Alex “F-14” Gong, einn af bestu Muay Thai mönnum heims og forseti Fairtex-íþróttafyrirtækisins í Bandaríkjunum var skotinn til bana af óþekktum byssumanni á götuhorni í San Francisco 2. Ágúst síðastliðinn. Hann var 30 ára gamall.

Gong, sem að hefur unnið ýmsa titla innan vébanda World Muay Thai Council og var nýbyrjaður að keppa í K-1 (2-0 record) var við æfingar í húsnæði Fairtex í San Francisco þegar hann sá út um gluggann að það var ekið á jeppabifreið hans, og fór út til að tala við ökumanninn þegar hann einfaldlega stakk af. Gong hljóp á eftir honum og náði honum á næstu ljósum. Æfingarfélagar Gong sáu hann skiptast á nokkrum orðum við ökuníðinginn áður en að hann dró upp skambyssu og skaut Gong einu sinni í brjóstkassann og ók á brott. Þegar sjúkraliðar komu á staðinn var Alex Gong úrskurðaður látinn. Hann dó með boxhanskana á sér.

Morðingi hans er enn ekki fundinn.