Þar sem ég var búinn að lofa að dæla út greinum hér á bardagalistum í sumar þá finnst mér ég verða að afsaka skort á þeim. Skýringin er sú að ég fékk dúndurvinnu við að byggja Kárahnjúkavirkjun og er þessvega ekki í neinu netsambandi langtímum saman, og hef ekki aðstöðu né tíma til að skrifa eins mikið og ég vildi. Greinaserían mín um nafntogaða bardagalistamenn verður þessvegna að bíða betri tíma. Ég mun samt skrifa eins mikið og ég get þegar ég á frí, en ekki búast við neinum stórvirkjum á næstunni. Takk fyrir.