Ég veit að það má varla koma með neina könnun á þetta áhugmál án þess að eitthvað sé kommentað á þær en kommon!

Hvernig er hægt að búa til svona lélega könnun og hún var samþykkt?!

Auðvitað verður helmingur af gítaristum á þessu áhugamáli að velja “annað” kostinn vegna þess að það er nefndur einn tíundi af þekktu gítarframleiðundum.

Ég get engan veginn sagt að þessi könnun sé fullnægjandi og mæli með því að ef þú hefur betri hugmynd um góða könnun þá endilega sentu hana inn sem fyrst, þessi könnun fer einfaldlega í pirrurnar á mér. Ég þori fúslega að viðurkenna að ég hef ekki beint góðar hugmyndir fyrir könnun núna en ef ég væri með einhverja hugmynd þá myndi ég hafa hana aðeins ítarlegri til þess að gera mig ekki að svona miklu fífli.