Mér skilst að það sé hægt að horfa á UFC í beinni ef að þú ert með réttan gervihnattadisk og borgar fyrir Pay-Per-View. Ég fór í gegnum upplýsingarnar á heimasíðunni þeirra en þar er bara talað um kapalkerfi - getur einhver bent mér á hvernig maður ber sig að við að horfa á þetta? Ég þekki slatta af fólki sem á gervihnattadiska en þeir yppa bara öxlum ef ég minnist á pay-per-view.
Mig langar svooooo mikið að horfa á UFC 43 í beinni. Chuck Lidell, Randy Couture, Frank Mir, Vitor Belfort, Matt Lindland, Vernon White eru allir að slást, verður örugglega besta UFC í langan tíma.

Hvernig fóru t.d boxarar að áður en að Sýn fór að sýna box?