Þetta var speglaparadís.
Ég sá mig út um allt
í réttu ljósi -
þar til ég sá mig í móðu
vegna marglitra dropa sem féllu af himni.
Áttavilltur.

Veggir völundarhússins
spegluðu mig sem villtan túrista…

Marglitir speglarnir
kortlögðu leiðina út…
… gerðu mig ringlaðann.


Því ég er litblindur.


- Kexi
_________________________________________________