Mercedes-Benz 190e 2.5-16 Cosworth Þessi bíll með sitt langa nafn átti upprunalega að vera rallýbíll en Mercedes-Benz höfðu áður keppt í alþjóðarallinu (í kringum 1970) og ætluðu að reyna aftur með þessum háþróaða bíl. Til þess að takast ætlunarverk sitt fengu þeir breska rallý-fyrirtækið Cosworth til að hjálpa þeim með verkefnið. Verkefnið kallaðist “WAA” og átti þessi bíll að rústa öllum í alþjóðarallinu. Eins og nafnið gefur til kynna var rallýbíllinn vopnaður 2.5 lítra línu-fjarka sem eftir smá meðhöndlun hjá bretunum í Cosworth skilaði 320 hestöflum.

Þegar bíllin þeirra var við það að taka þátt í alþjóðarallinu kom út Audi quattro með fjórhjóladrifi og hættu Mercedes-Benz þá við að taka þátt í rallinu, því að þeir vissu að þeir ættu ekki séns í fjórhjóladrifnu bílana.
Eftir alla vinnuna sem þeir lögðu í þennan bíl þá ákváðu þeir að henda ekki hönnuninni í ruslið heldur gáfu þeir hann út sem framleiðslubíl fyrir lýðinn. Þá var hann reyndar bara í kringum 200 hestöfl en var það talið mikið afl miðað við framleiðslubíl árið 1988. Bíllinn seldist ekkert rosalega mikið útaf mjög háum verðmiða en í dag er þessi bíll “collectible” ef ekki safngripur.

Upplýsingar fékk ég hjá félögunum úr Top Gear og á Wikipedia.