Rosalegur kirkjugarður sem þetta er áhugamál orðið að.

Það ætlar bara enginn að finna upp á sniðugum greinum og góðum umræðum… no offence til greinarhöfunda, vel skrifaðar greinar hjá ykkur, bara oftast um þætti og persónur sem verður ansi þurrt með tímanum.

FriendsFan vikunnar gerir sig alveg, en maður er fljótt búinn að skoða þetta og bíður svo lengi, lengi eftir næsta aðdáanda. Þó svo að næsti komi er maður fljótt búinn að lesa um hann/hana líka og svo kolli af kolli.

Eftir góða umhugsun þá komst ég að því að það er bókstaflega ekki hægt að finna uppá neinu nýju til að tala um. Þetta er allt að finna í gamla, góða stöffinu.

Ætti að senda inn Trivia vikunnar til að lífga aðeins upp á þetta áður en 10. serían byrjar? Þá meina ég ekkert hálfkák, ekkert Hvað heitir fyrrverandi kærasta Chandlers, sem er þekkt fyrir að vera með pirrandi hlátur? Ég er að tala um spurningar um eitthvað sem þarf að leita vel að í samræðum milli Vinanna o.fl. eins og t.d. Hvert var efnisinnihaldið í kökunni hans Marcel sem að Ross útbjó handa honum, til að fagna leik hans í myndinni Plágan 2?

Hvernig lýst ykkur á? Bara smá hugmynd ;)
_________________________________________________