Þetta er kannski ekki hreinræktað box en fyrir þá sem hafa áhuga vildi ég bara benda á að Eurosport sýnir beint frá K-1:Paris úrtökumótinu fyrir K-1 Grand Prix keppnina sem haldin verður seinna á árinu í Tokyo. Svo mun K-1 stórstjarnan Jerome Lebanner heddlæna dæmið og slást við Kevin “The Monster” Randleman í superfight

Fyrir þá sem ekki vita er K-1 stand-up bardagalistakeppni þar sem hörðustu boxarar, muay thai, og karate-menn keppa eftir hybrid reglum. Högg, spörk og hné eru leyfð, en ekki olnbogar.

Ef þið hafið aðgang að Eurosport tékkið á þessu, ég lofa að þið verðið ekki fyrir vonbrigðum!