Ég er að spá í að fá mér '91 árgerð af Subaru Legacy en áður en ég kaupi hann verð ég að checka hvort að ég sé nokkuð að kaupa köttinn í sekknum.

Svo ég spyr: Hvert get/ætti ég að fara með hann í ástandsskoðun? Hversu dýrt er það?

————————————————–

Ein önnur spurning: Hversu auðvelt haldiði að sé að fá varahluti í svona gamlan Legacy? Mig gæti vantað framvæng og hugsanlega eitthvað fleira. Ætti ég bara að kíkja við hjá Vöku eða?

Fyrirfram þakkir, Sindri.