Gleymt lykilorð
Nýskráning
Forsíða

Notendur

MMA.IS vantat penna!!! (0 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 19 árum, 8 mánuðum
MMA.IS mun staekka mikid a naestu manudum og okkur bradvantar ofluga menn til ad skrifa um K-1. MMA og allt sem ad tengist tessum itrottum. Hingad til hofum vid bara verid tveir um ad skrifa og vid bara getum ekki afkastad eins miklu af skriftum og vid viljum fyrir siduna. Ef ad tid teljid ykkur hafa eithvad ad segja, sendid mer greinarhugmyndir a einar@mma.is og/eda skilabod her a huga og vid sjaum til. Endilega stydjid vid bakid a tessu sporti her a landi. Allar hugmyndir velkomnar.

MMA.IS Komin í loftið!!! (1 álit)

í Box fyrir 19 árum, 9 mánuðum
Þó svo að þetta tengist boxi ekki beint þá ákvað ég að senda þetta inn á þetta áhugamál líka. Vona að einhverjum finnist þetta vel til fundið, þeir sem hafa eitthvað á móti MMA (blönduðum bardagalistum) geta bara hunsað þetta síðan mma.is er komin í gagnið, þar munum við fjalla um MMA íþróttina í heild sinni og koma með fréttir og lýsingar af Pride, UFC og jafnvel fleiri keppnum ásamt ítarlegri umfjöllun um skyldar greinar á borð við K-1 og Abu Dhabi, og að sjálfsögðu reyna að stuðla að...

MMA.IS Komin í loftið!!! (2 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 19 árum, 9 mánuðum
síðan mma.is er komin í gagnið, þar munum við fjalla um mma íþróttina í heild sinni og koma með fréttir og lýsingar af Pride, UFC og jafnvel fleiri keppnum ásamt ítarlegri umfjöllun um skyldar greinar á borð við K-1 og Abu Dhabi, og að sjálfsögðu reyna að stuðla að uppbyggingu MMA á íslandi. Ef að ykkur langar að vera með sendið mér póst á einar@mma.is og lýsið hvað þið getið gert, sérstaklega vantar okkur mann sem getur adminað hugsanlega spjallsíðu okkar, + fleiri greinaskrifara. Kíkið á...

Til hamingju quesus! (8 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 19 árum, 11 mánuðum
Ég hvet alla hugamenn til að óska jiu-Jitsu pílagrímnum okkar honum quesus til hamingju þar sem fregnir herma að hann hafi komið heim á klakann með blátt belti í farteskinu frá öðlingnum honum Chris Brennan. Eftir því sem ég best veit er hann þar með fyrsti íslendingurinn til að fá einhverskonar gráðun í Brazilian Jiu-Jitsu. Hip Hip! Húrra!!!

Alex Gong skotinn til bana(RIP) (7 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Alex “F-14” Gong, einn af bestu Muay Thai mönnum heims og forseti Fairtex-íþróttafyrirtækisins í Bandaríkjunum var skotinn til bana af óþekktum byssumanni á götuhorni í San Francisco 2. Ágúst síðastliðinn. Hann var 30 ára gamall. Gong, sem að hefur unnið ýmsa titla innan vébanda World Muay Thai Council og var nýbyrjaður að keppa í K-1 (2-0 record) var við æfingar í húsnæði Fairtex í San Francisco þegar hann sá út um gluggann að það var ekið á jeppabifreið hans, og fór út til að tala við...

Pride GP fréttir: Arona meiddur, Bustamente hleypur í skarðið (1 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 7 mánuðum
Brazilian Top Team meðlimurinn Ricardo Arona mun ekki taka þátt í Pride Grand Prix keppninni 10. Ágúst eins og áætlað var vegna beinbrots í hæl. Arona átti að etja kappi við hinn stórhættulega Quinton “Rampage” Jackson í fjórðungsúrslitum mótsins. Staðgengill hans er æfingarfélagi hans og fyrrverandi UFC meistarinn Murilo Bustamente, og svei mér ef að Busta vs Rampage sé ekki bara mun betri matchup. Busta hefur samt ekki nema nokkra daga til að undirbúa sig og á erfiðan bardaga fyrir höndum.

Afsökun frá Freestyle (2 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 8 mánuðum
Þar sem ég var búinn að lofa að dæla út greinum hér á bardagalistum í sumar þá finnst mér ég verða að afsaka skort á þeim. Skýringin er sú að ég fékk dúndurvinnu við að byggja Kárahnjúkavirkjun og er þessvega ekki í neinu netsambandi langtímum saman, og hef ekki aðstöðu né tíma til að skrifa eins mikið og ég vildi. Greinaserían mín um nafntogaða bardagalistamenn verður þessvegna að bíða betri tíma. Ég mun samt skrifa eins mikið og ég get þegar ég á frí, en ekki búast við neinum stórvirkjum á...

K-1 á Eurosport 13. Júní (1 álit)

í Box fyrir 20 árum, 9 mánuðum
Þetta er kannski ekki hreinræktað box en fyrir þá sem hafa áhuga vildi ég bara benda á að Eurosport sýnir beint frá K-1:Paris úrtökumótinu fyrir K-1 Grand Prix keppnina sem haldin verður seinna á árinu í Tokyo. Svo mun K-1 stórstjarnan Jerome Lebanner heddlæna dæmið og slást við Kevin “The Monster” Randleman í superfight Fyrir þá sem ekki vita er K-1 stand-up bardagalistakeppni þar sem hörðustu boxarar, muay thai, og karate-menn keppa eftir hybrid reglum. Högg, spörk og hné eru leyfð, en...

K-1 á Eurosport 13. Júní - Randleman vs Lebanner(WTF!!!) (8 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 9 mánuðum
MMA fighterinn Kevin “Rodman on steroids” Randleman mun berjast í fyrsta skiptið í K-1 kickbox keppninni 13. júní í París. Munu herlegheitin verða sýnd út beint á Eurosport fyrir þá sem hafa aðgang að því. Ef að einhver nennir að taka þetta upp á VHS og senda mér þá er ég til í að reiða fram beinharða peninga í staðinn. Kevin“The Monster”Randleman er fyrrverandi UFC meistari og einn af bestu wrestlerunum í Pride þessa stundina. Hann hefur þó verið fremur mistækur í gegnum tíðina og tapaði...

Hjálp! Vantar aðstoð með myndir og kasmír! (3 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Mig langar að senda inn myndir hér á huga en þar sem ég er bölvaður tossi með svoleiðis hluti vantar mig smá aðstoð. Hvernig minnkar maður myndir þannig að þær sleppi inn hér á Huga? Eitthvað windows/sharware forrit sem þið mælið með? Einnig vantar mig einhvern góðan mann til að hjálpa mér með tilvonandi smíði Kasmír síðu minnar þar sem ég ætla að koma fyrir ýmsu bardagalistar-tengdu góðgæti.

Quinton "Rampage" Jackson - Hinn ameríski Skuggapétur? (5 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Sherdog.com voru að setja inn nýtt higlight video þar sem hinn ógurlegi blámaður Quinton “Rampage” Jackson er aðalnúmerið. Jackson þessi hefur verið að vekja mikla athygli undanfarin ár í MMA heiminum. Hann byrjaði í Gladiator Challenge og King Of The Cage og barði þar mann og annan af miklum móð. Flutti svo til Japan og hefur verið að gera það gott í Pride. Varð hann fljótt þekktur fyrir fremur villtan stíl og mikið líkamlegt afl. Hans aðalvörumerki er að lyfta andstæðingum sínum á loft og...

Hvaða fræga bardagalistamenn viljið þið sjá greinar um? (11 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Nú geri ég mér það til gamans að skrifa greinar um nafntogaða bardagalistamenn, og plana að senda inn a.m.k 3 greinar á næstu dögum. Nú er bara spurning um, hverja viljið þið helst lesa um. Eina skilyrðið er að þeir séu hættir keppni eða ferill þeirra svona u.þ.b búinn. Þeir sem ég er með í sigtinu þessa dagana eru: Bas Rutten Alexander Karelin (Grísk-Rómversk glíma) Masahiko Kimura (Júdó) Helio Gracie (Brazilian Jiu-Jitsu) ef það er einhver bardagalistamaður sem þið viljið sjá grein á...

Veit einhver hvernig ég get pantap UFC live? (4 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Mér skilst að það sé hægt að horfa á UFC í beinni ef að þú ert með réttan gervihnattadisk og borgar fyrir Pay-Per-View. Ég fór í gegnum upplýsingarnar á heimasíðunni þeirra en þar er bara talað um kapalkerfi - getur einhver bent mér á hvernig maður ber sig að við að horfa á þetta? Ég þekki slatta af fólki sem á gervihnattadiska en þeir yppa bara öxlum ef ég minnist á pay-per-view. Mig langar svooooo mikið að horfa á UFC 43 í beinni. Chuck Lidell, Randy Couture, Frank Mir, Vitor Belfort, Matt...

Höfðu Þjóðverjar bolmagn til að hernema Bretland? (2 álit)

í Sagnfræði fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Nú vita allir þeir sem eitthvað hafa stúderað seinni heimstyrjöldina að Hitler mat það sem svo að ekki þyrfti að hernema Bretlandseyjar til að sigra stríðið og skjátlaðist honum hrapalega. Það sem mig langar að vita er, hefðu þjóðverjar getað gert innrás í Bretland hefðu þeir viljað það? Breski flotinn var gríðarlega öflugur og stóð þeim Þýska mun framar. En aftur á móti var sáralítið af vopnfærum mönnum á Bretlandi fyrstu mánuðina eftir fall Frakklands og ennþá minna af vopnum. Mín spurning...

Íslenskun á grappling frösum (5 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 20 árum, 10 mánuðum
Ég hef mikið verið að velta fyrir mér hvort að ekki sé kominn tími á að menn geti farið að tala um BJJ og skylda hluti án þess að þurfa endalaust að vera að sletta. Þetta er orðið svolítið ruglandi þar sem að frasar á ensku, portúgölsku og japönsku eru notaðir í einum hrærigraut. Hér eru mínar hugmyndir um íslensk orð sem gætu hentað best. (mörg eru augljós, önnur ekki, ég skal reyna að rökstyðja) Stílar O.fl. Wrestling = Glíma Greco-Roman Wrestling = Grísk Rómversk Glíma Freestyle Wrestling...

Alternative History (2 álit)

í Sagnfræði fyrir 21 árum
Undanfarið hef ég séð fleirir og fleiri “alternative history” skáldsögur í hillum bókabúða. Ég hef verið svolítið forvitinn um þær, sérstaklega eina seríu sem ég man ekki hvað heitir um hvað hefði gerst ef Breska heimsveldið hefði skipt sér af Þrælastríðinu. Einnig hefur það verið að kitla mig að prófa að skrifa svona sögu eða uppkast af sögu um mögulega innrás Þjóðverja í Bretland sumarið 1940. Það sem ég vildi fá að vita er þetta: 1. Er eitthvað varið í alternative history sögur? Eru þær...

Til Sölu! Röde NT-1 Studio Mikrafónn (3 álit)

í Danstónlist fyrir 21 árum
Til sölu er einn prima NT-1 Micrafónn, hentar vel til söng og acoustic upptöku, t.t lítið notaður, með shockmount og popkiller. Dýnamískur og næmur hljóðnemi með afar “lifandi” hljóm. Brilljant græja, selst einungis úr neyð. Verðhugmynd 22.000 kr, er til í prútt ef menn geta borgað fyrr heldur en síðar.

Grísk-Rómversk glíma á Íslandi....Afhverju ekki? (7 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Ég verð að segja það að ég er verulega forviða yfir því af hverju Greco-Roman Wrestling náði aldrei að skjóta rótum hér á Íslandi. Júdó og Karatefélög eiga sér langa sögu hér á klakanum en samt hefur þessi aldagamla vestræna íþrótt ekki hlotið neinn hljómgrunn á landinu. Maður myndi halda að það stæði okkur nú aðeins nær en austurlensku stílarnir…..eða hvað? Veit einhver hvort að Greco-Roman hefur einhverntímann verið stundað hér á landi?

Uppáhalds MMA maður (15 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 3 mánuðum
Til að halda upp á að ég er kominn með íslenska stafi á lyklaborðið mitt þá ætla ég að koma með einn pointless en vonandi skemmtilegann spjall kork fyrir okkur MMA menn….veit ekki hvort einhver svipaður var í gangi nýlega. Spurningin er, hvaða MMA maður í UFC, Pride o.þ.h er í mestu uppáhaldi hjá ykkur. Ekki endilega hver ykkur finnst bestur heldur hver á sér sérstakann stað í hjarta ykkar vegna stíls eða bara “attitude” Ég held ég verði að segja að í dag sé ég ansi heitur fyrir Rumino Sato...

Pankration a naestu OL?!? (6 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Eg var ad heyra frettir tess efnis ad Pankration(gamla griska nafnind yfir Freestyle) hafi verid tekid fyrir sem hugsanleg syningargrein a naestu OL i Athenu 2004. Ef svo er ta er UFC-style freefighting um tad bil ad fa heljarinnar credibility-boost. Eins og flestir vita koma olympiskir hnefaleikar og grisk-romversk glima baedi fra gomlu grisku Olymnpiuleikjunum og sogulegar heimildir benda til tess ad einnig hafi verid keppt i svokolludu Pankration(sem tydir “allar adferdir”) Tessi grein...

A Freestyle ser framtid a Islandi (9 álit)

í Bardagaíþróttir fyrir 21 árum, 4 mánuðum
Since my keyboard is fucked, I'll write this in english. There seems to be a lot of interest in MMA style training on this site, and I share that interest. At the moment I train Muay Thai in Akureyri, but I will move to Reykjavik in the fall. I will definently continue my MT training and maybe expand my skills with Jiujitsu, Aikido or Shootfighting. What I was thinking is that although it is far too early to think about holding tournaments or anything like that we can still form a solid core...
Hugi notar vefkökur til að bæta notendaupplifun á vefsíðunni og greina umferð um hana. Einnig hefur Hugi uppfært persónuverndarstefnu sína. Skoðaðu stefnuna hér..
Ok