Brazilian Top Team meðlimurinn Ricardo Arona mun ekki taka þátt í Pride Grand Prix keppninni 10. Ágúst eins og áætlað var vegna beinbrots í hæl. Arona átti að etja kappi við hinn stórhættulega Quinton “Rampage” Jackson í fjórðungsúrslitum mótsins. Staðgengill hans er æfingarfélagi hans og fyrrverandi UFC meistarinn Murilo Bustamente, og svei mér ef að Busta vs Rampage sé ekki bara mun betri matchup. Busta hefur samt ekki nema nokkra daga til að undirbúa sig og á erfiðan bardaga fyrir höndum.