Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

Kexi
Kexi Notandi frá fornöld 34 ára karlmaður
1.122 stig
_________________________________________________

Bara smá hugmynd ;) (39 álit)

í Gamanþættir fyrir 20 árum, 3 mánuðum
Rosalegur kirkjugarður sem þetta er áhugamál orðið að. Það ætlar bara enginn að finna upp á sniðugum greinum og góðum umræðum… no offence til greinarhöfunda, vel skrifaðar greinar hjá ykkur, bara oftast um þætti og persónur sem verður ansi þurrt með tímanum. FriendsFan vikunnar gerir sig alveg, en maður er fljótt búinn að skoða þetta og bíður svo lengi, lengi eftir næsta aðdáanda. Þó svo að næsti komi er maður fljótt búinn að lesa um hann/hana líka og svo kolli af kolli. Eftir góða umhugsun...

Veðurfarið versnar (8 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 6 mánuðum
… regndropar þunglyndis falla hástöfum í brjósti mér er svart/hvíta, þó málaða, mynd ég sé af þér, í huga mér … … finnst ég fylla þurfa glugga sálar af táraflóði tilfinninga minna í hið hinsta sinn sem ég mun sofna… …sé ég ímynduð fótspor þín dofna.

*KlappKlapp* (15 álit)

í Gamanþættir fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Sælinú gott fólk. Ég ætla að hrósa öllum þeim sem tekið hafa þátt í að halda þessu áhugamáli lifandi gegnum s.l. rétt rúmlega fjóra mánuði síðan 9. seríunni lauk og hvetja ykkur til þess að halda áfram á sömu braut næstu rúmlega 2 mánuði þar til 10. serían byrjar í íslensku sjónvarpi ;) Þrátt fyrir lok 9. seríu hefur ykkur tekist það að halda ljósi þessa áhugamáls logandi, sem ég dáist hreinlega að. Spennan sem felst í biðinni eftir 10. seríu í imbakassann er auðvitað gríðarleg (að frátöldum...

3. Sería - My Favourite One (32 álit)

í Gamanþættir fyrir 20 árum, 6 mánuðum
Sælir aftur kæru Hugarar og Friends-aðdáendur =) Ég hef ákveðið að taka uppáhaldsseríuna mína og kreista úr henni allan mögulegan safa sem til er. Gagnrýni á hvern einasta þátt, 25 þættir alls, og ég gef þeim líka stjörnur í ferlinu, til að lífga aðeins upp á þetta. Svo kem ég líka með quote-þáttarins (allavega uppáhalds quotið mitt úr honum) eftir gagnrýnina á hverjum þætti og síðan kemur “gagnrýni” (mætti frekar kallast stjörnugjöf) á seríunni í heild sinni. Þið getið andað léttar, því ég...

Heilaþvegin fegurð... (7 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 7 mánuðum
hugmyndir mínar borga ferjumanninum tvöhundruðkall fyrir ferð um heilasellurnar því miður … kemst aðeins ein þeirra í gegn

Vítahringur (5 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Nýfætt ópið svífur um húsasund heljar. Sest að hjá föngum syndar. Fast í djúpri eilífð… Fast handan rimla rökkurs. Bros þess bak við blóðrauðu tárin lifnar við.. Frelsar fólin frá refsingu…. Fórnar sér fyrir framgang vítahrings.

Eftirsjá í tiltekt (0 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Ég ranghvolfi augasteinum mínum í kafsundi um minningaflæði heilasellna minna. Ég skapa blaðvöndul úr þessu eina augnabliki sem ég átti eftir í minningadálknum… …gerður fyrir þig og fleygi því í ruslafötuna. Í örvæntingu hvolfi ég fötunni.

Inn og út kenningin (aka Vegakenningin) (18 álit)

í Heimspeki fyrir 20 árum, 8 mánuðum
ATH. Ég ber enga ábyrgð á því ef að einhverjum öðrum hefur dottið þetta í hug!!! (Munið þið líka að taka þessa grein ekki of alvarlega ;) Hmm… nú eruð þið líklega flest inni. Inni í húsi (þar sem þið eruð í tölvunni að lesa þessa grein). Ég var kominn með mikinn svefngalsa með vini mínum þegar mér datt í hug að við værum inni í húsinu mínu. Það hlaut að vera mörg hundruð þúsund skipti sem ég hef farið inn og út. INN í húsið mitt, ÚT úr húsinu mínu, INN í bílinn minn, og ÚT úr bílnum aftur....

Tannpína á yngri árum... (14 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Því miður var Colgate ekki einu sinni hinn fullkomni morðingi. Spurningin rann gegnum æðarnar - hvort það væru ekki bara Karíus og Baktus í tönnunum… … á Karíusi og Baktusi? — Kexi —

Hjartalaga piparkaka (7 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Hún málaði sláandi mynd sem hengd var upp á vegg í listasafni samfélagsins. Myndin var af óétinni piparköku… … hjartalaga, óétinni, piparköku. Þessi piparkaka hlaut að vera eldgömul, þar sem hún lá þarna, þakin rykmaurum, á snjáðri bökunarplötunni. Þó er Lilli klifurmús engin Kjarval. - Kexi

Rignir á völundarhúsið (8 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Þetta var speglaparadís. Ég sá mig út um allt í réttu ljósi - þar til ég sá mig í móðu vegna marglitra dropa sem féllu af himni. Áttavilltur. Veggir völundarhússins spegluðu mig sem villtan túrista… Marglitir speglarnir kortlögðu leiðina út… … gerðu mig ringlaðann. Því ég er litblindur. - Kexi

Minningar um timburmenn (4 álit)

í Smásögur fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Þeir lágu þarna. Ótrúlegt en satt. Þeir voru blákaldir. Félagi þeirra, sannleikurinn, var blákaldur. Hún hafði dömpað mér þennan dag. Tíkin. Þó fékk ég enga hvöt til að rífast við hana, þrátt fyrir að allt leit út fyrir það að hún væri að reyna að koma rifrildi af stað. Klukkan var rétt rúmlega sjö. Ég sat á gólfinu á ganginum með gamla símann hennar langömmu í hendinni. Snúran frá tólinu að “stöðinni” lá alla leið frá ganginum og inn í eldhús. Samt náðu köllinn hennar mömmu að komast til...

Kerti (4 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Skapari minn klórar sér í hausnum, rétt eins og eldspýtan sem hóf logann. Með tímanum dofnar þetta dýrmæta kerti og verður að engu. Rétt eins og ég. — Kexi —

Fantasía (2 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Ég lét mig falla í mjúkann mosann í tilbreytingarhugsun sem tekið hafði yfir hugsanir mínar. Sendiboðar gleðinnar dönsuðu tangó um heilasellur mínar í væntingu sem aldrei varð að veruleika. Skrjáfið í laufum sem falla. Niður í fossinum angrar engann. Kyrrð angrar alla… … en ekki mig. — Kexi —

--- Fangelsi frekar en herinn --- (92 álit)

í Deiglan fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Ég er verulega pissed off út í heiminn þannig að þið afsakið mig akkúrat núna. AFHVERJU Í VERÖLDINNI ÍSLENSKUR HER?!?!?!? BJÖRN BJARNASON - DROP DOWN AND GIVE ME TEN MORE!!!!!!!!!! … ég er farinn að verða virkilega leiður á þessum náunga. Ekki ætla ég að ströggla eitthvað fyrir þjóðina mína þegar ég kemst á vissann aldur. Ég veit að ég er bara 13 ára gutti en er það ekki fólkið á mínum aldri sem hefur áhyggjurnar yfir því að strögglast eitthvað fyrir þjóðina í framtíðinni?! Ekki að segja að...

Mikilvægi stiga... (16 álit)

í Deiglan fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Ég er ekki viss hvert ég átti að senda þessa grein en svo ákvað ég að láta hana vaða inn á Deigluna :S (ekki spyrja afhverju). Hmm… hvar á ég að byrja? Ég er ekki viss um hver hóf þessa deilu en ætli sá aðili hafi ekki verið orðinn þreyttur á þessum svokölluðum “stigahórum” en ég nefni enga hugara í því máli. Sjálfur hef ég ekkert á móti fyrrnefndu “hórunum” en sjálfur er ég kallaður það af og til :P (þó mér finnist ég ekki vera það… eða jú svona stundum ;). Mig grunar um sniffins að...

"Joey" og flækja kossanna (34 álit)

í Gamanþættir fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Nú hefur (eins og ég held flestir vita) verið endanlega ákveðið að það eigi að gera sérþátt um karakterinn okkar Joey sem verður sýndur stuttu eftir að tíundu og síðustu seríunni um vinina verður lokið. Þátturinn mun bera frumlega nafnið “Joey” og Matt LeBlanc fær víst slatta af bleðlum fyrir þættina. Matti er eini “vinurinn” sem að hefur dottið í hug að ræða um framhald af Friends við framleiðendurna og verður “Joey” eini þátturinn á sjónvarpsstöðinni NBC sem að gerir framhald af þáttaröð...

Gjöfin (4 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Ég fann fyrir gleðinni - hún gerði ekkert nema hlaupa í gegnum mig. Þessi tregi andardráttur minn tók súrrealískan kipp, fann fyrir ánægju. Fullnæging gleðinnar - fann fyrir óvenju. Ég gaf þér mannleg samskipti mín í vöggugjöf.

Leiðindarsenan... (15 álit)

í Kvikmyndagerð fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Sælir Hugarar og kvikmyndagerðamenn. Ég hef verið að reyna að skrifa gott handrit gegnum árin en aldrei hefur mér tekist að klára það. Af og til næ ég að grípa hugmyndirnar og koma þeim á blaðið, en þá kemur vandamálið, að klára það. Ég hef byrjað á fjandi mörgum handritum gegnum tíðina. Oftast með vinum mínum og þá eru samræðurnar á fullu um byrjun, millikafla og endi, tekur oftast heilan dag. Við vöknum, annar fær hugmynd, ræðum hugmyndina fram og aftur, frá byrjun myndarinnar að endanum...

Varúða (3 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Klisja samfélagsins í augum hrokkinhærðar manneskju - hann starir á heildarmyndina. Horfir í gegnum þennan þunna - samt sem áður þunga glugga. Rétt svo kíkir… Sálir þrá að snertast… geta það ekki - mega það ekki. Hinum megin við götuna rennur það… … litla tárið sem rann niður kinnina þína í gærkvöldi - það rennur aftur niður. Varir drengjanna þrá það sama - forboðið það sama. Endurspeglun ójafnvægis. Gangið ei yfir götuna.

Flótti frá raunveruleikanum (8 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Hvert fótskref sem ég tek… … það skiptir ekki máli. Tilgangurinn fellur aðeins lengra í niðurfallið. Þó varir mínar hreyfist… … er öllum sama. Veröldin heldur tilverunni áfram. Þó sólin nálgist… … og tunglið er fjarlægt… … er tilgangurinn tilgangslaus. Ferð mín var, er og verður óhapp. Brenn allar brýr að baki mér.

Flug nr. 112 (9 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Lítil dökkblá og hvít randafluga föst í tímamótum tímans - og ótímans. Finnur fyrir frostinu sem heltekur hjartað í heljargreipum sorgarinnar. Getur ekki hætt að raula lag Lúsífers. Hún sér depurðina í sál gráu borgarinnar. Því þarftu að elta mig? “Því að greyið festi sig í hyldýpinu” … óttinn er allur.

Þessi í Barbados og lokin í bili (26 álit)

í Gamanþættir fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Blessuð aftur! Hér (eftir litla fríið mitt síðan frá greininni minni um Janice) ætla ég aðeins að spjalla um lokaþátt níundu seríu í Friends og fríið okkar núna frá vinunum hlægilegu í bili. Þessi sería hefur verið virkilega umdeild þessa dagana (nefnist ekki einu sinni á endinn) og ég hef verið að pæla í því alla síðustu viku um að skrifa grein til að koma góðri umræðu af stað um þennan þátt til að sjá hvað ykkur flestum finnst raunverulega um málið. Í greininni ætla ég ýmis að fjalla um...

Bernie Mac Show =D (10 álit)

í Sjónvarpsefni fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Stöð 2 hefur verið með mikið af sjónvarpsþáttum í bið um hríð og loks er fólkið okkar byrjað á dagskránni ;) klapp klapp fyrir því… Ég var að horfa á George Lopez (horfi vanalega á hann) með ostapopp í annari hendinni og Mountain Dew í hinni (:p) þegar þátturinn kláraðist. “Ohh, ég á svo mikið eftir,” hugsaði ég en þá hófst annar þáttur. “The Bernie Mac Show……. hmm…. æ já, þetta er þátturinn sem að ég er búinn að vera að bíða eftir..!!” hrópaði ég með glöðu geði þegar ég komst loksins að því...

Regn (3 álit)

í Ljóð fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Þegar ég finn fyrir sálinni kalla á hjálp leita ég hjálpar til þín. Það er til þín — sem að köllin og hrópin í myndlíkingu samtímans mætast öll á einn fund til að ræða ókomna og sorglega framtíð. Fundurinn á malbyggi Reykjavíkur. - Kexi
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok