigkomulagi. Stærðirnar eru 22" bassatromma, 14" sneriltromma, 10" og 12" tomtoms og 14" floor tom. Skinnin eru flest öll ný; nýlegt á snerli, nýtt á minnsta tom og ég á skinn á hina tvo tommana. Nýlegt skinn er framan á bassatrommunni en aftur skinnið er ekki nýtt en virkar þó. Með þessu hef ég til sölu 2x Sonor Bómustatíf, 1x Yamaha hihat statíf, 1x Sonor...

Wistaria og vinir 2012 - 6. og 7. jan (1 álit)

í Metall fyrir 12 árum, 2 mánuðum
Nýja árið verður vígt með 2 öflugum metaltónleikum dagana 6 og 7 janúar og verða fyrri tónleikarnir haldnir í TÞM Hellinum og seinni á Gauk á Stöng. Föstudaginn 6. Janúar TÞM Hellirinn 1000Kr inn Húsið opnar kl 19:30 og tónleikarnir hefjast stundvíslega kl 20:15. Ekkert aldurstakmark Wistaria - http://www.facebook.com/wistariaice Moldun - http://www.facebook.com/Moldun I Need Pills To Sleep - http://www.facebook.com/pages/I-Need-Pills-To-Sleep/149427515159822 ———————————————————————————————...

Hvar fæ ég stakar keilur fyrir hátalara? (0 álit)

í Græjur fyrir 14 árum, 1 mánuði
Ég á fjóra 25 ára gamla hlunka hátalara, 2x Marantz og 2x Jamo. Þeir eru allir með morknar keilur þannig að þær eru rifnar í drasl hjá mér. Hvar fæ ég bara stakar keilur í svona? Ég á í bölvuðu veseni með að finna einhverja búð hérna heima sem selur bara stakar keilur í svona hátalara, en þið kannski vitið um einhverja og ef svo er, vitiði eitthvað hvað þær kosta c.a.? Annars getur verið að eina lausnin sé að kaupa bara keilur ætlaðar fyrir bíla og setja þær í hátalarana. Væri það hræðilegt?...

Blindcrest óskar eftir meðlimum (10 álit)

í Metall fyrir 14 árum, 5 mánuðum
Núna er komið að þeim tímapunkti að við í Blindcrest þurfum að fara að manna bandið þar sem við erum komnir með nóg efni í plötu og/eða gott gigg. Okkur vantar einhvern góðan söngvara sem helst getur growlað sem og sungið clean vocals. (Ekki skemmir fyrir ef hann kann líka á bassa) Einnig höfum við hljómborðsleikara í huga, þar sem hljómborð gæti passað vel við tónlistina. Tónlistin sem við spilum er blanda af deathmetal og blackmetal með miklum progressívum áhrifum. Sem dæmi um áhrifavalda...

1991 Subaru Legacy project (22 álit)

í Bílar fyrir 14 árum, 10 mánuðum
Já þetta er minn heittelskaði 1991 Subaru Legacy GX 2.2. Ég keypti hann án kúplingu en gangfæran fyrir 70.000 kr. Hann er að kafna úr ryði eins og flestir bílar sem hafa ekið á íslenskum vegum í átján ár… Ég er búinn að eiga hann í ár og er búinn að gera heilan helling fyrir hann. Í augnablikinu er ég að ráðast á ryðið og klára að heimasprauta hann í ljósbláum lit. Ég er búinn með ryðlausu panelana, þ.e.a.s. húdd, skottlok og fram- og afturstuðara. Planið fyrir sumarið er að klára að sprauta...

Subaru Outback 2010 (7 álit)

í Bílar fyrir 14 árum, 11 mánuðum
Þetta mun vera hinn nýi Subaru Outback 2010. Hann mun líklegast koma með þremur vélum; 2.5l boxer bensínvél sem skilar 170 hestöflum og togar 230,23 NM. Stærsta vélin mun vera 3.6l boxer (held ég) bensínvél sem skilar 256 hestöflum og togar 334,51 NM. Sú þriðja verður líklegast 2.0l boxer díselvél en það eru bara getgátur hjá mér. Bíllinn er stærri á alla kanta en forveri hans en ekkert er minnst neinsstaðar um hvort hann sé hærri eða ekki. Hvað finnst ykkur? Mér finnst þessi hönnun vera...

Upphitunarkvöld Metal Battle Iceland (9 álit)

í Metall fyrir 14 árum, 11 mánuðum
Jæja, hvernig var svo forkvöld keppninnar? Ég því miður komst ekki útaf peningaskorti en ég vil endilega heyra frá ykkur sem létuð sjá ykkur hvernig hljómsveitirnar stóðu sig og sömuleiðis hvernig hljóð og stemning var?

Leikmaður með ekkert vinnuleyfi? (13 álit)

í Manager leikir fyrir 14 árum, 11 mánuðum
Ég lenti í því stórskrítna atviki núna fyrir stuttu að ég keypti Marquinhos frá Palmeiras á 15 milljónir, á að vera mjög góður leikmaður, en síðan þegar ég fékk hann í liðið mitt virðist hann ekki vera með atvinnuleyfi (work permit). Þetta lýsir sér þannig að þar sem upplýsingar um menn svo sem wnt (wanted) og inj (injured) er vanalega stendur bara wp (work permit) og ég get ekki teflt honum fram. Það fyndna er er að hann er núna farinn að væla yfir því að fá ekki að spila í byrjunarliðinu....

Frábært og sjaldgæft dirtjump hjól til sölu (2 álit)

í Hjól fyrir 14 árum, 11 mánuðum
Já, ég er með frábært hjól til sölu sem hægt er að nota í nánast allt. Það er 15 kg, sterkt og með fáránlega þægilegan balance. Best er það í dirtjump og street en einnig er það nothæft í XC, vægt downhill, vægt freeride og gott krús þar sem hnakkurinn getur verið mjöööög neðanlega. Hjólið heitir Gary Fisher GED og er í raun betri útgáfan af Trek Jack 3 hjólinu. Þess má geta að mitt er eina eintakið á landinu. Hjólið kostaði rúmlega 200 þúsund í Erninum 2006-2007 og er á því Marzocchi...

Wistaria vantar enn nýjann söngvara! (23 álit)

í Metall fyrir 15 árum, 1 mánuði
Þeir sem treysta sér í að prófa að syngja með metalcore bandi endilega sækja um hjá okkur í Wistaria. Við erum í miðjum upptökum á plötu og mun gamli söngvarinn syngja inn á plötuna en í leiðinni leitum við af nýjum söngvara til að fylla upp í hans skarð. Það sem viðkomandi þarf að geta er: Öskur, bæði high-pitch og low-pitch. Helst growl líka, það væri mikill plús og einnig væri ágætt ef hann gæti sungið clean (skiptir ekki svo miklu máli). Ekki vera feimnir, við erum tilbúnir að taka...

Subaru Legacy STi S402 (48 álit)

í Bílar fyrir 15 árum, 1 mánuði
Hverjum langar ekki í svona? Ég hef alltaf verið bilaður Legacy-fan og á einn sautján ára gamlan sjálfur. Ef ég skiti peningum væri þessi á wishlist. Þessi Legacy er aðeins seldur í Japan á u.þ.b. 6 milljónir króna og er aðeins gefinn út í 402 eintökum. Hann fær 2.5 lítra vélina úr Imprezu STi og 6 gíra gírkassan sömuleiðis. Hann er sérstaklega fínpússaður fyrir Nürburgring og var prófaður vandlega þar áður en hann var gefinn út. Þetta er draumur!

Aukahlutabúð? (7 álit)

í Bílar fyrir 15 árum, 3 mánuðum
Er engin aukahlutabúð hér á landi fyrir utan N1 og Stillingu sem er meira í því að selja svona rally- og/eða streethluti? Með því meina ég körfustóla, kram, bodykit, hoodscoop, spoilera, felgur, dekk o.fl.? Ég hélt að það væri það mikil menning fyrir bílum hér á landi að það væri sjálfsagt að svona búð væri til hérna heima eins og í nánast öllum öðrum löndum, en svo virðist ekki vera sýnist mér. Vitið þið af einhverri svona búð sem ég veit ekki um?

Wistaria vantar nýjan söngvara (42 álit)

í Metall fyrir 15 árum, 3 mánuðum
Þeir sem treysta sér í að prófa að syngja með metalcore bandi endilega sækja um hjá okkur í Wistaria. Við erum í miðjum upptökum á plötu og mun gamli söngvarinn syngja inn á plötuna en í leiðinni leitum við af nýjum söngvara til að fylla upp í hans skarð. Það sem viðkomandi þarf að geta er: Öskur, bæði high-pitch og low-pitch. Helst growl líka, væri mikill plús og það er algjört must að kunna að syngja clean. Ef þú hefur áhuga, hringja í síma 699-6129 eða 846-0999. Myspace til að sýna...

Wistaria (7 álit)

í Metall fyrir 15 árum, 3 mánuðum
Jú við í Wistaria erum búnir að gera ýmislegt við myspace síðuna okkar fyrir ykkur sem viljið kynnast okkur. Fyrir nokkru síðan hentum við inná smáskífu sem við tókum upp fyrir ári síðan og síðan er breiðskífa í vinnslu eins og er, gengur frekar hægt, en gengur! Einnig eru komnar myndir af okkur inná ásamt myndbandi af okkur á tónleikum í Gamla Bókasafninu fyrir einhverju síðan þar sem við spiluðum með m.a. Palmprint in Blood og Fenjar. Segið okkur hvað ykkur finnst, vona að ykkur líki...

Dirt jump hjól til sölu (13 álit)

í Hjól fyrir 15 árum, 3 mánuðum
Já, ég er með frábært hjól til sölu sem hægt er að nota í nánast allt. Það er 15 kg, sterkt og með fáránlega þægilegan balance. Best er það í dirtjump og street en einnig er það nothæft í XC, vægt downhill, vægt freeride og gott krús þar sem hnakkurinn getur verið mjöööög neðanlega. Hjólið heitir Gary Fisher GED og er í raun betri útgáfan af Trek Jack 3 hjólinu. Þess má geta að mitt er eina eintakið á landinu. Hjólið kostaði rúmlega 200 þúsund í Erninum 2006-2007 og er á því Marzocchi...

Samsung SGH-U600 (2 álit)

í Farsímar fyrir 15 árum, 8 mánuðum
Samsung slider til sölu í fullkomnu ástandi. Ultrablue að lit og kostar ykkur aðeins 19.000 kr. Tek Xbox 360 uppí ef það kemur til greina. Síminn hjá mér er: 820-2680 og ég heiti Patrik.

Könnunin (nöldur) =Þ (13 álit)

í Hljóðfæri fyrir 15 árum, 9 mánuðum
Ég veit að það má varla koma með neina könnun á þetta áhugmál án þess að eitthvað sé kommentað á þær en kommon! Hvernig er hægt að búa til svona lélega könnun og hún var samþykkt?! Auðvitað verður helmingur af gítaristum á þessu áhugamáli að velja “annað” kostinn vegna þess að það er nefndur einn tíundi af þekktu gítarframleiðundum. Ég get engan veginn sagt að þessi könnun sé fullnægjandi og mæli með því að ef þú hefur betri hugmynd um góða könnun þá endilega sentu hana inn sem fyrst, þessi...

Hvernig tónlist þá? (þráður við könnun) (13 álit)

í Bílar fyrir 15 árum, 9 mánuðum
Ég sá þessa könnun, kaus og fattaði síðan að auðvitað hlusta flestir á tónlist þegar þeir keyra, sérstaklega í lengri ferðum. Bretarnir í Top Gear sem þið flestir ættuð að kannast við höfðu einu sinni símakosningu í þáttum sínum um hvað væri besta lagið til að keyra með. Til gamans má nefna að lagið Don´t stop me now með hljómsveitinni Queen vann þá símakosningu en mig langar að spyrja: Á hvað hlustið þið þegar þið keyrið? Hvað er ykkar uppáhalds keyri-lag? Ég hlusta yfirleitt á...

Spurningar um cymbala (16 álit)

í Hljóðfæri fyrir 15 árum, 10 mánuðum
Þannig er mál með vexti að ég á mjög nýlega Meinl cymbala og annar þeirra fékk í sig sprungu bara eftir nokkra vikna ævi sína. Er það eðlilegt? Ég held að ég hafi ekki verið með of strekkt á honum en ég er í húsnæði þar sem hitabreytingar eru örar og stundum er svolítið kalt þar inni. Hafa hitabreytingar og kuldi áhrif á líftíma diskanna? Ég spila by the way ekki mjög fast. Síðan var ég að spá með notaða cymbala… Borgar sig að kaupa notaða cymbala þrátt fyrir að þeir séu aðeins ódýrari vegna...

Skemmtileg íslensk síða (0 álit)

í Bílar fyrir 15 árum, 10 mánuðum
Ég fann þessa skemmtilegu íslensku mótorsportsíðu áðan: http://www.motorsportklippur.net Síðan er með myndir, spjall og vídeó úr íslenska rallinu og svona. Vonandi að þessi síða hafi ekki komið hérna áður.

Uppgerð á Legacy (12 álit)

í Bílar fyrir 15 árum, 10 mánuðum
Ég vona að einhver af ykkur sérfræðingum (Aiwa?) getið svarað einhverjum spurningum sem ég hef. Málið er að ég er með 1991 Legacy GX 2.2 bsk sem er óskoðaður og það er ýmislegt sem ég þarf að gera fyrir hann til þess að koma honum í gegnum skoðun og bara til að gera hann flottan. :D 1. Atriði: Vélin gengur mjög vel en það kemur alltaf mjög skrítin brunalykt útúr henni ef ég keyri meira en í fimm mínútur og stundum rýkur svolítið úr vélinni. Það er lítið gat á vatnskassanum en hann er samt...

Hinn magnaði Audi quattro (25 álit)

í Bílar fyrir 15 árum, 10 mánuðum
“It is considered one of the most significant rally cars of all time, and was one of the first to take advantage of the then-recently changed rules which allowed the use of all-wheel-drive in competition racing.” Audi quattro kom fyrst út sem “development car” fyrir rallið árið 1980 en varð síðar meir “revolutionary” fyrir alþjóðarallið (WRC), fyrst í Group A rallinu og síðan í Group B rallinu. Þekktastur var hann í Group B rallinu þar sem hann var með línu fimm vél með risastóra túrbínu sem...

Mercedes-Benz 190e 2.5-16 Cosworth (8 álit)

í Bílar fyrir 15 árum, 10 mánuðum
Þessi bíll með sitt langa nafn átti upprunalega að vera rallýbíll en Mercedes-Benz höfðu áður keppt í alþjóðarallinu (í kringum 1970) og ætluðu að reyna aftur með þessum háþróaða bíl. Til þess að takast ætlunarverk sitt fengu þeir breska rallý-fyrirtækið Cosworth til að hjálpa þeim með verkefnið. Verkefnið kallaðist “WAA” og átti þessi bíll að rústa öllum í alþjóðarallinu. Eins og nafnið gefur til kynna var rallýbíllinn vopnaður 2.5 lítra línu-fjarka sem eftir smá meðhöndlun hjá bretunum í...

17 ára bílaeigandi? Hjálp! (3 álit)

í Bílar fyrir 15 árum, 10 mánuðum
Ég er sautján ára og ætla mér að kaupa mér bíl í kvöld, en ég er ekki alveg viss um hvort ég megi skrá hann á mig eða að ég þurfi að skrá hann á foreldra mína til að byrja með…? Þarf maður að vera fjár- og sjálfráða til að eignast bíl eða eru það bara sögusagnir?

Ástandsskoðun (15 álit)

í Bílar fyrir 15 árum, 10 mánuðum
Ég er að spá í að fá mér '91 árgerð af Subaru Legacy en áður en ég kaupi hann verð ég að checka hvort að ég sé nokkuð að kaupa köttinn í sekknum. Svo ég spyr: Hvert get/ætti ég að fara með hann í ástandsskoðun? Hversu dýrt er það? ————————————————– Ein önnur spurning: Hversu auðvelt haldiði að sé að fá varahluti í svona gamlan Legacy? Mig gæti vantað framvæng og hugsanlega eitthvað fleira. Ætti ég bara að kíkja við hjá Vöku eða? Fyrirfram þakkir, Sindri.
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok